Stjarnan - 01.06.1919, Side 10

Stjarnan - 01.06.1919, Side 10
42 STJARNAN. endur hans lífið með gleði. Boðskapur þeirra er ritaður í þessari bók. Post- ularnir vísa til spámannanna, og spá- mennirnir vísa til sálmanna og lögmáls- ins, sem gefið var frá fjallatindum Sinais. þa.nnig förum vér til baka í tímann, bók úr bók, þangað til að vér komum til hinnar fyrstu Mósebókar sem ekki vísar til neinnar annarar bókar, og skiljum vér þá að í þessari bók erum vér komnir að uppsprettunni. Sagan um lynghænsnin Yér verðum að skoða efnið frá öllum hliðum og þá sérstaklega frá þeirri hlið sem mótbárurnar koma. Menn elska mótmælin og svo segja þeir að það séu erfiðleikar, fjarstæði, villur og ósam- ræmi í biblíunni. })ér hafið allir heyrt þess konar staðhæfingar. Einu sinni kom uppgjafa prestur til mín og sagði að biblían gæti ómögulega verið sönn, því í henni var sagan, sem Móses ritaði um iynghænsnin. Israel langaði í kjöt svo Drottinn sendi þeim Lynghæsni til að borða og féllu þau yfir herbúðirnar svo sem dagleið í allar áttir og þau lágu á jörðinni tvær álnir á hæð. Og' mað- urinn hafði í eigu sinni vantrúarblað, sem prentað var í Boston, þar sem reikn að var út að þegar lyngliæsnunum væri skift meðal fólksins, myndi hver maður fá 2,888,643 busheh Og að hver aum- ingja Israelíti yrði að borða 69,620 busliel af lynghæsnum hverja máltíð í heilan mánuð, og þess vegna var biblían ekki sönn. þetta er þá kjötfæðan sem gjörir þessa menn svo vitra. Eg sagði við þennan mann, að biblían segði ekki neitt þess konar. Hann sagði að hún gjörði, svo eg bað liann að finna stað- inn og lesa. Og þegar þíi biður vantrú- armann að finna ritningargrein er hann vanalega í vandræðum. Hann gat ó- mögulega fundið staðinn, svo eg tók biblíuna og sýndi honum 4. Mós. 11. kap og þar, í staðinn fyrir að finna fuglana hrannaða eins og eldivið, tvær álnir á hæð á jörðinni, er sagt, að Drottinn flutti fuglana frá sjónum og varp þeim yfir herbúðirnar “um tvær álnir 'frá jörðu. ” það er að segja, í staðinn fyrir að láta þá flúga svo hátt að eng- inn gat náð til þeirra, lét hann þá flúga aðeins tvær álnir frá jörðinni, svo að allir gátu veitt þá. En þessi vantrúarmaður hafði hlaðið fuglunum í eina hrúgu tvær álnir á hæð á svæði, sim náði yfir 40 enskar ferhyrnings- mílur. Eins og eg skyldi segja frá að eg sæi hóp af grágæsum flúgja eins hátt og kirkjuturn og svo einhver annar staðhæfa að þær væru þjappaðar saman 100 fet á hæð á jörðinni. þetta er sýn- ishorn röksemdaleiðslu vantrúarmann- anna þegar þeir reyna að sýna fram á að biblían sé ekki ábyggileg. Fyrirsagnir biblíunnar sannar 1 fyrirsögnum ritningarinnar sjáum vér alvitran Guð, sem getur horft inn í framtíðina og kunngjört hið ókomna. Vér getum það ekki. þú getur ekki sagt hvað mun bera við næstu viku eða næsta ár. “Andarnir” geta ekki sagt hver mun verða næsti forsetinn í Banda ríkjunum eða næsti ráðlierra Islands. þeir geta sagt mikið um hinn liðna tíma. þeir geta sagt þér hvað amma þín hét, hvað skrifað stendur á legsteini hennar, og segja þér ættartölu þína. þeir geta talað með mikilli nákvæmi um hið liðna, því djöfullinn þekkir fortíð- ina, en þeir kunna ekki að kunngjöra hið ókomna. Eg heyrði einu sinni anda- trúarmiðil segja fyrir hvenær hún mundi deyja. Hún dó líka eftir fá-

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.