Fréttablaðið - 17.11.2018, Qupperneq 35
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Emma var
nýlega út-
nefnd einn af
fjörutíu fram-
tíðarleiðtogum
í skemmtiferða-
skipaiðnaðinum
í heiminum.
MYND/SIGTRYGGUR
ARI
Emma Kjartansdóttir, deildar-stjóri skemmtiferðaskipa-deildar Iceland Travel, var
nýlega útnefnd einn af fjörutíu
framtíðarleiðtogum í skemmti-
ferðaskipaiðnaðinum í heiminum.
Valið var úr yfir 100 tilnefningum
og niðurstaðan tilkynnt á Seatrade
ráðstefnunni í Lissabon í sept-
ember. „Þetta er ánægjulegur og
hvetjandi heiður,“ segir Emma.
Hún hefur starfað hjá Iceland
Travel í tíu ár. Hún tók til starfa
um það leyti sem skemmtiferða-
skipadeildin var stofnuð og tók
þátt í uppbyggingu hennar. „Ég
hef síðan flakkað aðeins innan-
húss en var svo ráðin deildarstjóri
skemmtiferðaskipadeildarinnar
árið 2016. Þar starfa nú tíu manns
á veturna en tuttugu á sumrin
þegar aðalvertíðin stendur yfir.
Aðspurð segir Emma starfið
afar fjölbreytt, skemmtilegt og
krefjandi en deildin tekur á móti
mörg þúsund erlendum ferða-
mönnum sem koma hingað til
lands á skemmtiferðaskipum á
hverju ári.
„Við störfum í tuttugu og tveim-
ur höfnum um allt land og höfum
verið með í kringum 150 þúsund
farþega í ferðum á okkar vegum
á ári,“ upplýsir Emma. Hún segir
Bjartsýni í greininni
Emma Kjartans-
dóttir heldur utan
um skemmti-
skipadeild
Iceland Travel.
Hún hlaut al-
þjóðlega viður-
kenningu fyrir vel
unnin störf.
mikinn fjölda skipafélaga koma
hingað til lands og að Iceland
Travel bjóði farþegum þeirra upp á
ýmiss konar ferðir. „Við erum með
dagsferðir út frá öllum höfnum en
líka ferðir þar sem gist er yfir nótt.
Þá er talsvert um farþegaskipti þar
sem farþegar fljúga til landsins og
byrja siglinguna sína í Reykjavik
eða á Akureyri.“
Emma segir boðið upp á ýmsar
uppákomur í kringum komu
skipanna og að sífellt sé verið að
bæta við nýjum afþreyingarmögu-
leikum. „Í fyrra vorum við til að
mynda með svokallað „President’s
Cruise“ en þá er forseti viðkom-
andi skipafélags með um borð og
boðið upp á siglingu fyrir sérstaka
vildarvini. Við vorum með Eldborg
tvísetna og flott prógramm með
Grétu Salome svo dæmi sé nefnt.“
Emma situr í stjórn Cruise
Iceland sem eru hagsmunasamtök
fyrir aðila sem koma að skemmti-
ferðaskipaiðnaðinum á Íslandi.
Þar er unnið að ýmsum umbóta-
verkefnum og meðal annars að því
að kynna hafnir, byggja þær upp
og taka nýjar í notkun. Við vinnum
meðal annars með Umhverfis-
stofnun og AECO-samtökunum en
á meðal verkefna er að búa til
leiðarvísa fyrir leiðangursskip yfir
hvað má og hvað ekki í íslenskum
höfnum.
Emma lærði ferðamálafræði
á Nýja-Sjálandi og þó hún hafi
ekki endilega ætlað sér að starfa
í skemmtiferðaskipaiðnaðinum
sér hún ekki eftir því að hafa fetað
þá slóð. „Það ríkir mikil bjartsýni í
greininni og mikið um að verið sé
að smíða ný skip enda falla mörg
hinna eldri ekki að nýrri um-
hverfis löggjöf sem tekur gildi árið
2020. Það eru því spennandi tímar
fram undan.
