Fréttablaðið - 17.11.2018, Qupperneq 38
Sérfræðingur í
fráveitumálum
Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings í
fráveitumálum á sviði náttúru, hafs og vatns. Í boði er krefjandi starf í
frjóu umhverfi sérfræðinga þar sem áhersla er lögð á framsýni, samstarf og
árangur í þverfaglegri teymisvinnu.
Helstu verkefni
» Stjórnsýsla fráveitumála sem fellur innan starfsviðs
Umhverfisstofnunar samkvæmt lögum og reglugerðum.
» Verkefni sem falla innan verksviðs Umhverfisstofnunar og tengjast
meðhöndlun seyru og vörnum gegn mengun vatns.
» Verkefni sem tengjast stjórn vatnamála.
» Gerð leiðbeininga, umsagna, gagnaskil og samstarf við
hagsmunaaðila.
» Erlent og innlent samstarf sem tengist stjórn vatnamála og
fráveitumálum
Ítarlegri upplýsingar um starfið, helstu verkefni og hæfniskröfur til þess er
að finna á starfatorg.is og umhverfisstofnun.is/storf-i-bodi
Umsóknarfrestur er til og með 4. desember 2018.
Lausar kennarastöður
vegna forfalla
Staða umsjónarkennara í 1. bekk og umsjónar
kennara í 9. bekk þar sem aðalkennslugreinar
eru íslenska og danska.
Umsóknarfrestur er til 1. desember en ráðið er í stöðurnar frá
1. janúar 2019 og út skólaárið.
Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með 510 nemendur
í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir
Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi
í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og
allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar.
Sjá nánar á heimasíðu skólans
http://www.grindavik.is/grunnskolinn.
• Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla
sem eru metnaðarfullir, og góðir í mannlegum samskiptum, með
skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra
leiða í skólastarfi.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar
félaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240
Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í
síma 4201200.
Framkvæmdastjóri
Laxar Fiskeldi ehf. er fyrirtæki sem stundar
laxeldi á Íslandi. Fyrirtækið er að meirihluta
í eigu Måsøval Eiendom, sem er norskt
fjölskyldufyrirtæki sem hefur 45 ára reynslu
af laxeldi.
Fyrirtækið rekur tvær seiðaeldisstöðvar að
Bakka og Fiskalóni í Ölfusi auk þess sem
landstöð er starfrækt í Þorlákshöfn. Auk
þess eru Laxar Fiskeldi með sjókvíaeldi í
Reyðarfirði þar sem fyrirtækið hefur leyfi
til að framleiða allt að 6.000 tonn af laxi í
sjókvíum á þremur stöðum en fyrirhuguð
framleiðsla félagsins á Austfjörðum til
lengri tíma litið mun nema um 25.000
tonnum.
Grundvallarhugsun Laxar Fiskeldi er að
reka eldisfyrirtæki þar sem þekking er í
fyrirrúmi en jafnframt fjárhagslegur styrkur
til að takast á við erfiðleika.
Aðalskrifstofa Laxar Fiskeldi er í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í
síma 512 1225 og einnig Lars Måsøval, stjórnarformaður (lars@masoval.no) í síma +47 9183 8684. Umsóknarfrestur er
til og með 1. desember 2018. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf á ensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Kostur að umsækjandi hafi reynslu af
íslensku viðskiptalífi
• Stjórnunarreynsla í sjóeldi/laxarækt er
æskileg
• Kunnátta í ensku og íslensku, talaðri og
skrifaðri. Kunnátta í norsku er kostur
• Leiðtogahæfni og reynsla af teymisvinnu
• Greiningarhæfni og auga fyrir smáatriðum
• Drifkraftur og þrautseigja
Helstu viðfangsefni:
• Ábyrgð á öllum land- og sjóeldisstöðvum
fyrirtækisins
• Þróun á skipulags- og ferlamálum og
fyrirtækjamenningu
• Stefnumótun og aðgerðaáætlanir í samráði við
stjórn
• Undirbúningur og innleiðing umbóta í samráði
við framkvæmdastjórn
• Markmiðasetning og eftirfylgni í rekstri
• Myndar og ræktar góð samskipti við
samfélagið og viðeigandi hagaðila
• Þróun á virðisaukandi ferlum fyrir framleiðsluna
Laxar Fiskeldi ehf. býður upp á spennandi tækifæri fyrir öflugan einstakling til að taka að sér starf
framkvæmdastjóra fyrirtækisins á Íslandi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af laxeldi ásamt
þróun og uppbyggingu fyrirtækja. Hér er um að ræða áhugavert tækifæri fyrir réttan aðila til að leggja
sitt af mörkum í þróun fyrirtækis sem á sér bjarta framtíð. Framkvæmdastjórinn heyrir beint undir
stjórnarformann Laxar Fiskeldi.
Intellecta - Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími: 511 1225.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið
má finna á www.laxar.is
2 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-D
4
C
4
2
1
6
A
-D
3
8
8
2
1
6
A
-D
2
4
C
2
1
6
A
-D
1
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K