Fréttablaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 09.11.2018, Blaðsíða 20
Þegar níu ára sonur Bennýjar Sifjar Ísleifsdóttur stillti upp myndavél til að njósna um komu jólasvein- anna setti hann af stað óvænta at- burðarás. Úr varð barnabók sem hún skrifaði á legubekk heima í stofu. Heimilið er staður fyrir sam-veru og þar þarf að vera til eitthvað í ísskápnum svo maður fái gott að borða. Svo spillir ekki fyrir að eiga góðan mann sem hefur yndi af því að matbúa sæl kerakrásir ofan í fjölskylduna,“ segir Benný Sif þar sem hún lætur fara makindalega um sig á þægi- legum legubekk í stofunni heima. Á þeim sama góða legubekk skrifaði hún fyrstu tvær skáldsög- urnar sem nú fást brakandi nýjar úr prentsmiðjunni. „Það er vitaskuld lúxuslíf fyrir rithöfund að geta lagst út af með skáldsögur í kollinum og látið þær vakna til lífsins útafliggjandi á hlýrri gæru og í kósíheitum heima. Einveran verður þó stundum aðeins of mikil og því ákvað ég nýlega að fá mér skrifstofu í mið- bænum. Þar get ég unnið með fleirum og haft af þeim félagsskap, sem er uppbyggjandi og nærandi,“ segir Benný. Dreymdi um stóra fjölskyldu Benný Sif er Eskfirðingur sem flutti í Kópavoginn fyrir tólf árum. Hún er með meistaragráðu í þjóðfræði og býr með eiginmanni sínum Óskari Garðarssyni og börnum þeirra fimm. „Mig dreymdi alltaf um að eiga stóra fjölskyldu og finnst yndislegt að hafa mína nánustu í kringum mig,“ segir Benný sem á ellefu ára son og fjórar dætur á aldrinum 19 til 25 ára. „Ég kem sjálf úr sömu sam- setningu á systkinahópi og veit því hvernig heimilislífið gengur fyrir sig. Samkomulagið í systkina- hópnum er með besta móti og strákurinn minn er ánægður að eiga allar þessar systur. Hann á í skemmtilegu sambandi við þær allar en kvartaði lengi yfir því að eiga ekki yngra systkin. Það verður þó alltaf hlutskipti eins í fjölskyld- unni að vera yngstur,“ segir Benný og hlær, enda er hún sjálf yngst sinna systkina. „Stíllinn heima er eflaust svolítið gamaldags en hann er hlýlegur. Það sést að hér býr fólk og yfirbragðið er ekki of stíliserað. Ég er mikið fyrir ljós og lampa en meðvitað farin að draga úr kertanotkun og velja umhverfisvæn kerti. Hugur minn dvelur því við umhverfis- vernd og ég vil nýta húsgögn og heimilismuni sem best. Ég kaupi því fátt nýtt og er ekki týpan sem skiptir um jólaskraut á hverju ári,“ segir Benný og brosir kát á legu- bekknum góða. „Bekkurinn er orðinn tíu ára og er einkar notalegur fyrir lestur. Hann er svolítið minn staður og sérstaklega eftir að ég hófst handa við skrifin, en mér finnst ég hafa unnið í lottóinu í hvert sinn sem ég sé heimilisfólkið sitja í honum með bók í hendi.“ Spennandi rannsóknarvinna Benný Sif segir örlögin hafa ætlað sér að skrifa bækur en að hún hafi ekki komið sér til þess fyrr en nú að tvær fyrstu bækurnar koma út á sama tíma og í smíðum er önnur skáldsaga og önnur barnabók. „Hugmyndin að barnabókinni kviknaði fyrir tveimur árum þegar sonur minn fékk spjaldtölvu sem námsgagn í skólanum. Þegar Stekkjastaur var væntanlegur fyrstur til byggða tók drengurinn upp á því snilldarráði að reyna að njósna um jólasveinana og stillti spjaldtölvunni út í glugga til að taka upp myndir af þeim á nótt- unni, og auðvitað án þess að segja foreldrum sínum frá því,“ segir Benný sem komst nú samt á sporið um rannsóknarvinnu sonar síns. „Þetta stúss á stráknum varð kveikjan að bókinni og þar þróast málin með spennandi og leyndar- dómsfullum hætti,“ segir Benný og vill ekki ljóstra frekar upp um framvindu sögunnar. Jólasveinar í þjóðsögunum Benný þykja jólasveinar skemmti- leg fyrirbæri og bendir á að þeir lifa sterkt í þjóðsögunum okkar. „Við eigum ótal sögur og sagnir um íslensku jólasveinana og þær eru af einhverju sprottnar. Mér finnst því sjálfsagt að halda þjóð- sagnaarfinum á lofti. Krakkar geta líka vel trúað á alvöru jólasveina um leið og þeir koma auga á gervi- jólasveina á jólaskemmtunum. Sem þjóðfræðingur legg ég í ákveðnum skilningi trú á þjóð- sögurnar og hef gaman af sagna- hefðinni um jólasveinana.“ Mætti sjálfri sér Benný er ekki farin að setja upp jólaljós þótt rétt rúmar sex vikur séu til jóla. „Ég hef haldið mig við það að skreyta ekki fyrr en helgina sem fer næst 1. desember eða fyrsta sunnu- dag í aðventu. Mér finnst aðdrag- andinn að jólum yndislegur tími og það verður sérstök tilfinning að taka nú þátt í jólabókaflóðinu í fyrsta sinn,“ segir Benný sem auk barna- bókarinnar Jólasveinarannsóknin teflir fram skáldsögunni Grímu sem hún hlaut nýræktarstyrk fyrir í vor. „Gríma segir af örlögum sjómanns kvenna í austfirsku sjávarþorpi á sjötta og sjöunda áratugnum. Þá kemur nýsköpunar- togari til bæjarins og með honum eitthvað af nýjum skipverjum sem breytir takti bæjarlífsins. Þetta er þorps- og ástarsaga um efni sem hefur lítið verið fjallað um,“ segir Benný sem hlaut sjaldgæft nafn sitt frá Benedikt, eiginmanni Kristínar móðursystur sinnar. „Mömmu þótti Kristín vera of hversdagslegt nafn og lét skíra mig Benný til að gera þeim báðum hátt undir höfði. Við erum nokkrar á landinu sem heitum Benný en ég hef aldrei hitt nöfnu mína. Bara séð bíl með þessu einkanúmeri og fannst ég þá hafa mætt sjálfri mér,“ segir Benný og skellihlær. Njósnað um jólasveinana Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Benný Sif á legu- bekknum góða þar sem fyrstu tvær skáld- sögurnar hennar urðu til. MYND/SIGTRYGGUR ARI Benný teflir fram tveimur nýjum skáldsögum sem eru hennar fyrstu. JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Kemur út þriðjudaginn 27. nóvember. Viltu þú auglýsa í mest lesna jólablaði landsins? Hafðu þá samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins. Sími 550 5077 – serblod@frettabladid.is Skemmtilegt blað sem kemur inn á allar hliðar jólaundirbúningsins. Uppflettirit sem lesendur leita í aftur og aftur. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt auk blað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N Óv e M B e R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 0 9 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 5 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 5 8 -0 7 F 0 2 1 5 8 -0 6 B 4 2 1 5 8 -0 5 7 8 2 1 5 8 -0 4 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.