Fréttablaðið - 09.11.2018, Síða 11
Bandaríkin Með skammbyssu og
reyksprengju að vopni myrti svart-
klæddur árásarmaður tólf gesti
kántríkrár í suðurhluta Kaliforníu
í fyrrinótt og virðist svo hafa svipt
sig lífi. Frá þessu greindi AP í gær
og vitnaði í yfirvöld á svæðinu sem
segðu aukinheldur að ástæða árás-
arinnar væri þeim ekki kunn. Málið
væri til rannsóknar hjá lögreglu.
Lögregla hefur þó borið kennsl á
meintan árásarmann. Hann hét Ian
David Long, var 28 ára og fyrrver-
andi landgönguliði. Geoff Dean, lög-
reglustjóri Ventura-sýslu, sagði við
fjölmiðla að lögregla hefði nokkrum
sinnum haft afskipti af Long. Meðal
annars þegar geðheilbrigðislið lög-
reglu var kallað á heimili hans í
apríl. Þá var Long reiður og með
óráði en var ekki tekinn fastur.
Árásin var sú mannskæðasta í
Bandaríkjunum frá því sautján nem-
endur og kennarar voru myrt í skóla
í Parkland í Flórída fyrir níu mánuð-
um. Einungis hálfur mánuður er svo
frá því að árásarmaður felldi ellefu í
bænahúsi gyðinga í Pittsburgh. – þea
Myrti tólf á krá
í Kaliforníu
FBI á vettvangi. NordIcphotos/AFp
Á 85 árum hefur HEKLA verslað með raftæki,
vinnuvélar, sjampó, rakvörur, þurrkaðar
apríkósur og bíla, eða löngu fyrir þann
tíma er eðlilegt var að nefna „gjaldeyris- og
innflutningsleyfi“ í bílaauglýsingum og orðið
„jeppi“ var nýyrði í gæsalöppum.
Vörumerki eins og Hudson, Kenwood, Caterpillar, Remington,
Servis, Rambler, International, Land Rover, Bendix og John
Deere voru nánast hilluvara hjá HEKLU þegar vel áraði
á landinu bláa en smám saman færðist fókusinn á bíla
einvörðungu.
Önnur vara s.s. þvottavélar, ísskápar, hrærivélar, dísilvélar
fyrir báta og múgavélar hurfu úr vöruúrvali HEKLU og þá
þótti við hæfi að birta tilkynningar sem þessa í dagblöðum:
Það tilkynnist hér með að frá og með 1. apríl hættum við sölu
á Gillette rakvélablöðum, rakakremi og rakvélum.1956
Slagorðið - hjá Audi er ekkert næstum því 1978 segir meira
en mörg orð og er hverju orði sannara enn í dag. Audi leiðir
rafvæðingu fólksbíla með stöðugri og metnaðarfullri þróun.
Q8 sportjeppinn er áttunda víddin í Audi fjölskyldunni og ber
henni gott vitni, sameinar áður óþekkta tækni, glæsileika,
öryggi og akstursánægju.
Í dag eru 13 grunntegundir Audi bíla í boði og hafirðu tímann
fyrir þér læturðu sérsníða einn að þínum smekk. Audi gengur
ýmist fyrir raforku, bensíni, metan eða dísil.
Framtíðin er óráðin en Audi verður þar í forystu.
Audi Q2 FRÁ 4.950.000 KRAudi A8 Sérpöntun
Audi A3 g-tron FRÁ 4.090.000 KR
Audi A3 FRÁ 4.790.000 KR
Audi A3 e-tron FRÁ 4.560.000 KR
Audi A1 NÝR - væntanlegur
Audi TT FRÁ 8.490.000 KRAudi SQ7 FRÁ 19.990.000 KR HEKLA · Laugavegi 170-174 · Sími 590 5000 · Hekla.is · Audi.is
audi að yðar smekk
komið í bíltúr
Þér finnið alltaf einn Audi að yðar smekk.
Opið á morgun
12-16
Audi A4 FRÁ 6.550.000 KR
Audi Q3 NÝR - væntanlegur
Q8 FRÁ 11.490.000 KR
Audi A6 NÝR - væntanlegur
Audi Q5 FRÁ 8.460.000 KR
Audi e-tron Væntanlegur
Audi A7 TDI FRÁ 12.750.000 KR
Audi Q7 FRÁ 10.980.000 KR
Audi A7 TFSI FRÁ 12.990.000 KR
Audi Q7 e-tron FRÁ 10.990.000 KR
Bandaríkin Þótt miðkjörtímabils-
kosningar í Bandaríkjunum séu yfir-
staðnar og kosningabaráttu því lokið
er ekki hægt að tala um að nein ró sé
komin í bandarísk stjórnmál. Í gær,
á fyrsta degi eftir kosningar, var til-
kynnt að Donald Trump hefði farið
fram á og fengið afsögn dómsmála-
ráðherrans Jeffs Sessions.
