Fréttablaðið - 17.11.2018, Blaðsíða 11
Við látum framtíðina rætast. Passat Variant, station útgáfa +100.000 kr.
5 ára ábyrgð fylgir fólksbílum HEKLU að uppfylltum ákvæðum ábyrgðarskilmála. Þá er að finna á www.hekla.is/abyrgd
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isHöldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum
Góð ástæða til að skipta um orkugjafa.
Á Volkswagen Passat GTE kemstu flestra þinna ferða á rafmagninu einu saman en í lengri ferðum tekur sparneytin
bensínvélin við. Þú þarft aldrei aftur að fara inn í kaldan bíl því að með snjallsímaforritinu Car-Net getur þú kveikt á
miðstöð og rúðuhitara hvaðan sem er. Kíktu í sýningarsal okkar á netinu þar sem opið er allan sólarhringinn
www.hekla.is/vefverslun. Komdu í reynsluakstur og upplifðu snerpuna. Opið í dag milli kl. 12 og 16!
Megi raforkan vera með þér.
Til afhendingar strax!
Tilboðsverð
4.520.000 kr.
Listaverð 4.890.000 kr.
Afsláttur 370.000 kr.
Volkswagen Passat GTE
Þú stjórnar bílnum
þínum með Car-Net.
Bandaríkin Að minnsta kosti 631
er enn saknað í norðurhluta Kali-
forníu vegna Camp-skógareldanna
sem þar hafa riðið yfir. Tala látinna
hækkar hvern einasta dag og stóð
í 63 í gær. Að því er kom fram á vef
Los Angeles Times í gær hefur ekki
tekist að hefta útbreiðslu eldanna
nema um fjörutíu prósent svo ljóst
er að ástandið er enn alvarlegt. Þá
hafa fleiri eldar kviknað í Kaliforníu
undanfarna daga.
Eins og áður hefur komið fram
varð bærinn Paradise einna verst úti
í hamförunum. Bærinn í rauninni
gjöreyðilagðist og brann til grunna.
Brock Long, stjórnandi hamfaravarna
Bandaríkjanna, sagði að tilfelli Para-
dise væri eitt það versta sem hann
hefði nokkurn tímann séð og BBC
hafði eftir embættismönnum að þörf
væri á allsherjarenduruppbyggingar-
starfi sem gæti tekið fleiri ár að klára.
Til viðbótar við tölu látinna í
norðurhluta ríkisins hafa þrír farist
í Woolsey-eldunum sem geisa í Los
Angeles- og Ventura-sýslum í suður-
hluta ríkisins. Betur hefur tekist að
hefta útbreiðslu þeirra en hún hefur
þó ekki verið heft nema að 62 pró-
sentum. – þea
Hundraða er
enn saknað
Tjónið er mikið. NordicphoTos/AFpBretland Ríkisstjórn Íhaldsflokks-
ins í Bretlandi undir forsæti Theresu
May var vafalítið orðin nokkuð tóm-
leg eftir að tveir af æðstu ráðherrum
hennar og tveir undirráðherrar
sögðu af sér vegna óánægju með
nýsamþykkt drög að Brexit-samn-
ingi sem kynnt voru í vikunni. May
brást við stöðunni í gær og skipaði
nýja ráðherra í allar stöðurnar.
Í stað Dominics Raab er þing-
maðurinn Stephen Barclay nú orð-
inn ráðherra útgöngumála. Skipanin
kom nokkuð á óvart enda Barclay
lítt þekktur í Bretlandi. Hann hafði
verið í minna ráðherraembætti og
barðist fyrir útgöngu á sínum tíma.
Athyglisvert er að Barclay vann áður
hjá bankanum Barclays en vert er að
nefna að hann tengist ekki bankan-
um að öðru leyti, þrátt fyrir nafnið.
Svo virðist þó sem May hafi gengið
tiltölulega illa að fylla sæti Raabs.
Breska ríkisútvarpið BBC greindi frá
því á vef sínum að umhverfismála-
ráðherranum Michael Gove, einum
leiðtoga Brexit-sinna í aðdraganda
þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2016,
hefði verið boðinn stóllinn og sömu-
leiðis þingmanninum Geoffrey Cox.
Þeir eiga hins vegar báðir að hafa
hafnað boði forsætisráðherrans.
Amber Rudd var svo skipuð nýr
vinnu- og eftirlaunamálaráðherra
eftir afsögn Esther McVey. Skipan
Rudd er langt frá því að vera óum-
deild enda sagði hún af sér fyrr á
þessu ári sem innanríkisráðherra
vegna hins svokallaða Windrush-
hneykslis. Málið snerist um ólög-
mæta fangelsun og brottflutning
63 einstaklinga, sem margir hverjir
voru breskir ríkisborgarar og komu
til landsins á áttunda áratugnum.
Verkamannaflokksliðar voru
óánægðir með skipan Rudd og sagði
Jon Trickett, einn skuggaráðherra
flokksins, að Rudd hefði gert starfs-
andann í innanríkisráðuneytinu
óbærilegan og myndi nú taka við
fjandsamlegu vinnu- og eftirlauna-
málaráðuneyti. „Það lýsir örvæntingu
veikburða forsætisráðherra að skipa
smánaðan fyrrverandi ráðherra sem
þurfti fyrir ekki svo löngu að segja af
sér vegna hneykslis,“ sagði Trickett.
Sjálf sagði Rudd að hún væri afar
hamingjusöm með tækifærið. Starfið
væri mikilvægt og stórt. Aðspurð um
mögulegt vantraust á forsætisráð-
herrann sagði Rudd: „Nú er ekki rétti
tíminn til að rísa gegn leiðtoga okkar.
Við eigum þess í stað að standa
saman og hafa það í huga hverjum
við eigum að þjóna, það er að segja,
öllu landinu. Af og til fæ ég áhyggjur
af því að samstarfsmenn mínir ein-
blíni of mikið á þingið sjálft.“
Til þess að vantraustsatkvæða-
greiðsla um Theresu May fari fram
þurfa 48 þingmenn Íhaldsflokksins
að senda hinni svokölluðu 1922-
nefnd flokksins bréf þar sem þess
er krafist. Það hafa áberandi harðir
Brexit-liðar nú þegar gert, til að
mynda Jacob Rees-Mogg. Þeim
þröskuldi hafði ekki verið náð í gær
en samkvæmt BBC höfðu um 20
sagst opinberlega lýsa yfir vantrausti
á May. Einn blaðamaður miðilsins
sagði á Twitter að hugsanlega næðist
48 manna markið á mánudag.
thorgnyr@frettabladid.is
May fyllir í tóma ráðherrastóla
Forsætisráðherra Bretlands skipaði fjóra nýja ráðherra. Nýr ráðherra útgöngumála er tiltölulega óþekktur
en verður líklega hliðhollur May. Nýr ráðherra vinnu- og eftirlaunamála er öllu þekktari og umdeildari.
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, er á harðahlaupum þessa dagana vegna útgöngunnar. NordicphoTos/AFp
f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ða l a 11l a U G a r d a G U r 1 7 . n ó v e m B e r 2 0 1 8
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
A
-8
5
C
4
2
1
6
A
-8
4
8
8
2
1
6
A
-8
3
4
C
2
1
6
A
-8
2
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K