Fréttablaðið - 17.11.2018, Qupperneq 2
Veður
Hvöss sunnanátt og áfram vætu-
samt á sunnan- og vestanverðu
landinu en þurrt og bjart veður á
köflum norðaustanlands. Hiti víða 8
til 13 stig. sjá síðu 42
Blakan á íslensku
595 1000
Gefðu góðar minningar
Jólagjafabréfin komin í sölu!
10.000 = 15.000 20.000 = 30.000
stjórnsýsla Nýdoktor í lögum
segir að fleiri sjónarmið en ein-
göngu þröng stéttasjónarmið lög-
manna og dómara þurfi að koma
fram um fyrirhugaðar breytingar á
reglum um birtingu dóma á netinu.
Dómstólasýslan hefur boðað til
málþings um efnið en hvorki fjöl-
miðlar né fræðasamfélagið eiga þar
fulltrúa meðal frummælenda heldur
munu dómarar af öllum dómstig-
um, formaður lögmannafélagsins
og forstjóri Persónuverndar ræða
efnið, ásamt dómsmálaráðherra
sem flytur ávarp í upphafi fund-
ar. Greiða þarf 4.500 krónur fyrir
að sitja fundinn.
„Það var ákveðið að kynna fyrst
þessi frumvarpsdrög í samfélagi lög-
fræðinga til að ná samtali þar en á
síðari stigum eru menn alveg reiðu-
búnir til að taka þetta fyrir á öðrum
vettvangi,“ segir Ólöf Finnsdóttir,
framkvæmdastjóri dómstólasýsl-
unnar. Hún segir tilkynningu um
fundinn verða senda út þegar nær
dragi og fjölmiðlafólki sé að sjálf-
sögðu velkomið að sitja fundinn.
Töluverð umræða hefur orðið að
undanförnu um frumvarpsdrögin
og af henni hafa sprottið vanga-
veltur um hvort nýjar reglur muni
verða til þess að takmaka frétta-
flutning af dómsmálum og störf
dómstóla verði þannig ekki eins
opin almenningi og áður.
„Það er full ástæða til að bjóða
fleirum að þessu samtali, enda fleiri
sjónarmið sem þurfa að komast
að í málinu en þröng stéttasjónar-
mið,“ segir Haukur Logi Karlsson,
nýdoktor í lögum við Háskólann í
Reykjavík.
Hann segir að auk blaðamanna
Dómararnir ræða sín á
milli um birtingu dóma
Hvorki blaðamenn né háskólamenn eiga fulltrúa á fundi dómstólasýslunnar
um birtingu dóma á netinu. Það kostar 4.500 krónur að sitja fundinn. Fleiri
sjónarmið þurfa að heyrast en þröng stéttasjónarmið segir nýdoktor í lögum.
Hæstiréttur á sinn fulltrúa meðal frummælenda, Benedikt Bogason, hæsta-
réttardómara og stjórnarformann dómstólasýslunnar. FréttaBlaðið/Eyþór
Framsögumenn fundar dómstólasýslunnar
Sigríður Á. andersen
dómsmálaráðherra (ávarp).
Benedikt Bogason
hæstaréttardómari og formaður
stjórnar dómstólasýslunnar.
Sigurður tómas Magnússon
landsréttardómari og formaður
réttarfarsnefndar.
ingibjörg þorsteinsdóttir
héraðsdómari og formaður
Dómarafélags Íslands.
Berglind Svavarsdóttir
lögmaður og formaður Lög-
mannafélags Íslands.
Helga þórisdóttir
forstjóri Persónuverndar.
sem helsta tengiliðs dómskerfisins
við almenning hafi akademían
einnig slíku upplýsingahlutverki
að gegna.
„Fyrir fræðimenn innan lögfræð-
innar eru dómar ákveðin frumgögn
og heftur aðgangur að þeim hefði
náttúrulega áhrif á okkar störf,“
segir Haukur. Því vanti ekki ein-
göngu fulltrúa fjölmiðla á fundinn
heldur einnig fræðasamfélagsins.
