Fréttablaðið - 09.11.2018, Qupperneq 16
Fótbolti Svava Rós Guðmundsdótt-
ir, landsliðskona í knattspyrnu, sló
í gegn með norska liðinu Røa á leik-
tíðinni sem var að ljúka. Lið hennar
sigldi lygnan sjó um miðja deild og
hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar
með 31 stig eftir 10 sigurleiki, tvö
jafntefli og tíu tapleiki. Eitt stig var
dregið af liðinu vegna fjárhagsvand-
ræða félagsins.
Hún raðaði inn mörkum á sínu
fyrsta keppnistímabili með liðinu
og þegar upp var staðið hafði hún
skorað 14 mörk í norsku úrvals-
deildinni. Svava Rós var jöfn tveim-
ur öðrum leikmönnum sem þriðji
markahæsti leikmaður deildar-
innar. Frammistaða hennar hefur
vakið verðskuldaða athygli og hún
býst við því að skipta um félag fyrir
næstu leiktíð.
„Þetta er klárlega mitt besta tíma-
bil á ferlinum. Ég hef aldrei skorað
jafn mikið og mér fannst ég hafa
bætt mig mikið á þessu eina ári. Ég
er sneggri að taka ákvarðanir inni á
vellinum og klára færin betur en ég
gerði áður en ég kom hingað,“ segir
þessi snöggi framherji í samtali við
Fréttablaðið.
„Hérna í Noregi leikur þú oftar
við öfluga andstæðinga en í deild-
inni heima. Af þeim sökum bætir
þú jafnt og þétt leik þinn og verður
sterkari með hverjum leik sem þú
spilar. Það voru ákveðin viðbrigði
að leika með liði sem var ekki í
toppbaráttu og ég er ekki vön því
að tapa jafn mörgum leikjum og
ég gerði með Røa. Það tók svolítið
á andlega en reynslan var heilt yfir
jákvæð,“ segir hún um tímabilið
sem lauk nýverið.
„Mér finnst líklegt að ég færi
mig um set í framhaldinu og það
eru mestar líkur á því að ég endi á
að semja við sænskt félag. Það er
mestur áhugi úr þeirri átt og mér
líst best á að fara þangað. Nú er ég
bara á leiðinni heim í langþráð frí og
mun svo ákveða mig á næstu vikum.
Undirbúningstímabilið bæði í Nor-
egi og Svíþjóð hefst í janúar þann-
ig að það er ekkert stress á því að
ákveða mig,“ segir Svava Rós um
framhaldið hjá sér.
Nýlega var ráðinn nýr þjálfari hjá
kvennalandsliðinu. Svava er spennt
fyrir ráðningunni þrátt fyrir að hún
þekki lítið til Jóns Þórs Haukssonar,
nýs þjálfara liðsins.
„Það er bara spennandi að fá nýja
rödd og nýjar áherslur. Það byrja
allir á núllpunkti núna og það eru
spennandi tímar fram undan. Góð
frammistaða mín með félagsliðinu
ætti að hjálpa mér í því að vera
valin, en svo er það bara undir mér
komið að standa mig á æfingum og
leikjum með landsliðinu til þess
að fá tækifæri þar. Það er allavega
stefnan að fjölga tækifærum mínum
á þeim vettvangi,“ segir landsliðs-
framherjinn um komandi tíma hjá
liðinu. hjorvaro@frettabladid.is
Býst við að spila í Svíþjóð
Frumraun Svövu Rósar Guðmundsdóttar í atvinnumennsku gekk eins og í sögu en hún var markahæsti
leikmaður Røa á tímabilinu sem leið. Hún býst við því að færa sig yfir til Svíþjóðar fyrir næsta tímabil.
Svava Rós vonast til að fá fleiri tækifæri með íslenska landsliðinu á næstu misserum. FRéttablaðið/EyþóR
14
mörk skoraði Svava Rós í
norsku úrvalsdeildinni á
síðasta tímabili.
Nýjast
Domino’s-deild karla
Ka - Haukar 23-30
Markahæstir: Tarik Kasumovic 6, Jóhann
Einarsson 4, Allan Norðberg 3, Áki Egilsnes
3 - Orri Freyr Þorkelsson 11, Daníel Þór
Ingason 5, Atli Már Báruson 3, Adam Haukur
Baumruk 2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2.
