Fréttablaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 26
E invígið er opið öllum döns-urum óháð dansskólum eða landamærum enda mætti til okkar pólskur dansari nán-ast upp úr þurru og sigraði í waacking-flokknum,“ segir
Brynja Pétursdóttir, eigandi dansskóla
Brynju Péturs, en hún hélt Street-dans-
einvígið, vikulangt partí með böttlum og
erlendum gestakennurum.
Einvígið hefur verið haldið árlega frá
árinu 2012 en þetta er eina keppnin á
landinu fyrir dansara á framhaldsstigi
í öllum street-dansstílum sem iðkaðir
eru á landinu. Einvígið er vikulangt og
er keppt í hiphop, dancehall, waacking,
house, break, popping, top rock og ‘all
styles’. Þátttakendur dansa einn á móti
einum í 40 sekúndur hvor við tónlist sem
er ekki ákveðin fyrir fram því DJ-inn
stjórnar stemningunni. „Við fluttum inn
heimsfrægan DJ sérstaklega til þess að
spila á battlinu. Þekking DJ-sins skiptir
öllu máli því öllum stílunum fylgir viss
tónheimur. Hæfileikar dansaranna eru
svo settir í brennidepil í ‘All Styles’ battl-
inu þar sem reynt er á breidd dansbak-
grunns þeirra því þau þurfa að bregðast
við tónlist frá ýmsum stefnum og gætu
þurft að dansa við t.d. dancehall og funk
í einu og sama battlinu,“ segir hún.
Andrúmsloftið var rafmagnað á battl-
inu, mikill stuðningur meðal dansar-
anna sem eru á aldrinum 16-29 ára og
margir yngri dansarar að horfa á sem
hlakka eflaust til að vera með þegar þau
verða eldri. „Þetta eru einhverjir aktíf-
ustu og mest áberandi ungu dansarar á
Íslandi í dag – það er bara þannig,“ segir
Brynja en nemendur skólans eru orðnir
yfir 600.
benediktboas@frettabladid.is
Óænt tvist frá Póllandi í
danskeppni götustílsins
Stærsta götudanskeppni ársins, svokallað Street-danseinvígið, fór fram í áttunda sinn
með vikulöngu partíi. Þetta er eina keppnin á landinu fyrir dansara á framhaldsstigi í
öllum street-dansstílum. Pólskur dansari mætti upp úr þurru og sigraði í waacking-flokki.
Hver dansari dansar í 40 sekúndur og sáust mörg góð tilþrif.
Sigurvegararnir uppi á sviði, eðlilega glaðbeittir og sáttir eftir úrslitin.
Þ ETTA G E R Ð I ST : 9 . N ÓV E M B E R 1 9 3 2
Gúttóslagurinn í Reykjavík
Kreppan stóð sem hæst árið 1932. At-
vinnuleysi var mikið og sár fátækt. Eftir
mikinn átakafund þar sem slagsmál
urðu ákvað bæjarstjórnin í Reykjavík
að koma á atvinnubótavinnu þótt hún
hefði áður þverneitað að taka upp slíkt
fyrirkomulag.
Þegar líða tók á veturinn fór féð sem
var ætlað til atvinnubótavinnunnar að
verða uppurið. Bæjarstjórnin ákvað þá
að lækka laun þeirra sem unnu atvinnu-
bótavinnu. Verkalýðssinnar mótmæltu
því og ákveðið var að efna til bæjar-
stjórnarfundar 9. nóvember í Góð-
templarahúsinu sem kallað var Gúttó.
Mikill mannfjöldi safnaðist saman
fyrir utan húsið og áheyrendabekkir
voru þétt setnir. Þegar sýnt þótti að
bæjarstjórnin ætlaði ekki að skipta um
skoðun varð háreysti á pöllunum. Ekki
heyrðist mannsins mál og ákveðið var
að slíta fundi. Upphófust þá heiftúðug
slagsmál. Lögreglan var með mikinn
mannskap auk hvítliða en hún mátti
sín lítils gegn margnum og lagði á
flótta. Lögreglumenn voru þá eltir uppi
og barðir til óbóta. Um kvöldið ákvað
ríkisstjórnin að veita fé til Reykjavíkur-
bæjar svo ekki þyrfti að lækka launin.
Þeir sem höfðu sig mest í frammi í
átökunum voru dæmdir í nokkurra
mánaða fangelsi en fyrir þrýsting frá al-
menningi var ákveðið að skilorðsbinda
dómana. – bb
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Arndís Birna Sigurðardóttir
áður Blöndubakka 15,
verður jarðsungin frá Lindakirkju
mánudaginn 12. nóvember klukkan 15.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd.
Halla Guðrún Jónsdóttir Gísli Arnar Gunnarsson
Brynjólfur Gunnar Jónsson
Arndís Lára Jónsdóttir Ebenezer Guðmundsson
Hallgrímur Júlíus Jónsson Berglind Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku fallegi drengurinn okkar, bróðir,
vinur, afa- og ömmustrákur,
Egill Daði Ólafsson
verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju mánudaginn
12. nóvember klukkan 13.00.
Ólafur Vigfússon María Anna Clausen
Andri Ólafsson Sigurlaug Jónsdóttir
Vigfús Ólafsson
Sif Sigþórsdóttir
Marsibil Tómasdóttir
Vigfús Ólafsson
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Arnór Haraldsson
frá Þorvaldsstöðum, Langanesströnd,
Víðilundi 24, Akureyri,
lést á öldrunarheimilinu Hlíð 31. október.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 12. nóvember kl. 13.30.
Júlía Friðriksdóttir
Þórunn Björg Arnórsdóttir Almar Björnsson
Unnur Helga Arnórsdóttir
Eydís Arnórsdóttir Ingimar Tryggvason
afa- og langafabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Brynja Tryggvadóttir
píanókennari, Teigagerði 9,
lést 4. nóvember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 15. nóvember kl. 13.
Egill Sveinsson
Sveinn Yngvi Egilsson Ragnheiður I. Bjarnadóttir
Tryggvi Þórir Egilsson Ásta S. Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Föðurbróðir okkar,
Þórarinn Indriðason
er látinn.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ingunn Karitas Indriðadóttir
Guðný Vigdís Indriðadóttir
Indriði Indriðason
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Þorvarður Gústafsson
bifreiðarstjóri,
Víkurbraut 30, Höfn,
lést á líknardeild Landspítalans
sunnudaginn 28. október. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Már Þorvarðarson Rósa Sólveig Steingrímsdóttir
Þórlaug Inga Þorvarðardóttir Gústav Hjörtur Gústavsson
barnabörn og barnabarnabörn.
9 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U r18 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð i ð
tímamót
0
9
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
8
-1
B
B
0
2
1
5
8
-1
A
7
4
2
1
5
8
-1
9
3
8
2
1
5
8
-1
7
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K