Fréttablaðið - 17.11.2018, Page 38

Fréttablaðið - 17.11.2018, Page 38
Sérfræðingur í fráveitumálum Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings í fráveitumálum á sviði náttúru, hafs og vatns. Í boði er krefjandi starf í frjóu umhverfi sérfræðinga þar sem áhersla er lögð á framsýni, samstarf og árangur í þverfaglegri teymisvinnu. Helstu verkefni » Stjórnsýsla fráveitumála sem fellur innan starfsviðs Umhverfisstofnunar samkvæmt lögum og reglugerðum. » Verkefni sem falla innan verksviðs Umhverfisstofnunar og tengjast meðhöndlun seyru og vörnum gegn mengun vatns. » Verkefni sem tengjast stjórn vatnamála. » Gerð leiðbeininga, umsagna, gagnaskil og samstarf við hagsmunaaðila. » Erlent og innlent samstarf sem tengist stjórn vatnamála og fráveitumálum Ítarlegri upplýsingar um starfið, helstu verkefni og hæfniskröfur til þess er að finna á starfatorg.is og umhverfisstofnun.is/storf-i-bodi Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2018. Lausar kennarastöður vegna forfalla Staða umsjónarkennara í 1. bekk og umsjónar­ kennara í 9. bekk þar sem aðalkennslugreinar eru íslenska og danska. Umsóknarfrestur er til 1. desember en ráðið er í stöðurnar frá 1. janúar 2019 og út skólaárið. Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með 510 nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans http://www.grindavik.is/grunnskolinn. • Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla sem eru metnaðarfullir, og góðir í mannlegum samskiptum, með skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra leiða í skólastarfi. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar­ félaga og Kennarasambands Íslands. Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í síma 420­1200. Framkvæmdastjóri Laxar Fiskeldi ehf. er fyrirtæki sem stundar laxeldi á Íslandi. Fyrirtækið er að meirihluta í eigu Måsøval Eiendom, sem er norskt fjölskyldufyrirtæki sem hefur 45 ára reynslu af laxeldi. Fyrirtækið rekur tvær seiðaeldisstöðvar að Bakka og Fiskalóni í Ölfusi auk þess sem landstöð er starfrækt í Þorlákshöfn. Auk þess eru Laxar Fiskeldi með sjókvíaeldi í Reyðarfirði þar sem fyrirtækið hefur leyfi til að framleiða allt að 6.000 tonn af laxi í sjókvíum á þremur stöðum en fyrirhuguð framleiðsla félagsins á Austfjörðum til lengri tíma litið mun nema um 25.000 tonnum. Grundvallarhugsun Laxar Fiskeldi er að reka eldisfyrirtæki þar sem þekking er í fyrirrúmi en jafnframt fjárhagslegur styrkur til að takast á við erfiðleika. Aðalskrifstofa Laxar Fiskeldi er í Reykjavík. Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 512 1225 og einnig Lars Måsøval, stjórnarformaður (lars@masoval.no) í síma +47 9183 8684. Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2018. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf á ensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Kostur að umsækjandi hafi reynslu af íslensku viðskiptalífi • Stjórnunarreynsla í sjóeldi/laxarækt er æskileg • Kunnátta í ensku og íslensku, talaðri og skrifaðri. Kunnátta í norsku er kostur • Leiðtogahæfni og reynsla af teymisvinnu • Greiningarhæfni og auga fyrir smáatriðum • Drifkraftur og þrautseigja Helstu viðfangsefni: • Ábyrgð á öllum land- og sjóeldisstöðvum fyrirtækisins • Þróun á skipulags- og ferlamálum og fyrirtækjamenningu • Stefnumótun og aðgerðaáætlanir í samráði við stjórn • Undirbúningur og innleiðing umbóta í samráði við framkvæmdastjórn • Markmiðasetning og eftirfylgni í rekstri • Myndar og ræktar góð samskipti við samfélagið og viðeigandi hagaðila • Þróun á virðisaukandi ferlum fyrir framleiðsluna Laxar Fiskeldi ehf. býður upp á spennandi tækifæri fyrir öflugan einstakling til að taka að sér starf framkvæmdastjóra fyrirtækisins á Íslandi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af laxeldi ásamt þróun og uppbyggingu fyrirtækja. Hér er um að ræða áhugavert tækifæri fyrir réttan aðila til að leggja sitt af mörkum í þróun fyrirtækis sem á sér bjarta framtíð. Framkvæmdastjórinn heyrir beint undir stjórnarformann Laxar Fiskeldi. Intellecta - Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími: 511 1225. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á www.laxar.is 2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R 1 7 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 7 F B 1 0 4 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 6 A -D 4 C 4 2 1 6 A -D 3 8 8 2 1 6 A -D 2 4 C 2 1 6 A -D 1 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.