Fréttablaðið - 09.11.2018, Page 18

Fréttablaðið - 09.11.2018, Page 18
Franz Gunnarsson er líklega sá eini sem hefur spilað á öllum tuttugu Iceland Airwaves- hátíðunum, sem hann segir að sé í rauninni uppskeruhátíð íslensku tónlistarsenunnar. „Iceland Airwaves snýst um að íslenskir tónlistarmenn komi saman, geri sitt allra besta á tónleikum, setji smá aukafútt í sýninguna og framkomuna og yfirleitt keyra þeir einhver ný pró- grömm,“ segir Franz. „Þannig að þú færð tónlistarmennina í miklu stuði og með nýtt efni.“ Margar litríkar minningar Franz hefur spilað með ýmsum virkum og metnaðarfullum sveitum á ferlinum og fyrir vikið hefur hann endað með því að spila á hverri einustu Airwaves-hátíð. „Sveitirnar sem ég hef starfað í hafa alltaf haft eitthvað fram að færa, annaðhvort verið með nýja plötu eða það hefur verið sóst eftir því að fá okkur til að spila,“ segir Franz. „Hljómsveitirnar hafa svolítið verið að skiptast á milli hátíða. Fyrst og fremst hafa þetta verið Dr. Spock og Ensími. Svo hef ég líka spilað með Cynic Guru, í fyrra spilaði ég með sólóverk- efninu mínu, Paunkholm, og svo hef ég bara spilað með hinum og þessum, þar á meðal fullt af verk- efnum sem ég man ekki einu sinni eftir lengur. Það er erfitt að halda yfirsýn yfir þetta, ég hef spilað með svo mörgum og þetta er svo langur tími.“ Franz hefur lent í ýmsu eftirminnilegu á þessum hátíðum. „Fyrsta Airwaves-ið er mjög eftir- minnilegt. Þar var ég hreinlega næstum búinn að ganga af söngv- aranum dauðum. Ég átti það til á þessu tímabili að fleygja gítarnum mínum þvert yfir sviðið, svona í lokalaginu. Það var einhver árátta,“ segir Franz. „En akkúrat þarna var hann að bakka frá hljóðnemanum og gítarinn flaug hársbreidd fram hjá hausnum á honum. Ég hefði getað örkumlað eða drepið hann þarna og ég hef ekki stundað þetta síðan. Ég gleymi því ekki heldur þegar ég var að spila með nýju og fersku bandi sem þótti mjög heitt á rosagóðum tíma í Listasafninu Franz spilar með Dr. Spock á á Gauknum annað kvöld klukkan 22.50. Þar ætla þeir að spila efni af plötunni sem þeir gáfu út fyrr á árinu. MYND/ANTON BRINK og tölvan með öllu playback- inu bilaði,“ segir Franz. „Það var reynt að ræsa hana svona þrisvar, fjórum sinnum upp og svo var bara gefist upp og gengið út af sviðinu og ekki spiluð nóta. Það var fyrir framan fullan sal af æstum útlendingum sem vildu fá að heyra þetta nýja, heita band, sem hét Atingere. Það var ansi eftirminnilegt.“ Ánægður með þróunina „Hátíðin þróaðist frá því að vera lítil og nett upp í að verða aðeins stærri en hún hefði átt að höndla. Það var verið að fá stór atriði og bæta Höllinni inn í þetta og svona og hátíðin fór að reyna að vera eitthvað annað en hún var í grunninn,“ segir Franz. „Það er held ég í eðli svona hátíða að prófa sig áfram, en mér sýnist hún núna komin aftur á þann stað sem hún var í byrjun. Hún er aftur svona lítil hátíð sem kynnir ný, ung og upp- rennandi atriði í bland við eldri rostunga eins og Dr. Spock. Ég er líka spenntur að sjá hvaða áhrif það hefur á hátíðina að draga úr „off venue“ tónleikum og setja meiri áherslu á hátíðina sjálfa,“ segir Franz. „Off venue var orðið rosalega stór hluti af hátíðinni og tók mikið af athyglinni. En þegar fólk er að spila á mörgum tónleik- um áður en kemur að aðaltónleik- unum á Airwaves, þá er kannski ekki mikill kraftur eftir. Þannig að ég vonast til að Airwaves-kvöldin sjálf verði orkumeiri en áður.“ Spilar á Gauknum á morgun Í ár spilar Franz á Airwaves með sveitinni Dr. Spock á Gauknum annað kvöld, laugardaginn 10. nóvember, klukkan 22.50. „Við ætlum að spila efni af plötu sem við gáfum út snemma á þessu ári og hafa gaman af,“ segir Franz. „Svo ætla ég bara að gera eins og ég geri yfirleitt rétt fyrir hátíð og hlusta á spilunarlista Airwaves á Spotify og þefa þannig upp það sem mér þykir markverðast og langar að sjá. Franz segist spenntur fyrir að sjá félaga sína í Warmland á sviði. „Það eru Hrafn, söngvarinn úr Ensími, og Arnar, kenndur við Leaves,“ segir Franz. „Þeir eru með mjög skemmtilegt verkefni saman og ætla að gefa út plötu bráðum, en lögin þeirra hafa gert það gott í útvarpinu undanfarið. Ég held að það verði helvíti sexí.“ PJ Harvey og Sparta standa upp úr Franz hefur séð mörg hundruð tónleika á Airwaves á síðustu 20 árum, þannig að honum finnst erfitt að segja hvað ber hæst. „En á síðustu árum myndi ég segja að PJ Harvey hafi staðið upp úr. Hún hefur verið í uppáhaldi lengi og það var æðislegt að sjá hana loks- ins og það á Íslandi,“ segir Franz. „Það var líka mjög flott þegar hljómsveitin Sparta, sem var meðal annars skipuð meðlimum úr At The Drive In, spilaði á Gauknum. Þetta var Dr. Spock, Mínus og Sparta, hin heilaga þrenning. Það var mjög heitt og sveitt kvöld!“ Bíður eftir símtali frá Krumma Talandi um Mínus, Krummi í Mínus hefur rætt við Franz um samstarf í tengslum við kántrí- plötu sem Krummi er að vinna í. Franz segist spenntur fyrir sam- starfinu. „Við ræddum hvort ég ætti ekki að koma og gera einhvern galdur,“ segir Franz. „Þannig að ég hendi boltanum bara aftur til hans Krumma; hvenær á ég að mæta?“ Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Hljómsveitin Dr. Spock hefur verið starfandi síðan á 10. áratug síðustu aldar og gaf út nýjustu plötuna síns, Leður, fyrr á þessu ári. MYND/BRYNJAR SNÆR 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . N Óv e M B e R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R 0 9 -1 1 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 5 8 -1 B B 0 2 1 5 8 -1 A 7 4 2 1 5 8 -1 9 3 8 2 1 5 8 -1 7 F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 8 _ 1 1 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.