Þróttur - 01.12.1944, Blaðsíða 11
í þessum hlaupum skiftu þeir Finnbjörn og
Oliver með sér sigurlaunum, báðir harðir keppn-
ismenn og orðnir vanir að leiða hesta sína
saman.
400 m. hlaup:
Kjartan Jóhannsson í- R. 52,3 sek.
Brynjólfur Ingólfsson K. R. 54, 0 sek.
800 m. hlaup:
Kjartan Jóhannsson f. R. 2:02,2 mín.
Hörður Hafliðason Á. 2:03,0 mín.
Kjartan er eitil harður og virðist hann í framtíð-
inni hafa mikla möguleika á þessum tveim Vega-
lengdum, jafnvel 1500 metrarnir eru vegalengd
sem hann ætti að reyna við áður en langt um líð-
ur. Brynjólfur og Hörður hafa laglegt hlaupa
lag og eru ávallt þróttmiklir keppinautar.
1500 m. hlaup:
Uörður Hafliðason Á. 4:16,6 mín.
Sigurgeir Ársælsson Á. 4:16,8 mín.
5000 m. hlaup:
Óskar Jónsson í. R. 17:00,0 mín.
Indriði Jónsson K. R. 17:06,0 mín.
Hörður og ISigurgeir sigruðu Óskar í 1500 m.
hlaupinu, þó má fullyrða að Óskar átti hlaupið,
leiddi hann meirihluta vegalengdarinnar en tap
aði á endaspretti. Illaupaðferð þeirra Harðar og
Sigurgeirs bar vott um að reynsla undangeng
inna ára hafði kennt þeim að hlaupa fvrst og
fremst með vinning fyrir augum, sem og er rétt
undir kringumstæðum sem þessum. Óskar vann,
aftur 5 km. léttilega.
10000 m. hlaup:
Indriði Jónsson K. R. 36:49,8 mín.
Steinar Þorfinnsson 39:33,6 mín.
Einkennilegt er tómlæti manna fyrir að æfa
löngu vegalengdirnar, þó telja margir að á þeim
megi frekast vænta ágætra árangra frá okkur
löndunum, benda á í því sambandi að veðráttan
hafi ekki eins bein áhrif á þjálfun og jafnvel
keppni á þessum vegalengdum og þeim stuttu.
10 km. ganga:
Sverrir Magnússon Á 61:35,6 mín.
Steinar Atlaso'n F. II. 64:21,2 mín.
Margir voru hlessa á að keppt skyldi í þessan
grein þegar vitað var að aðeins þessir tveir kepp-
endur voru þátttakendur. Má og sjá að ástandið
er aumt þegar jafnvel félögin geta ekki svælt
mönnum í keppnina til að plokka stig á því. Ann
ars er gönguíþróttin ein vinsælasta íþróttagrein-
in í Svíþjóð og Sviss og þar fara fram árlega
fjöldinn allur af göngukeppnum með tugum þátt-
takenda. Svíar t. d. nota þessa íþróttagrein sem
f jölda keppnisgrein, og taka þá allir sem vettling
geta valdið þátt í leiknum.
4x100 m. boðhlaup:
A-sveit K. R. 46,8 sek.
A-sveit I. R. 46,8 sek.
1000 m- boðhlaup:
Sveit I. R. 2:08,3 mín.
Sveit K. R. 2:09,7 mín.
Keppnin í 4x100 m. boðhlaupinu var ein sú
eftirminnilegasta frá mótinu. Þarna var aðeins
um það að ræða hve fjórði niaður K. R. væri
harður á móti fjórða manni I. R. sem var Finn
björn. Sveinn Ingvarsson, en hann hljóp fyrir
K. R. sýndi enn einu sinni prýðileg tilþrif enda
enn einn bezti spretthlaupari hérlendis. K. R-
leiddi frá byrjun.
1000 m. boðhlaupið var ekki eins skemmtilegt
og það gat verið, vegna þess að svo slysalega
tókst til að sterkustu sveitirnar hlupu ekki sam-
an í riðli. 1. R- sveitin að líkindum sterkust.
110 m. grindahlaup:
Skúli Guðmundsson K.R. 17,0 sek.
Brynjólfur Jónsson K.R 18,0 sek.
Skúli sýnir virðingarverðan, áhuga fyrir þess-
ari skemmtilegu grein og er altaf að þokast
nær því marki sem maður getur talið okkur
sæmandi.
Ilástökk:
Skúli Guðmundsson K.R. 1,92 m.
Oliver Steinn F.II. 1,75 m.
Skúli endurtók næstum því sama bragðið og’
á 17. júní mótinu, þó vantaði nú einn cm. upp
á það afrek, fór fljúgandi létt yfir þessa hæð,
og var fremur óheppinn að velja of litla hækk-
un á hæðinni 1,90.
ÞROTTUR
0