Fréttablaðið - 17.11.2018, Qupperneq 45
Skrifstofa Alþingis auglýsir eftir starfsmannastjóra. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á starfsmannastjórn og mann
auðsmálum og hefur þekkingu og reynslu af starfssviðinu.
Starfsmannastjóri heyrir beint undir skrifstofustjóra Alþingis og situr fundi forstöðumanna skrifstofunnar. Starfsmannastjóri
veitir starfsmannaskrifstofu forstöðu, en þar vinna þrír starfsmenn. Starfið er fjölbreytt og krefjandi í lifandi umhverfi þar sem
vinna um 100 manns.
Starfsmannastjóri
skrifstofu Alþingis
Helstu verkefni
• Dagleg stjórn og ábyrgð á faglegu starfi starfsmannaskrif
stofu ásamt fjármála og áætlanagerð fyrir skrifstofuna.
• Þátttaka í starfi stjórnenda skrifstofu Alþingis og forusta um
mótun og framkvæmd stefnu í mannauðsmálum.
• Ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna skrifstofunnar í
mannauðsmálum.
• Umsjón með ráðningarferlum, móttöku nýrra starfsmanna
og starfslokaferli.
• Umsjón með starfsþróun og fræðslu starfsmanna ásamt
umsjón með starfsmannahandbók og miðlun upplýsinga til
starfsmanna um réttindi þeirra og skyldur.
• Virk þátttaka í gerð og framkvæmd kjara- og stofnana
samninga ásamt innleiðingu jafnlaunavottunar.
• Ábyrgð á launavinnslu og aðkoma að launasetningu ásamt
umsjón með tímaskráningu og réttindum starfsmanna.
• Umsjón með öryggis- og velferðarmálum starfsmanna.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Meistaragráða sem nýtist í starfi; viðbótarnám í man
nauðsstjórnun eða sambærilegum greinum er æskileg.
• Þekking og marktæk starfsreynsla á sviði mannauðsmála
er skilyrði.
• Þekking á kjarasamningum er æskileg.
• Reynsla af teymisvinnu, stefnumótun og breytingastjórnun
er kostur.
• Leiðtoga- og tjáningarhæfni, jákvæðni, drifkraftur og færni í
mannlegum samskiptum.
• Skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
• Gott vald á íslensku máli, bæði í ræðu og riti, er skilyrði.
• Góð þekking á ensku og einu Norðurlandamáli er æskileg.
Aðrar upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi forseta Alþingis og Félags starfsmanna Alþingis.
Sótt er um starfið í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt prófskírteinum og kynningarbréfi
þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstyður hæfni sína í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Skrifstofa Alþingis hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Gildi skrifstofu Alþingis eru: Þjónustulund – Fagmennska – Samvinna.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 3.12.2018.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Þorsteinn Magnússon, varaskrifstofustjóri Alþingis,
tm@althingi.is, s. 5630500.
Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is
Umsóknarfrestur er til og með 2.desember 2018.
Nánari upplýsingar veita Ásmundur Bjarnason, forstöðumaður upplýsingatækni, og Ólafur
Kári Júlíusson mannauðssérfræðingur, sími: 563-9300, netfang: mannaudur@landsnet.is
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is.
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Við flytjum rafmagn og stýrum uppbyggingu flutningskerfisins. Við sjáum fyrir okkur rafvædda
framtíð, höfum sett okkur það markmið að tryggja örugga endingu á raforku til framtíðar með
tilliti til þarfa samfélagsins á hverjum tíma og sýnum ábyrgð í umgengni við náttúruna.
Við berum umhyggju hvert fyrir öðru, sköpum góðan vinnustað með spennandi verkefnum,
með gildin okkar – samvinnu, ábyrgð og virðingu – að leiðarljósi.
TÆKNILEGUR ÖRYGGISSTJÓRI
Starfssvið
• Gerð tillagna að öryggisumbótum byggðum á áhættumati
• Umsjón með umbótaverkefnum
• Ráðgjöf varðandi öryggi innviða
• Ábyrgð á kerfishögun (aðskilnaður neta, auðkenningar, aðgangsmál,
tvöföldun kerfa og samskipti milli kerfa)
• Umsjón með viðbúnaðaráætlun vegna netárása og krísustjórnun
• Rótargreining öryggisfrávika
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Mjög góð reynsla af rekstri mikilvægra innviða í stærri fyrirtækjum
• Mjög góð þekking á upplýsingaöryggi
• Þekking og reynsla af öryggis- og eftirlitsbúnaði í net- og stýrikerfum
• Góð þekking á og reynsla af öryggisstöðlum (s.s. ISO27001) og
ferlamálum í rekstri
• Þekking á og reynsla af Secure architecture og dulkóðunarstöðlum
• Reynsla í verkefnastjórn með innri og ytri aðilum
Upplýsingatækni gegnir veigamiklu hlutverki í allri starfsemi
Landsnets og gerir okkur kleift að stýra og vakta flutningskerfi
raforku með öryggi að leiðarljósi.
Við leitum að öflugum einstaklingi með mikla öryggisvitund í
samhent UT teymi okkar til að bregðast við aukinni ógn á sviði
net- og upplýsingaöryggis.
Lausar kennarastöður
vegna forfalla
Staða umsjónarkennara í 1. bekk og umsjónar
kennara í 9. bekk þar sem aðalkennslugreinar
eru íslenska og danska.
Umsóknarfrestur er til 1. desember en ráðið er í stöðurnar frá
1. janúar 2019 og út skólaárið.
Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með 510 nemendur
í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grindavíkur er starfað eftir
Uppbyggingarstefnunni og lögð áhersla á að skapa námsumhverfi
í samráði við foreldra þar sem allir eru virkir, að öllum líði vel og
allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar.
Sjá nánar á heimasíðu skólans
http://www.grindavik.is/grunnskolinn.
• Við leitum að einstaklingum með réttindi til kennslu í grunnskóla
sem eru metnaðarfullir, og góðir í mannlegum samskiptum, með
skipulagshæfileika, eru sveigjanlegir og tilbúnir að leita nýrra
leiða í skólastarfi.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitar
félaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240
Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í
síma 4201200.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 9 L AU G A R DAG U R 1 7 . N ÓV E M B E R 2 0 1 8
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
A
-C
5
F
4
2
1
6
A
-C
4
B
8
2
1
6
A
-C
3
7
C
2
1
6
A
-C
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K