Coca-Cola-bikar karla
Keflavík - breiðablik 88-80
Stigahæstir: Michael Craion 26/10 fráköst,
Hörður Axel Vilhjálmsson 22/7 stoð-
sendingar, Javier Seco 15 - Christian Covile
25/9 fráköst, Erlendur Ágúst Stefánsson 17,
Snorri Vignisson 15/11 fráköst.
þór þ. - ÍR 88-92
Stigahæstir: Nikolas Tomsick 23, Halldór
Garðar Hermannsson 21, Kinu Roch-
ford 18/11 fráköst - Justin Martin 27,
Gerald Robinson 18/12 fráköst, Hákon Örn
Hjálmarsson 16/8 stoðsendingar.
Valur - Stjarnan 97-92
Stigahæstir: Kendall Anthony 34/7 stoð-
sendingar, Austin Magnus Bracey 16, Aleks
Simeonov 13/8 fráköst, William Saunders
12 - Paul Jones III 31, Ægir Þór Steinarsson
16, Hlynur Bæringsson 15/11 fráköst.
tindastóll - Grindavík 71-70
Stigahæstir: Urald King 23/14 fráköst,
Brynjar Þór Björnsson 12, Danero Thomas
12/8 fráköst, Dino Butorac 11 - Jordy Kuiper
17/9 fráköst, Sigtryggur Arnar Björnsson 16,
Tieghe Bamba 15/13 fráköst.
Efri
Tindastóll 10
Keflavík 10
Stjarnan 8
KR 8
Njarðvík 8
ÍR 6
Neðri
Skallagrímur 4
Grindavík 4
Haukar 4
Breiðablik 2
Þór Þ. 2
Valur 2
Talsvert mikið
um forföll
Fótbolti Erik Hamrén tilkynnir í
dag leikmannahóp íslenska karla-
landsliðsins fyrir leikina gegn Belgíu
og Katar síðar í mánuðinum. Nokk-
uð er um forföll hjá íslenska liðinu.
Fyrir liggur að Emil Hallfreðsson,
Jón Daði Böðvarsson, Hólmar Örn
Eyjólfsson og Rúnar Már Sigur-
jónsson missa af leikjunum vegna
meiðsla. Þá tekur Ragnar Sigurðsson
út leikbann í leiknum gegn Belgum.
Aron Einar Gunnarsson kemur hins
vegar aftur inn í hópinn. Fyrirliðinn
hefur misst af síðustu fjórum lands-
leikjum vegna meiðsla. Líklegt
þykir að Arnór Sigurðsson, leik-
maður CSKA Moskvu, verði valinn
í A-landsliðið í fyrsta sinn.
Leikurinn gegn Belgíu fer fram í
Brussel 15. nóvember. Það er síð-
asti leikur Íslands í Þjóðadeildinni.
Íslendingar töpuðu fyrstu þremur
leikjum sínum í riðlinum og eru
fallnir niður í B-deild Þjóðadeildar-
innar.
Leikurinn gegn Katar er vináttu-
landsleikur sem fer fram í Eupen í
Belgíu. Það er síðasti leikur íslenska
landsliðsins á árinu 2018. – iþs
Jón Daði verður ekki með í næstu
landsleikjum. FRéttablaðið/aNtoN
Fótbolti Arnór Sigurðsson er bæði
yngsti Íslendingurinn sem spilar
og skorar í riðlakeppni Meistara-
deildar Evrópu. Skagamaðurinn
skoraði mark CSKA Moskvu í 1-2
tapi fyrir Roma í fyrradag. Þetta var
hans fyrsta mark fyrir rússneska
liðið sem hann gekk til liðs við fyrir
rúmum tveimur mánuðum.
Í samtali við Fréttablaðið segir
Arnór að pirringurinn yfir því að
tapa leiknum hafi verið sterkari en
gleðin yfir því að hafa skorað.
„Það var vissulega gaman að skora
og góð tilfinning að sjá boltann í
netinu. Það var hins vegar mjög
pirrandi að markið skyldi ekki skila
stigi. Ég fékk fjölmörg skilaboð eftir
leikinn, en ég átti mjög erfitt með að
gleðjast þar sem ég var mjög sár yfir
tapinu,“ segir Arnór.
