Breiðfirðingur - 01.04.1999, Side 92
90
BREIÐFIRÐINGUR
það væntanlegt aðeins á Sauðakrók 12 næstkomandi júlímán-
aðar, og mun suma vanta hesta þangað.
Hjer í sýslu er nú ákveðið að halda gleðifund í þjóðhátíðar-
skyni á Staðarfelli 4 næsta mánaðar, og stendur 5 manna
nefnd fyrir ríflegum veitingum móti 2rd borgun af hverjum
sýslubúa er sækja vill þann fund; þar gefst og svo færi til að
halda ræður og stofna heit þjóðinni til gagns. Ef eg tóri og
kemst á þenna fund hefur mér komið í hug að flytja varúðar-
bendingar með tölukorni gegn þeim hvimleiðu vesturflutning-
um hjeðan frá vorri fósturjörð framvegis.
Eg hef nú enn stóra bón til yðar, vinur minn! sem er að
hefja fyrir mig hjá landfógeta einsog í fyrra þá hjálparpeninga,
sem eg vona svo góðs til landshöfðingjans, að honum muni
þóknast að veita mér, móti tilhlýðilegri kvittun mín vegna, því
bæði þarf eg þess með, og líka verður ferðin um eða undir
mánaðamótin hagfelld með Kristjáni mér kunnugum frá Stað
á Reykjanesi, sem brátt verður sendur suður.
Nú hef eg í áformi að koma fjölinni og flosstólnum með
kaupstaðarmönnum út í St(ykkis)hólm til Daníels Thorlacius
bæði í geymslu og hagfelldrar ráðstöfnunar með skipum áfram.
Þjer minnist á andvirði Þorláksbiblíu, ef yður skyldi takast
að selja hana, þá bið eg yður að halda því hjá yður uns eg
fengi vísbendingu frá yður um það. Mig minnir að ritstjóri
Norðanfara hafi í blaði sínu pantað þess konar biblíu? ef hann
yrði hluttakandi stendur vel á með andvirði og færslu hennar,
því eg er útsölumaður á blaði hans.
Ráðgert er að senda hjeðan úr sýslu seint í júlí menn á
Þingvallafund. Skal vera hæfi í því, að hans Hátign konungur
vor muni koma hjer til lands um þann tíma? Skyldi vera von á
Jóni Sigurðssyni? Blöð eru hjer enginn enn komin nje bréf.
Niðurlag virðist vanta.
Hvammi 16. nóvember 1874.
Háttvirti herra skólastjóri J(ón) Arnason
Fyrir yðar heiðraða bréf, ástkæri vin! frá 30ta júní síðastliðna