Stjarnan - 01.06.1919, Síða 25

Stjarnan - 01.06.1919, Síða 25
STJARNAN. 57 rannsóknir með tilliti til upphafs heims- menningarinpar hafi leitt í ljós, að eng- inn villumannalýður hefir komist í tölu mentaðra þjóða án þess að öðlast hjálp frá öðrum. þessi sannreynd veitir get- gátu þróunarkenningarinnar og hinna hærri krítik banahögg; getgátunni um að allar kynkvíslir hafi sæði guðdóm- legrar menningar í sjálfum sér—að tím- inn sé sá eini kennari, sem þeir þurfi með. Sóðalegir, óþverralegir, sjúkir og sveltandi villimajnnalýðir hafa haft lít- ið gott af heimsmenningunni afsíðis frá kristindóminum. Heimsmenning án kristindóms kennir aðeins skrælingj- anum að bæta löstum hins hvíta manns við sína eigin. 1 dag er ekki ‘hin dimma Afríka’ þar sem hinn hvíti maður aldrei hefir komið, heldur þar sem hvíti maðurinn hefir dvalið lengst, án kristindóms. Kristur sendi ekki lærisveina sína út um heiminn til að prédika heims menning fyrst og svo reyna að kristna menn. Tilraunir biskupsins. Hinn enski biskup Colenso var hinn Höfðingjasonur fyrsti viðurkendi kristniboði, sem reyjidi að menta villimenn upp á heims- ins vísu og svo að kristna þá. Hann valdi sér tólf drengi af hinni æðstu kyn- kvisl me'ðal Zulumanna til þess að veita þeim tilsögn í heimsmenningu fyrst, þó hann af ásettu ráði vanrækti að gefa þeim kristindómskennslu, hélt hann stöðuglega og samvizkusamlega áfram í fleiri ár að vekja hið mannlega hyggju vit og starfsemina lijá þeim. Hinir næmu Afríkumenn tóku miklum fram- förum á stuttum tíma. Að lokum, þegar biskupinn hélt að þeir væru nógu mentaðir gaf hann þeim fararleyfi. Hann sagði þeim þá, að mentun þeirra væri ófullkomin nema þeir meðtækju Krist og faðnaðarerind- ið. Hann bað þá um að stunda krist- indómsnám. Með góðgirnishvötum og kærleiksuppörvun reyndi hann að koma þeim til að vera, en alt var árangurs- laust. Næsta morgun fóru þeir allir til baka til moldarkofa sinna og endurnýj- uðu sitt uppliaflega villimannalíf. þeirra eina þakklætismerki var að skilja eftir Norðurálfufötin, sem hinn örláti biskup hafði gefið þeim. Vitnisburður vantrúarmanns 1 mótsetningu við þessa tilraun til að menta skrælingja er það athugavert og uppfræðandi að lesa um áhrif kristin- dómsins á villimenn í ferðalýsingu hins mikla vantrúarmanns, Charles Darwin. þegar hann sigldi kring um hnöttinn á skipinu “ Beagle ” þegar hann var bú- inn að samlíkja hinum heiðnu Eldlands búum við hina kristnu landa þeirra komst hann þannig að orði: “það var undantekningarlaust hin markverðasta áhrifamesta sýn, sem eg nokkurn tíma sá. Eg mundi aldrei liafa trúað að það væri svo mikill mis- munur á skrælingjanum og hinum ment-

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.