Stjarnan - 01.02.1921, Blaðsíða 15
STJARNAN
31
STJARNÁN
kemur út mánaöarlega.
Útgefendur : The Western Canadian Union Conference of S.D.A .
Stjarnan kostar $1.50 um áriS í Canada, Bandaríkjunum og á Isiandi
fBorgist fyrirfram).
Ritstjóri og Ráðsmaður : DAVÍÐ GUÐBRANDSSON
Skrifstofa: 302 Nokomis Building, Winnipeg, Manitoba, Canada.
Talsími: A-42H
Fyrir tveimur árum byrjaði maSur
nokkur, J. M. Simmons að nafni, að
smíða hin svokölluðu “ouija iboard” í
einu litlu herbergi í Chicago. Nú hefir
hann stóra verksmiðju, sem nær yfir
44,000 ferhyrningsfet. Hann notar meir
en eina miljón feta af efnivið á ári
hverju til að smíða þessi borð úr. Árið
sem leið smiðaði hann hálfa miljón
“ouija boards”. Þetta ár gjörir hann
ráð fyrir að smíða eina miljón af þess-
konar boröum. Mr. J. M. Simmons er
orðinn “ouija board” kongur. Hver er
afleiðingin af framleiðslu 'hans? Svar:
EyðilögS heimili svo þúsundum skiftir,
brjálaðar og veiklaðar manneskjur svo
hundruðum þúsunda skiftir og guSleys-
ingjar svo miljónum skiftir. Á ávöxtun-
um má þekkja tréS.
Hinn nafnfrægi hyggjuvitsmaður,
Thomas Edison, nefnir þessi horð óvís-
indaleg elikföng, svo hann hefir i hyggju
aS finna upp vél, sem getur fullnægt
kröfumi vísindannaf'?) til þess aS með-
taka skeyti frá hinurn illu öndum. sem
tala til mannanna gegn um þess konar
tæki. Mun það vafalaust flýta fyrir
eyðileggingu trúarlífsins meðal mann-
anna. “Þegar mannsins sonur kemur,
mun hann þá finna trú á jörðinni?”
(Lúk. 18:8). Hin ofannefnda hreyfing
er fyrirsögð í spádómum ritningarinnar
(2. Tess. 2:7-12; Op. 16: 13-13J. Hve
bjart skín ekki ljósiS frá hinurn slitnu
blöSum bibhunnar. Kæri lesari, láttu
það Ijós skina inn í ihjarta 'þitt og þú
munt rata heim í faðm föðursins.
TIL KAUPBNDA!
Þessa dagana meðtökum vér mörg góð
bréf frá kaupendum Stjörnunnar og er
þaö rnjög svo ánægjulegt aö lesa þau.
En við og viS kemur það fyrir, aS kaup-
andi sendi oss borgun fyrir blaSiS og
gott bréf, en hefir algjörlega gleymt að
skrifa nafn sitt undir. Vér verðum þess
vegna aS minna alla kaupendur á aS rita
nöfn sín undir og væri gott ef þaö væri
einnig gjört á umslagiö. HiS sama verð-
um vér að segja þeirn, sem hætta viS
blaðiS, annars er uppsögnin ógild.
Virðingarfylst,
D. G.