Breiðfirðingur - 01.04.1992, Page 120
118
BREIÐFIRÐINGUR
þá í Hvallátrum að smíða samskonar vélbát fyrir Óskar
Þórðarson, bónda á Firði í Múlasveit, en fékkst meðfram við
önnur störf. Dróst eitthvað fram yfir áramót að ég lyki smíð-
inni. Valdimar Ólafsson, kennari minn, var þá látinn.
Hugur minn stóð til að nema skipasmíði við Iðnskólann í
Reykjavík og var ég fastákveðinn að fara strax suður ef fjár-
hagur leyfði. Ég hafði enn ekki fengið greitt fyrir Skarðsbát-
inn og afréð því að fara og rukka Kristin bónda. Þá hafði ég
nýlokið við smíði Fjarðarbátsins í Látrum. Jón Daníelsson,
bóndi þar, flutti mig á vélbátnum sínum og var það bæði
löng og skerjótt leið í janúar þegar birtan entist bara aðra
leiðina. Fengum við Jens í Sviðnum til að koma með okkur
enda var hann allra manna kunnugastur á þessari leið og tal-
inn hafa óvenjulega skyggnigáfu.
Ferðin til baka var farin í myrkri og gekk óhappalaust;
stóð Jens á þóttu við formastrið alla leiðina. Enga fékk ég
greiðsluna þar sem kreppan var þá í hámarki. Borgun var
mér lofað þegar ég væri kominn suður á skólann.
Fyrir suðurferðina þurfti ég að skreppa heim eftir fötum
og farangri. Óskar á Firði kom þá í Látur að taka á móti
bátnum og gerði hann mér þann greiða að skreppa með mig
upp að Hallsteinsnesi og gistum við þar um nóttina.
Um morguninn, þegar við lögðum af stað, heyrðist tölu-
verður norðanstormgnýr, og er við fórum fram hjá Skálanesi
ætluðum við að lenda þar áður en við legðum á Flóann. Þá
var orðið svo hvasst að trillan dró ekki þá ca. 500 metra sem
eftir voru upp að landi. Varð því að hleypa út á Flóann
undan storminum og straumbárunni sem reis hátt upp yfir
bátinn. Ég sat við stýrið vegna þess að Óskar þekkti ekki
leiðina. Grípur hann til þess ráðs, þegar aldan virðist ætla að
flæða yfir afturstafninn, að draga upp rifað stórseglið. Við
það tekur báturinn svo mikla ferð að hann þýtur fram úr
hverri báru án þess að sjór kæmi inn. Þannig sluppum við
heilir á húfi en urðum þó að gista í Skáleyjum þar sem blind-
bylur var að skella á. Daginn eftir hélt ég áfram ferðinni til
Flateyjar og suður.