Stjarnan - 01.02.1923, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.02.1923, Qupperneq 5
STJARNAN 21 hameds, ('.Múham. dó 8. júní 632 e. Kr.) gaf hermönnum sínum áSur en þeir lögSu af staS í stríð: “Þegar þér Drottins vegna heyiö stríð, þá hegðið ySur mannúðlega, og sýnið ekki neinum manni fyrirlitningu. Flekkiö ekki skildi ySar meS blóöi kvenna og barna. Grandið ekki pálmaviðartrjánum, og brennið ekki akrana; höggvið ekki niður aldintrén og ræ'nið ekki mei.ru af búsmala manna, en þér þurfið yður til fæðis. Þegar þér gjörið samning eða lofið einhverju, þá haldið drengilega loforð yðar. Ef þér af ferðum yðar hittið trúaða menn, seni búa i klaustrum, fráskildir liávaða heimsins í því skyni, að þjóna Guði í kyrð og næöi, skuluð þér láta þá með öllu óáreitta. ' Hinsvegar skuluð þér að engu vægja þeim, sem fótumtroðr. alt gott og göfugt, nema þeir annaö- hvort taki Múhamedstrú eða borgi skatt.” “Þeim var svo boöið, að þeir dræpi þá ekki, heldur kveldi þá í fimm mán- uði; þessi kvöl var eins og þegar högg- orrnur stingur mann. Á þeim tíma munu menn leita dauðans, en ekki finna han; 'þeir munu æskja sér aö deyja, en dauðinn mun forðast þá.” Opinb. 9: 5-6. Hér segir Jóhannes skýrum orSum, að þessir .ófriðarseggir munu þjá lönd- in, sem þeir unnu, með kvölum i fimm mánuði. Eftir spámannlegum tíma- reikningi eru fimrn mánuðir sama sem eitt hundrað og fimtíu ár. Samkvæmt tímatali Gyðinga hefir hver mánuður þrjátíu daga, og dagur í spádómunum stendur fyrir heilt ár. (4. Mós. 14: 34; Esek. 4:6.) Á þessu tímabili leit- uðu margir menn dauðans; því þeir vildu heldur deyja en að þola kvalir af þessum illræðismönnum. “Engispretturnar voru svipaðar hest- um, búnum til bardaga; á höfðum þeirra voru eins og gullkórónur, og á- sjónur þeirra voru eins og á mönnum, þær höfðu hár eins og kvennmannshár, og tennur þeirra eins og Ijóns tennur. Brynjur þeirra voru eins og járnbrynj- ur, og vængjaþyturinn eins og vagna- gnýr, þá margir hestar hlaupa fram til bardaga.” Opinb. 9 —9. Hestar Arabanna eru hinir fegurstu og fljótustu í heiminum. Gullkórónurn- ar benda á hin skrautlegu höfuöföt þeirra. Þeir létu hár sitt vaxa óhindr- að og liðast niöur um herðar eins og á kvennmönnum. Þó voru þeir alls ekki kvennlegir yfirlits, heldur harð- ýðgislegir og svipþungir, þess vegna er sagt, aö tennur þeirra væru eins og ljónstennur. “Þær fengispretturnar) höföu hala lika höggormasporSum og brodda í (spjót þeirra). Þær höfðu vald til að granda mönnum meS hölunum (spjót- unum) í fimm mánuSi.” Opinb. 9:10. Eins og vér áður höfum bent á, var hinn fyrsti konungur eða soldán (Op- inb. 9:11.) Tyrkja Ottoman eSa Os- man. GjörSi hann áhlaup á borgina 'Nikomedia og tók hana 27. júlí 1299. Viövíkjandi þessum atburði, segir sagn- fræðingurinn Gibbons: “ÞaS vaú 27. júlí (1299) eftir tíma- reikningi kristinna manna, aS Ottoman gjörði áhlaup á Nikomediu; og það, aS timinn er svo greinilega gefinn, virðist benda á, að einhver hefði fyrirfram þekkingu á hinum fljóta og skaSlega vexti þessarar ófreskju.” — Decline and Fall og the Roman Empire—VI. bindi, bls. 226. Þannig fóru Múhamedstrúarmenn að ofsækja hina kristnu fyrir alvöru, eftir að hafa fengið sinn fyrsta konung eða soldán fOpinb. 9:11.^ 27. júlí árið 1299, og héldu samkvæmt spádóminum áfram i fimm mánuöi eftir spámannlegum timareikningi, eða eitt hundrað og fim- tíu ár, til 27. júlí 1449. Þá byrjar nýtt timabil í sögu Tyrkja, sem í Opin- berunarbókinni er nefnt

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.