Jarðböðin við Mývatn eru vel þekkt og vinsæl enda unaðsleg jafnt sumar sem vetur. Þær eru fleiri
heitu náttúrulaugarnar hér á Íslandi sem hægt er að heimsækja allt árið um kring. MYND/AUÐUNN
Svona gæti
útsýnið verið
úr heitum potti
eða laug úti í
hrímhvítri nátt-
úrunni að vetri
til. MYND/ERNIR
Þó sumir kvíði skammdeginu á Íslandi eru aðrir sem gleðjast yfir tækifærunum sem í því
felast. Það er til dæmis hægt að
fara út í rökkrinu, leggjast í heita
laug og skoða norðurljósin og
stjörnurnar. Þessa iðju er bæði
hægt að stunda í sundlaugunum
víðsvegar um landið en þau hug-
rökkustu, sem láta sig ekki muna
um að klæðast og afklæðast við
lágt hitastig geta aukið enn meira
á ánægjuna með því að leita uppi
einhverjar af þeim fjölmörgu heitu
náttúrulaugum sem fyrirfinn-
ast í öllum landsfjórðungum. Á
veturna er mælt með að kynna sér
aðstæður vel áður en lagt er í nátt-
úrulaugaleit þar sem aðstæður geta
verið talsvert aðrar en á sumrin. Til
dæmis getur verið erfitt að komast
að laugunum og einnig hált í
kringum þær. En þegar norður-
ljósin leiftra fyrir ofan höfuðið og
jarðheitt vatnið gælir við líkamann
er það allt þess virði.
Á Vestfjörðum eru fjölmargar
laugar. Má þar nefna Pollinn á
Tálknafirði, Hellulaug við Flóka-
lund og Reykjafjarðarlaug rétt hjá
Bíldudal. Þar er hægt að skipta
um föt í litlum kofa og notalegt að
liggja og láta sig dreyma á köldum
vetrarkvöldum.
Á Norðurlandi, nánar tiltekið í
Mývatnssveit, er aldagömul hefð
fyrir því að nýta jarðvarmann með
því að baða sig í heitum laugum.
Jarðböðin í Mývatnssveit eru auð-
vitað vel þekkt og vinsæll áfanga-
staður ferðamanna en Stóragjá er
líka heimsóknar virði. Hún liggur
inni á milli stórra kletta og til að
fara niður í hana þarf að fara niður
tvo stiga. Engin búningsaðstaða
er á svæðinu, en hægt er að leggja
fötin frá sér upp við klettana.
Ráðlegt að ráðfæra sig við landeig-
endur í Reykjahlíð áður en farið er
Í hlýju vatni við norðurljós
Á Íslandi eru fjölmargar heitar náttúrulaugar sem njóta má jafnt sumar sem vetur. Það ber þó
að hafa í huga að aðgengi að laugunum getur verið torvelt og því afar mikilvægt að fara varlega.
ofan í þar sem aðstæður til að fara
í gjána eru ekki alltaf jafn ákjósan-
legar.
Á Austurlandi má finna náttúru-
laugina að Laugarfelli sem er um
72 km frá Egilsstöðum en hún er
vinsæl jafnt sumar sem vetur. Við
laugina standa nokkrir skálar og í
einum þeirra er búningsaðstaða.
Laugin er stór og rúmar nokkuð
marga og er hitastig hennar jafnt
bæði sumar og vetur.
Í nágrenni Hafnar í Horna-
firði, nánar tiltekið á Hoffelli,
hefur verið komið fyrir nokkrum
skemmtilegum heitum pottum
undir kletti. Vatnið er kannski
ekki mjög heitt en umhverfið þeim
mun skemmtilegra.
Við rætur Eyjafjalla er svo ein
þekktasta náttúrulaug landsins,
Seljavallalaug, friðuð útilaug
sem er næstum hundrað ára. Það
tekur um 15 mínútur að ganga
að lauginni frá veginum og þar
eru búningsklefar fyrir þá sem
það kjósa. Laugin er steypt og
umhverfið einstaklega fallegt og
ævintýralegt.
Er ráðstefna á döfinni?
R ÁÐSTEFNUR
Við hjá Iceland Travel Ráðstefnum höfum áratuga
reynslu af skipulagningu ráðstefna og funda.
Við bjóðum uppá alhliða þjónustu í tengslum
við ráðstefnur og fundi.
radstefnur@icelandtravel.is
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
A
-B
C
1
4
2
1
6
A
-B
A
D
8
2
1
6
A
-B
9
9
C
2
1
6
A
-B
8
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K