Samband Trumps og Sessions var
satt best að segja eitrað. Trump var
óánægður með að Sessions hafi lýst
sig vanhæfan til þess að hafa umsjón
með rannsókn Roberts Mueller, sér-
staks saksóknara, á meintu samráði
forsetaframboðs Trumps við rúss-
nesk stjórnvöld um afskipti Rússa af
kosningunum. Rannsóknina sjálfa
kallar Trump svindl og nornaveiðar.
Matthew Whitaker, starfsmanna-
stjóri ráðuneytisins, er nú starfandi
dómsmálaráðherra. Sem slíkur gæti
hann, eða eftirmaður hans, bundið
enda á rannsóknina eða tekið stjórn-
ina af Rod Rosenstein aðstoðar-
dómsmálaráðherra. Whitaker hefur
áður sagt að rannsóknin sé á afar
gráu svæði og þannig í raun tekið
undir með Trump.
Demókratar, sem unnu meirihluta
í fulltrúadeildinni á þriðjudag og
geta þannig sett af stað rannsóknir
á meintum brotum forsetans, hafa
staðið með Mueller og rannsakend-
um hans. Nancy Pelosi, sem líklega
tekur aftur við embætti forseta neðri
deildarinnar, sagði að brottrekstur
Sessions væri augljós tilraun til þess
að losna við Mueller. Flokksmenn
hafa kallað eftir því að Whitaker
lýsi sig sömuleiðis vanhæfan en því
ákalli hefur ekki verið svarað.
CNN greindi svo frá því í gær, og
hafði eftir ónafngreindum heim-
ildarmönnum, að teymi Muellers sé
byrjað að skrifa lokaskýrslu rann-
sóknarinnar. Er því ljóst að rann-
sóknin er á lokametrunum þótt
vissulega sé eftir að loka ákveðnum
köflum. Stærsti hlutinn snýr að störf-
um Rogers Stone, ráðgjafa Trumps,
fyrir framboðið.
Rannsóknin er ekki eina umdeilda
mál gærdagsins í Bandaríkjunum.
Hvíta húsið ákvað að svipta Jim
Acosta, fréttamann CNN, blaða-
mannapassa sínum í Hvíta húsið
og birti Sarah Sanders, upplýsinga-
fulltrúi forseta, myndband þar sem
Acosta virtist slá til konu er hann átti
í rifrildi við Trump á miðvikudag.
Hins vegar hafði verið átt við mynd-
bandið, að sögn bandarískra miðla,
og á því hraðað svo Acosta virðist slá
til konunnar. Útgáfan sem Sanders
deildi er sögð komin frá samsæris-
kenningasíðunni Infowars.
Þá á enn eftir að klára talningu
atkvæða í á öðrum tug kjördæma.
Til dæmis hefur ekki verið skorið úr
um hverjir verða ríkisstjórar Flórída
og Georgíu sem og öldungadeildar-
þingmaður frá Flórída og Arizona
þótt Repúblikanar virðist reyndar
líklegir til að taka öll þau sæti.
thorgnyr@frettabladid.is
Rússarannsóknin sögð í hættu
Breytingar í dómsmálaráðuneytinu eru tilraun til þess að binda enda á rannsókn á meintu samráði forseta-
framboðs Donalds Trump við Rússa, segja Demókratar. Rússarannsóknin er sögð vera á lokametrunum.
Jeff sessions og donald trump á meðan allt lék í lyndi. NordIcphotos/AFp
Ginsburg
rifbeinsbrotin
Greint var frá
því í gær að
Ruth Bader
Ginsburg, frjáls-
lyndur hæsta-
réttardómari
skipuð af Bill Clinton, hefði
dottið á skrifstofu sinni og
brotið þrjú rifbein. Það þýðir að
hún gæti verið frá störfum um
nokkurt skeið. Ginsburg er 85 ára
og því gætu meiðslin verið alvar-
legri en hefði yngri manneskja
lent í sambærilegum meiðslum.
Demókratar hafa að undan-
förnu sagt í nokkru gríni að vefja
ætti henni inn í bóluplast svo
hún haldi heilsu og þurfi ekki að
hætta í hæstarétti. Óttast sem
sagt að Trump fái að skipa sinn
þriðja hæstaréttardómara og
þannig fjölga íhaldsmönnum í
hæstarétti úr fimm í sex af þeim
níu sem skipa réttinn.
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ða a 11f Ö S t U d a G U r 9 . n ó v e m B e r 2 0 1 8
0
9
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
5
7
-F
4
3
0
2
1
5
7
-F
2
F
4
2
1
5
7
-F
1
B
8
2
1
5
7
-F
0
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K