Hann er þrettándi Íslendingurinn
sem spilar í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar og fyrsti Skagamaður-
inn síðan Árni Gautur Arason stóð
á milli stanganna hjá Rosenborg
á sínum tíma. Þegar Árni Gautur
lék sinn fyrsta leik í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar, í 3-0 sigri á
Galatasaray 21. október 1998, voru
tæpir átta mánuðir þar til Arnór
kom í heiminn. Hann fæddist
15. maí 1999.
Arnór er aðeins þriðji Íslend-
ingurinn sem skorar í riðlakeppni
Meistaradeildarinnar. Eiður Smári
Guðjohnsen skoraði sjö mörk í 45
leikjum með Chelsea og Barcelona
og Alfreð gerði eitt mark í þremur
leikjum með Olympiacos tímabilið
2015-16. Það var sigurmark gegn
Arsenal á Emirates. Eiður er bæði
lang leikja- og markahæsti Íslend-
ingurinn í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar. Árni Gautur er næstur
honum með 21 leik.
Uppgangur Arnórs hefur verið
með ólíkindum hraður. Til marks
um það lék hann sinn fyrsta leik
fyrir sænska liðið Norrköping
23. ágúst 2017. Aðeins rúmu ári
síðar er hann kominn í byrjunar-
lið CSKA Moskvu og byrjaður að
spila og skora í sterkustu deild
í heimi.
„Ég hef mikla trú á eigin
hæfileikum og vissi það að
þjálfarinn hafði miklar væntingar
til mín. Það voru einhverjir sem
efuðust um að ég ætti að taka þetta
skref þar sem ég var búinn að koma
mér vel fyrir hjá Norrköping í Sví-
þjóð. Ég var hins vegar aldrei í vafa
um að ég gæti brotið mér fljótt leið
inn í byrjunarliðið hérna,“ segir
Arnór sem líður vel í Moskvu.
„Mér hefur gengið vel að aðlagast
bæði borginni og hlutunum hjá
nýju liði. Það hjálpar mér að það
komu margir nýir leikmenn í
sumar og ég er því ekki að reyna að
komast inn í þéttan kjarna. Það eru
fleiri í sömu sporum og ég og menn
hjálpast að við
að aðlög-
u n i n
gangi
e i n s
smurt og mögulegt er. Borgin hefur
komið mér skemmtilega á óvart og
mér líður vel hérna.“
Þrátt fyrir velgengni síðustu
mánaða bíður Arnór enn eftir því
að vera valinn í íslenska A-lands-
liðið. Þeirri bið gæti lokið í dag en
þá tilkynnir landsliðsþjálfarinn
Erik Hamrén hópinn fyrir leikina
gegn Belgíu og Katar síðar í þessum
mánuði.
„Auðvitað vonast ég til þess að fá
sæti í liðinu, en það er lítið annað
sem ég get gert en að standa mig vel
með félagsliðinu mínu. Mér finnst
ég hafa spilað vel undanfarið og við
sjáum til hvort það dugi til þess að
koma mér inn í landsliðshópinn,“
segir Arnór að endingu. – iþs, hó
Aldrei í vafa um að ég gæti komist fljótt í byrjunarliðið
Hraður uppgangur
Arnórs Sigurðssonar
24. mars 2017 - seldur frá ÍA til
Norrköping
23. ágúst 2017 - leikur sinn fyrsta
leik fyrir Norrköping
5. maí 2018 - skorar sitt fyrsta
mark fyrir Norrköping
31. ágúst 2018 - seldur frá Norr-
köping til CSKA Moskvu
19. sept 2018 - leikur sinn fyrsta
leik fyrir CSKA Moskvu
7. nóv 2018 - skorar sitt fyrsta
mark fyrir CSKA Moskvu
arnór Sigurðsson fagnar markinu
gegn Roma. NoRDiCpHotoS/aFp
Ég hef mikla trú á
eigin hæfileikum og
vissi það að þjálfarinn hafði
miklar væntingar til mín.
Arnór Sigurðsson
9 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 F Ö S t U D A G U r16 S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
SpoRt
0
9
-1
1
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
5
8
-2
0
A
0
2
1
5
8
-1
F
6
4
2
1
5
8
-1
E
2
8
2
1
5
8
-1
C
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
8
_
1
1
_
2
0
1
8
C
M
Y
K