Fréttablaðið - 09.11.2018, Side 10
Samanbrotinn sími
Samsung kynnti síma sem hægt er að brjóta saman. Er í raun spjaldtölva og
snjallsími í sama tækinu. Þessi nýi sími er ekki sá fyrsti sinnar tegundar en hann
er bæði sá þróaðasti og sá líklegasti til þess að ná almennilegri útbreiðslu.
Það er ekki hægt annað en að segja
að tölvuleikjaunnendur hafi tekið
Red Dead Redemption 2, úr smiðju
Rockstar Studios, opnum örmum. Í
leiknum er spilað í gegnum ævin-
týri útlagans Arthurs Morgan í Villta
vestrinu en þótt leikurinn kallist
númer tvö er á ferðum forsaga fyrri
leiksins, Red Dead Redemption.
Take-Two Interactive, eigandi
Rockstar, hefur greint frá því að á
fyrstu átta dögunum hafi leikurinn
selst í heilum sautján milljónum ein-
taka. Þannig hafi hann selst í fleiri
eintökum en fyrirrennarinn gerði á
átta árum. Samkvæmt frétt Fortune
gerðu greinendur ráð fyrir því að
tíu til tólf milljónir eintaka myndu
seljast á fyrstu þremur mánuðunum.
„Við erum afar ánægð með hvern-
ig þetta gengur. Við höfum selt
meira en sautján milljónir eintaka.
Til þess að setja þá sölu í samhengi
þá eru það fleiri eintök en seljast af
flestum tölvuleikjum alla þeirra staf-
rænu ævi,“ sagði forstjórinn Strauss
Zelnick við Fortune.
Áður hafði fyrirtækið sagt frá
því að leikurinn hafi selst fyrir 725
milljónir dala fyrstu þrjá dagana.
Einungis einn leikur hefur toppað
þá tölu og það er Grand Theft Auto
V, einnig úr smiðju Rockstar.
Gagnrýnendur eru alveg jafn-
hrifnir af Red Dead og aðrir. Sam-
kvæmt meðaltali dóma sem
Metacritic tekur saman fær leikur-
inn 97 af 100 og hefur enginn leikur
fengið betri einkunn í ár. Sé horft
til bestu leikja allra tíma deilir Red
Dead sjötta sætinu með fjölmörgum
leikjum. Enginn hefur fengið 100 stig
en The Legend of Zelda: Ocarina of
Time situr efst með 99. – þea
Ævintýralegar vinsældir
Red Dead Redemption
Tölvuleikjaheimurinn virðist ánægður með Arthur Morgan. Mynd/RocksTAR
Tækni
Á 85 árum hefur HEKLA verslað með raftæki,
vinnuvélar, sjampó, rakvörur, þurrkaðar
apríkósur og bíla, eða löngu fyrir þann
tíma er eðlilegt var að nefna „gjaldeyris- og
innflutningsleyfi“ í bílaauglýsingum og orðið
„jeppi“ var nýyrði í gæsalöppum.
Vörumerki eins og Hudson, Kenwood, Caterpillar, Remington,
Servis, Rambler, International, Land Rover, Bendix og John
Deere voru nánast hilluvara hjá HEKLU þegar vel áraði
á landinu bláa en smám saman færðist fókusinn á bíla
einvörðungu.
Önnur vara s.s. þvottavélar, ísskápar, hrærivélar, dísilvélar
fyrir báta og múgavélar hurfu úr vöruúrvali HEKLU og þá
þótti við hæfi að birta tilkynningar sem þessa í dagblöðum:
Það tilkynnist hér með að frá og með 1. apríl hættum við sölu
á Gillette rakvélablöðum, rakakremi og rakvélum.1956
Slagorðið - hjá Audi er ekkert næstum því 1978 segir meira
en mörg orð og er hverju orði sannara enn í dag. Audi leiðir
rafvæðingu fólksbíla með stöðugri og metnaðarfullri þróun.
Q8 sportjeppinn er áttunda víddin í Audi fjölskyldunni og ber
henni gott vitni, sameinar áður óþekkta tækni, glæsileika,
öryggi og akstursánægju.
Í dag eru 13 grunntegundir Audi bíla í boði og hafirðu tímann
fyrir þér læturðu sérsníða einn að þínum smekk. Audi gengur
ýmist fyrir raforku, bensíni, metan eða dísil.
