Stjarnan - 01.06.1919, Page 17

Stjarnan - 01.06.1919, Page 17
STJARNAN. 49 j I i Marg-ar einlægar sálir, sem þrá þekk- ingu á Guði og hans vilja, vita ekki hvernig þær eiga að byrja á-því námi. Rf hinn kæri iesari skyldi vera í tölu þeirra er hann beðin að reyna þetta: Kyntu þér nöfnin á bókunum í biblíunni og lærðu utanbókar í hvaða röð þær koma hver eftir aðra. t. d. Matteus, Markús, Lúkas, Jóhannes, Postulasagan Rómverjabréfið, Korintubréfin, o.s. frv. þetta gerir þér léttara að finna texta sem vitnað er í. Bið til Drottins hátt og í hljóði: “Ó Guð, hjálpaðu mér að skilja þitt orð, gefðu mér náð og kraft til að hlýða þér og feta í Jesú fótspor. ” Byrjaðu svo að lesa fáeinar mínutur í ritningunni á hverjum degi. Menn geta skilið það. Guðs vilji mönnum viðvíkjandi er að allir verði hólpnir og komist til þekking ar á sannleikanum. 1. Tim. 2: 4. Ilvernig getum vér öðlast eilíft iíf? “þetta er hið eilífa líf, að þeir þekki þig einan sannan Guð og þann sem þú sendir, Jesúm Krist. ” Jóh 17:3. Sá sem trúir á soninn mun ekki giatast, heldur hafa eilíft líf. Sjá Jóh.3: 16. Hvernig getur maður orðið sæll og hamingusamur í þessu lífi? Jesús segir: “Sælir tru þeir sef heyra Guðs 0"ð og varðveita það.” Lúk. 11: 28. Biblían, kenning Krists og spámannanna er Guðs orð. “Eftir að Guð forðum hafði talað til feðranna oftsinnis og með mörgu móti íyrir munn sinna spámanna, hefir hann á þessum síðustu tímum til vor talað fyrir soninn.” Ileb. 1: 1. Jesús f j í *:♦ býður oss að ransaka ritningarnar. “Ransakið ritningarnar......þær eru það, sem vitna um mig. Jóh. 5: 39. Hvaða gagn er í slíkri ransókn? “Trúin kemur af heyrninni og heyrnin fyrir Guðs orð.” Róm. 10: 17. Með þekkingu á ritningunni og hlýðni við Guðs boðorð geta menn uáð luvðsta stigi fullkomnunar og öðlast sanna mentun. “Öll ritning er innblásin af Guði og nytsöm til sannfæringar gegn mótmælum, til leiðréttingar, til ment- unar í réttlæti, svo Guðs maður sé al- gjör og til als góðs verks hæfilegur. ” 2. Tirn. 3: 16, 17. Hvernig stendur á því að fjöldi manna fer á mis við þá blessun, sem Guð er fús til að veita öllum fyrir Jes- úm Krist? jteir vilja ekki heyra Guðs orð, trúa því ekki og færa sér það ekki í nyt. Jesús segir að ritninginn vitni um sig. “Samt viljið þér ekki korna til mín svo þér hafið lífið. Jóh. 5: 40. Menn segja oft að það sé ómögulegt að skilja biblíuna, einkum spádómana. Sýndu sönnr ástundun við lestur hennar eins og menn, sem læra túngumál eða stunda aðrar námsgreinar. Ritað er: “Sæll er sá, sem les þessi spádómsorð, og þeir sem heyra þau og geyma það sem í þeim er skrifað” Opinb.l:3. þetta. er trygging fyrir því að menn geta skil- ið; því að enginn er sæll af að lesa eða heyra það, sem liann skilur ekkert í. Sömuleiðis sýnir Dan 12: 10. að þeir geta skilið sem leggja sig eftir því. Hefir þú reynt þetta S. Johnson

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.