Í auglýsingu fundarins er velt upp
spurningum um hver sé tilgangur
birtingar dóma; hvort hún sé ætluð
sem hluti refsingar brotamanna og
hvort tilgangur frumvarpsins sé að
loka alveg fyrir upplýsingar um þá
sem fá dóma fyrir afbrot eða hvort
því sé aðeins ætlað að loka fyrir
nafnbirtingu á netinu í boði dóm-
stólanna.
adalheidur@frettabladid.is
Dómsmál Landsréttur staðfesti
í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
um að íslenska ríkið sé bótaskylt
vegna slyss sem hjúkrunarfræðingur
varð fyrir við umönnun sjúklings á
Landspítalanum.
Slysið varð með þeim hætti að
hjúkrunarfræðingurinn, kona, var
að aðstoða mjög þungan og veikan
einstakling við að klæða sig í sokka.
Hann féll af fullum þunga ofan á
hjúkrunarfræðinginn, sem sat á
hækjum sér. Við þetta meiddist
konan í baki. Hún hafði viðvarandi
bakverki eftir slysið. Ríkið var dæmt
til að greiða 900 þúsund krónur í
málskostnað en ekki var í þessu máli
tekist á um fjárhæð bótanna. – bg
Fékk þungan
sjúkling á sig
Slysið varð á landspítalanum.
Þeir Haraldur H. Guðmundsson, Pétur Ingvi Leósson og Gísli Einarsson fögnuðu bæði degi íslenskrar tungu og opnun nýrrar verslunar Nexus í
Glæsibæ í gær með því að kynna útgáfu myndasagna um Leðurblökumanninn á íslensku. Blöðin um ofurhetjuna vinsælu verða gefin út undir nafninu
Blakan. Fyrsta blaðið verður tuttugu blaðsíðna fríblað en svo kemur fyrsta stóra blaðið, um eða yfir hundrað síður, í desember. FréttaBlaðið/Eyþór
utanríkismál Hundrað milljónum
verður varið til neyðaraðstoðar í
Jemen. Þetta kom fram í tilkynningu
sem utanríkisráðuneytið birti á vef
sínum í gær. Þar sagði enn fremur að
framlagið skiptist jafnt á milli Mat-
vælaáætlunar (WFP) og Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNICEF).
„Neyðin er slík að hver mínúta
skiptir máli. Við bregðumst við með
auknum stuðningi við stofnanir á
vettvangi, annars vegar til að sporna
gegn yfirvofandi hungursneyð og
hins vegar að úrbótum í vatnsmálum
til að verjast útbreiðslu smitsjúk-
dóma,“ var haft eftir Guðlaugi Þór
Þórðarsyni utanríkisráðherra.
Styrjöldin í Jemen hefur haft mikl-
ar og neikvæðar afleiðingar fyrir íbúa
og er, að því er utanríkisráðuneytið
sagði, talið að um 75 prósent íbúa hafi
bráða þörf fyrir mannúðaraðstoð.
Þá vofir hungursneyð yfir og skæðir
sjúkdómar gera vart við sig. – þea
100 milljónir
til Jemens
Björgunarsveitir Björgunarsveitir
á Suðvesturlandi höfðu í gærkvöldi
farið í þrjú útköll vegna veðurs.
Aðgerðastjórnir á höfuðborgar-
svæðinu voru í viðbragðsstöðu
vegna krapprar lægðar sem gekk
yfir landshlutann.
Davíð Már Bjarnason, upplýs-
ingafulltrúi Landsbjargar, sagði
í samtali við Fréttablaðið í gær-
kvöldi að í Þorlákshöfn hafi björg-
unarsveitir verið ræstar út vegna
foks á lausamunum, í Reykja-
nesbæ var útkall vegna þaks sem
var að fjúka af húsi og þá óskaði
lögreglan í Hafnar firði eftir aðstoð
vegna foks. – bg
Útköll vegna
veðurofsans
1 7 . n ó v e m B e r 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-5
E
4
4
2
1
6
A
-5
D
0
8
2
1
6
A
-5
B
C
C
2
1
6
A
-5
A
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K