Framtíðin er óráðin en Audi verður þar í forystu.
Audi Q2 FRÁ 4.950.000 KRAudi A8 Sérpöntun
Audi A3 g-tron FRÁ 4.090.000 KR
Audi A3 FRÁ 4.790.000 KR
Audi A3 e-tron FRÁ 4.560.000 KR
Audi A1 NÝR - væntanlegur
Audi TT FRÁ 8.490.000 KRAudi SQ7 FRÁ 19.990.000 KR HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 · Hekla.is · Audi.is
audi að yðar smekk
komið í bíltúr
Þér finnið alltaf einn Audi að yðar smekk.
Opið á morgun
12-16
Audi A4 FRÁ 6.550.000 KR
Audi Q3 NÝR - væntanlegur
Q8 FRÁ 11.490.000 KR
Audi A6 NÝR - væntanlegur
Audi Q5 FRÁ 8.460.000 KR
Audi e-tron Væntanlegur
Audi A7 TDI FRÁ 12.750.000 KR
Audi Q7 FRÁ 10.980.000 KR
Audi A7 TFSI FRÁ 12.990.000 KR
Audi Q7 e-tron FRÁ 10.990.000 KR
Samsung sýndi á spilin í vikunni og
kynnti loksins, eftir að orðrómur
hafði lengi verið á kreiki, saman-
brjótanlegan snjallsíma sinn. Fyrir-
tækið sýndi símann á fjölsóttri kynn-
ingu og þótt sýningin hafi bæði verið
stutt og afar takmörkuð hafa banda-
rísku tæknimiðlarnir varið heilu
dálkametrunum í umfjöllun um
græjuna.
Tími samanbrjótanlegra síma er
kominn, sagði í umfjöllun CNet.
Hvort sú staðhæfing reynist rétt
veltur á viðtökum neytenda og því
hvort neytendur sjái raunverulegt
notagildi í því að geta brotið síma
sinn saman eða opnað hann eins og
bók og þannig verið með bæði síma
og spjaldtölvu í einu og sama tækinu.
Það sem gerir síma Samsung, sem
talið er að fái nafnið Galaxy X eða
Galaxy F, spennandi er það að utan á
honum er minni 4,5 tommu skjár en
þegar síminn er opnaður eins og bók
eða veski þá birtist 7,3 tommu skjár.
Miðað við það sem sást á kynningu
Samsung, þar sem síminn var sýndur
í greipum kynnisins og baklýsing
takmarkaði hversu vel síminn sást,
eru engar hjarir sem skipta stærri
skjánum í tvennt.
Samkvæmt Samsung er það hin
nýja Infinity Flex Display tækni
sem gerir þetta mögulegt. Skjárinn
er mun þynnri en venjulegir skjáir
og lögunum er haldið saman með
nýju lími sem á að koma í veg fyrir
að skjárinn brotni þótt hann sé
beygður eða brotinn saman „þúsund
sinnum“.
Samsung Galaxy X eða F eða eitt-
hvað allt annað er þó ekki fyrsti
saman brjótanlegi snjallsíminn sem
sést hefur. Í síðustu viku kynnti
Royole síma að nafni FlexPai. Sá
sími mun trúlega aldrei ná viðlíka
útbreiðslu og símar Samsung en er
þó byggður á sömu hugmynd. Stóri
skjárinn var reyndar utan á.
Þá er vert að nefna Axon M, síma
sem ZTE setti á markað í fyrra. Hann
var þó öllu einfaldari útgáfa af
saman brjótanlegum síma og saman-
stóð af tveimur venjulegum skjáum
og voru hjarirnar á milli einkar vel
sýnilegar.
Samkvæmt því sem kom fram á
kynningu Samsung verður síminn
settur í fjöldaframleiðslu á næstu
mánuðum og má búast við því að
hann verði settur á markað árið
2019. Að auki kom fram að í vænd-
um væru til að mynda upprúllanlegir
og teygjanlegir skjáir.
thorgnyr@frettabladid.is
samsung sýndi þennan nýstárlega síma á kynningu í vikunni. Mynd/sAMsung
9 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r10 F r é T T i r ∙ F r é T T A b L A ð i ð
0
9
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
7
-F
E
1
0
2
1
5
7
-F
C
D
4
2
1
5
7
-F
B
9
8
2
1
5
7
-F
A
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K