Fréttablaðið - 17.11.2018, Síða 24
mynd/gunnarfreyr.com
Leikarinn John Rhys-Davies hefur upp raust sína með því að fara með erindi úr dramatísku ljóði eftir enska leik- og ljóðskáldið John Dryden,
Beneath a myrtle shade, frá 1670 eða
þar um bil. Drynjandi röddin kallar
fram gervi tortryggna dvergsins úr
þríleik J.R.R. Tolkien um The Lord of
the Rings sem hann sló í gegn fyrir
að túlka. Rhys-Davies er hins vegar
nokkuð hávaxinn maður og hefur
fallegan velskan hreim. Hann er
ljóðelskur maður.
„Þetta er eitt af mínum uppá-
haldsljóðum. Ég hef alltaf haft
mikinn áhuga á ljóðlist,“ segir Rhys-
Davies er við göngum í átt að bíó-
sal númer þrjú. Við tyllum okkur í
myrkrinu meðan hann lýkur einu
erindinu: „Þú getur ei roðnað, því ég
get ei séð,“ og við það kvikna ljósin
í salnum. Það kæmi ekki á óvart að
þessi velski listamaður lumaði á
ljóði frá miðöldum fyrir hvert tilefni.
„Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem
til Íslands og mér líkar það alveg
afskaplega vel. Þetta er elskuleg þjóð
og hér hefur verið tekið vel á móti
mér,“ segir hann.
„Íslendingar þekkja sögu sína
vel og vita mikið um forfeður sína.
Það er sjaldgæft fyrir marga en
afskaplega mikilvægt. Margir vita
ekki hvaðan þeir koma en allir þeir
Íslendingar sem ég hef hitt vita það
og það er dásamlegt. Þið berið ekki
með ykkur þau einkenni eyjar-
skeggja að vera þröngsýn og and-
snúin utanaðkomandi, heldur hlý
og vinaleg. Þið eruð nútímafólk og
kraftmikil og svo ég vitni í T.S. Elliot,
góð blanda af hinu gamla og nýja.“
Kynntist Shakespeare ungur
John Rhys-Davies er fæddur árið
1944 í Salisbury í Wiltshire á Eng-
landi en ólst upp að hluta í Wales.
Móðir hans var hjúkrunarkona og
faðir hans var vélaverkfræðingur og
nýlendustjóri.
„Ég var sendur í heimavistarskóla
í Cornwall á Englandi aðeins níu
ára gamall. Ég var nýkominn heim
frá Afríku þar sem fjölskyldan bjó
á meðan faðir minn gegndi starfi
nýlendustjóra. Ég ólst því upp að
mestu í villtri náttúru. Í Afríku hafði
ég verið frjáls og í raun aldrei lært að
leika við önnur börn. En í skólanum
voru aðrir nýlendudrengir sem ég
tengdi við,“ segir Rhys-Davies.
„Ég var hins vegar uppreisnar-
barn og þoldi ekki þennan skóla.
En þetta var góður skóli sem færði
mér Shakespeare. Hið magnaða
leyndarmál um börn er að finna það
sem þau hafa ástríðu fyrir. Þegar ég
kynntist Shakespeare öðlaðist ég
orðaforðann fyrir reiði mína.“
Í skólaleikritum fór hann með
stór hlutverk, meðal annars Óþelló
og fleiri. Leiðin lá síðan í háskólann
í Vestur-Anglíu þar sem hann var
einn af 105 nemendum sem fengu
inngöngu. Þar stofnaði Rhys-Davies
The Dramatic Society og eðlilega
fékk hann þar öll bestu hlutverkin.
Hann giftist fyrri eiginkonu sinni,
Suzanne Wilkinson, árið 1966 áður
en hann kláraði námið í skólanum
og kenndi á meðan í eitt ár við
grunnskóla í Norfolk á meðan Suz-
anne kláraði sitt nám. Í kjölfarið
fékk hann inngöngu í konunglega
leiklistarskólann í London.
Leikarinn eignaðist tvo syni með
Suzanne en þau skildu árið 1985.
Suzanne fékk Alzheimer en hann
annaðist hana þar til hún lést árið
2010. Í dag býr Rhys-Davies með
fjölmiðlakonunni Lisu Manning og
eiga þau 12 ára dóttur.
„Enginn ætti að gifta sig fyrir þrí-
tugt,“ segir hann kíminn. „Ég fékk
síðan vinnu í leikhúsinu og hóf störf
á mánudagsmorgni 28. júlí 1969.
Ég fagna því fimmtíu ára leiklistar-
afmæli á næsta ári.“
Heillaður
af uppruna
og eðli
mannsins
John-Rhys Davies er nýfarinn frá Íslandi, en
hér dvaldi hann við tökur á kvikmyndinni
Shadowtown. Blaðamaður mælti sér mót
við hann í Bíó Paradís þar sem framtíðar-
verkefni og mikilvæg gildi í lífinu voru rædd.
Fyrsta kvikmynd Jóns
Shadowtown er íslensk og kanad-
ísk samframleiðsla en íslenskur
framleiðandi myndarinnar er Hlín
Jóhannesdóttir hjá Ursus Parvus.
Shadowtown er fyrsta kvik-
mynd leikstjórans Jóns Gústafs-
sonar sem skrifaði einnig handrit
myndarinnar ásamt Karolinu
Lewicka. Jón bjó í Kanada í átta ár
og hefur tengingar þangað sem
sem leiddu af sér samstarfið.
Myndin fjallar um unga konu
sem erfir hús ömmu sinnar
sem hún hitti aldrei, í borg sem
hún hefur aldrei séð. Í trássi við
vilja móður sinnar leggur hún í
ferðalag til að öðlast skilning á
sársauka fortíðarinnar, en með
þeirri ákvörðun veldur hún upp-
námi og róti sem hún kemst ekki
lifandi frá nema með aðstoð
látinna forfeðra og -mæðra. Með
aðalhlutverk fer Brittany Bristow,
en hún á ættir að rekja til Íslands.
Þetta vaR góðuR skóli
sem fæRði méR shake-
speaRe. hið magnaða
leynDaRmál um böRn
eR að finna Það sem Þau
hafa ástRíðu fyRiR.
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-A
3
6
4
2
1
6
A
-A
2
2
8
2
1
6
A
-A
0
E
C
2
1
6
A
-9
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K