Fréttablaðið - 17.11.2018, Síða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST
ramisland.is
TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT, LARAMIE EÐA LIMITED.
RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 6.395.000 ÁN VSK.
KR. 7.929.800 MEÐ VSK.
RAM 3500 LIMITED 40” BREYTTUR
umhverfismál Hellinum Arnarkeri,
sem illa er farinn af sívaxandi ágangi
ferðamanna, hefur verið lokað.
„Við sitjum eins og saklausir
afdalabændur og leyfum hlutunum
að gerast í kring um okkur. Það er
kjánalegt að gera ekkert í að verja
þessar gersemar sem við erum að
státa af,“ segir Árni B. Stefánsson,
formaður hellaverndunarnefndar
Hellarannsóknarfélags Íslands.
Síðastliðinn sunnudag fjarlægðu
fulltrúar Hellarannsóknarfélagsins
járnstiga sem þeir höfðu sett ofan í
op Arnarkers fyrir átján árum. Var
það gert í samráði við landeiganda.
Arnarker er á landi í eigu vatns-
átöppunarfyrirtækis athafnamanns-
ins Jóns Ólafssonar í Ölfusi.
„Stígurinn að hellinum er orðinn
eitt drullusvað sem og hellisbotninn
sjálfur,“ segir í bókun markaðs- og
menningarnefndar Ölfuss. Slysa-
hætta sé við hellinn.
Markaðsnefndin segir leyfi fengið
frá landeiganda til þess að lagfæra
stíginn og setja nýjan stiga. Óskað
hafi verið eftir styrk í framkvæmda-
sjóð ferðamannastaða. Þá kveðst
nefndin jákvæð gagnvart því að
einkaaðilar byggi þar upp þjónustu.
Árni B. Stefánsson segir ástandið
við Arnarker langt í frá einsdæmi.
Ferðaþjónustufyrirtæki beiti fyrir
sig gömlum lögum frá þjóðveldisöld
um frjálsa umferð um land.
„Það nær náttúrlega engri átt að
selja aðgang að landi annarra án
samráðs við þá og eyðileggja fyrir
viðkomandi. Það er ekki sanngjarnt,“
segir Árni og lýsir slæmri stöðu.
„Hellarnir eru viðkvæmustu nátt-
úruminjar landsins og þeir hafa
orðið fyrir óheyrilegum skaða – af
mannavöldum eingöngu. Skreyttu
hellarnir eru eins og gjafavöruversl-
un sem er opin til sjálfsafgreiðslu.
Það hverfur allt sem hægt er að taka,“
útskýrir Árni.
Að sögn Árna þarf að verja hell-
ana en hafa þá samt sýnilega. Ferða-
þjónustuaðilar láti sig málið engu
varða og stjórnvöld þurfi því að taka
á hlutunum. Leggja þurfi á gjöld svo
ferðaþjónustan taki þátt í nauðsyn-
legum fyrirbyggjandi aðgerðum og
mótvægisaðgerðum.
„Það sem ég sé fyrir mér er að
ferðamenn og ferðaþjónustufyrir-
tæki hætti að riðlast á þessu við-
kvæma landi okkar eins og rófulaus
hundur á lóðatík,“ segir Árni. „Ég
hef með fullri alvöru farið fram á að
menn leggi tíu prósent af brúttótekj-
um af ferðum í valda hella í varnar-,
rannsókna- og fræðslusjóð. Þeir segja
að það komi ekki til greina: ekki tíu
prósent, ekki eitt prósent, ekki nokk-
urn skapaðan hlut.“ gar@frettabladid.is
Riðlist ekki á náttúrunni eins
og rófulausir hundar á lóðatík
Árni B. Stefánsson hellakönnuður segir stjórnvöld þurfa að grípa inn í til að vernda hella fyrir ágangi.
Ferðaþjónustan vilji aðeins græða sem mest á náttúrunni og hafni að greiða til hellaverndar. Stjórnvöld
þurfi því að grípa inn í málið. Hellinum Arnarkeri var lokað á sunnudag. Ölfus er jákvætt fyrir einkarekstri.
Ari Matthíasson
þjóðleikhússtjóri
vill ekki tjá sig
um hin gagn-
rýndu drög að
frumvarpi um
sviðslistir. Lýtur
gagnrýnin meðal
annars að auknum
völdum þjóðleikhússtjóra og er
vísað til þess að hann verði allt að
því einvaldur og þjóðleikhúsráð
gert nánast valdalaust.
Jóhanna Sigurðardóttir
fyrrverandi forsætisráðherra
spurði hvort Katrín
Jakobsdóttir léti
fyrirhugaðar
skerðingar til
öryrkja yfir sig
og sinn flokk
ganga. Jóhanna
segir málið prófstein
á Katrínu og VG.
Jón Gnarr
fyrrverandi borgarstjóri
lét farga Banksy-
mynd í eigu sinni.
Jón fékk verkið
að gjöf þegar
hann var borgar-
stjóri og hékk það
uppi á vegg í skrif-
stofu hans í ráðhúsinu.
Eftir að bent var á að hann hefði
tekið það með sér heim lét hann
eyðileggja það.
Þrjú í fréttum
Gagnrýni,
prófsteinn
og förgun
Arnarker, um fimm hundruð metra hellir, í landi Hlíðarenda í Ölfusi. Mynd/GuðMundur BrynjAr Þorsteinsson
Það sem ég sé fyrir
mér er að ferða-
menn og ferðaþjónustufyrir-
tæki hætti að riðlast á þessu
viðkvæma landi okkar eins
og rófulaus
hundur á
lóðatík.
Árni B. Stefánsson,
formaður hella-
verndunarnefndar
Tölur vikunnar 11.11.2018 – 17.11.2018
5 þúsund
íbúðir tæplega eru á framkvæmda-
stigi á 32 stöðum í Reykjavík,
samkvæmt nýrri
greiningu um fast-
eignamarkaðinn
sem Capacent
hefur unnið fyrir
borgina.
100
tilkynningar um innbrot
í ökutæki bárust lögregl-
unni á höfuð-
borgarsvæðinu
frá 1. október
til 15. nóv-
ember.
307
hafa sent inn um-
sókn um undan-
þágu til íslensks
ríkisborgara-
réttar til Alþingis.
Hefur fjöldi um-
sókna fjórfaldast
á síðustu þremur
árum.
21tilkynning um kynferðisbrot barst lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu í október.
30 prósent fleiri en meðaltal síðustu 6 mánaða.
120 milljóna
króna aukningu er gert ráð fyrir í fjárlaga-
frumvarpi ársins 2019 til
að auka aðstoð við
þingflokka og
þingmenn. 17
aðstoðarmenn
eiga til dæmis
að deilast
niður á þingflokkana.
2,13 %
var hlutfall heildarútgjalda til rannsókna og
þróunarstarfs á árinu 2017 af vergri landsfram-
leiðslu. Var upphæðin 55,7 milljarðar króna.
Hellarannsóknarfélagið
var stofnað 25. nóvember
1989.
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 l a u G a r D a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-7
2
0
4
2
1
6
A
-7
0
C
8
2
1
6
A
-6
F
8
C
2
1
6
A
-6
E
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K