Fréttablaðið - 17.11.2018, Side 77
lagi vegna þess að ég er ekki þaðan.
Í fyrstu vantreysti fólk þessum kvik-
myndagerðarmanni að sunnan,“
segir Grímur sem segist hins vegar
hafa fundið til skyldunnar.
„Ég vissi að það myndi enginn
annar gera þetta og þetta eru merki-
legar heimildir. Viðmælendurnir
eru allt fólk sem býr í Neskaupstað,
sem lifir og hrærist í þessum veru-
leika. Ég er ekki að taka viðtöl við
sagnfræðinga í Reykjavík eða fólk
sem er flutt úr bænum. Ég fór líka
þá leið að tala ekki bara við gamla
kommúnista heldur líka ungt fólk
sem hefur tengingu við söguna,“
segir Grímur sem fór aðra leið í
heimildarmynd sinni Hvelli sem
fjallaði um þann atburð þegar
bændur í Suður-Þingeyjarsýslu
tóku sig saman og sprengdu í loft
upp stíflu í Laxá við Mývatn. „Þá
talaði ég bara við bændur og tók í
raun aðeins þeirra hlið. Nú fór ég þá
leið að ræða við fólk á mismunandi
pólum.“
Hvað kom þér mest á óvart?
„Ég vissi rosalega lítið um bæinn
og það sem kom mér mest á óvart
er það hvernig þessu tímabili sósíal-
istanna lýkur. Það tengist nefnilega
byggingu Kárahnjúkavirkjunar og
álverinu. Kommarnir Í Neskaup-
stað voru iðnaðarkommar, þeir
gerðu allt til að skapa atvinnu. Þeir
fóru í það að biðla til álvers að koma
þangað og eru aðalhvatamenn að
þessu álveri og Kárahnjúkavirkjun
líka. Til þess að fá álverið þurftu
þeir að sameinast bæjarfélögum í
kring til að búa um álverið. Þannig
fellur sósíalisminn af sjálfu sér, þeir
redda atvinnunni en fórna þessari
sósíalísku einingu sem var þarna,“
segir Grímur.
„Sósíalistar komast til valda í
Neskaupstað árið 1946. Það er eftir
stríðið og það er bullandi velmegun,
svaka uppbygging og ákveðið gull-
aldarskeið. Þetta er merkilegt og
í miðju kalda stríðinu var bærinn
sá eini þar sem sósíalistar fóru
með völd. Eftir 1974 byrjar smám
saman að fjara undan þessu. Þá féll
snjóflóð á bæinn sem hafði skelfi-
legar afleiðingar og skildi Síldar-
vinnsluna, aðalútgerðarfyrirtæki
bæjarins, eftir í miklum skuldum.
Hún var alltaf í eigu bæjarbúa en á
tíunda áratugnum fer hún á hluta-
bréfamarkað og bæjarbúar missa
völdin yfir fyrirtækinu.“
Hverjir voru draumar þessa fólks?
Hvernig bjó það?
„Sósíalistar hér sem annars staðar
óskuðu sér alheimsbyltingar. Menn
gerðu ráð fyrir því að hún yrði á
ákveðnum tímum. Menn Í Nes-
kaupstað voru alltaf að bíða eftir
byltingunni en þær væntingar fara
auðvitað forgörðum og vonbrigðin
með Sovétríkin voru ofsaleg. Menn
trúðu því lengi vel í blindni að
Sovétríkin væru fyrirmyndarríki
og þegar hryllingurinn kemur í
ljós, morðin og spillingin, þá er það
erfitt. Þeim hefur síðan þá verið
velt mikið upp úr þeirri for,“ segir
Grímur.
„En hið daglega líf fólks í Nes-
kaupstað snerist um að halda
nægri atvinnu í bænum fyrir fólkið.
Atvinnuleysi, það mátti aldrei
vera. Þeir voru líka stórtækir í vel-
ferðarmálum. Byggðu skóla, fyrsta
barnaheimilið á landsbyggðinni og
sjúkrahús sem var í raun alltof stórt
fyrir þennan litla bæ. Þetta þótti alls
ekki sjálfsagt mál á þesum tíma. Þeir
voru á undan sinni samtíð. Fólki
leið vel í bænum,“ segir Grímur.
„Það er arfleifðin. Velferðarmálin,
þjóðfélag okkar og í Evrópu er mjög
sósíalíserað. Það er vegna verka-
lýðsbaráttunnar og sósíalískrar
hugmyndafræði. Í Neskaupstað
eru ennþá mjög sterkar stoðir, vel-
megun og gott félagslegt kerfi.“
Fannstu enga njósnara?
Grímur skellir upp úr.
„Frá KGB? Nei, reyndar ekki.
En það var mikið af fólki sem fór í
boðsferðir til Sovétríkjanna. Bæjar-
stjórinn fór í boðsferð á Krímskaga
með eiginkonuna. Svo voru fluttir
inn listamenn á vegum MÍR. Þá
komu þeir alltaf til Norðfjarðar þar
sem var annað útibú MÍR. Annað
sem var merkilegt, þá var mikið
verið að senda ungmenni í komm-
únískar sumarbúðir, ungt fólk fékk
slíkar ferðir í fermingargjöf,“ segir
Grímur sem ræðir við Ingibjörgu
Þórðardóttur í heimildarmyndinni
um hennar reynslu af því að fara í
sumarbúðir í Austur-Þýskalandi.
Grímur hefur nýlokið við að
klippa næstu leiknu kvikmynd sína
í fullri lengd, Héraðið, sem verður
frumsýnd næsta vor. Enn er sögu-
sviðið íslensk sveit og bændur í
aðalhlutverki. En nú er aðalper-
sónan kona sem fer í uppreisn. Með
hlutverk hennar fer Arndís Hrönn
Egilsdóttir. „Þetta er kona sem gerir
uppreisn gegn kaupfélaginu sem
öllu ræður. Um leið berst hún gegn
karllægum gildum sem eru ráðandi.
Þetta er pólitísk mynd, ádeila,“ segir
Grímur og útilokar ekki að Litla
Moskva hafi smitað frá sér í kvik-
myndina.
Grímur hefur sópað til sín verð-
launum og viðurkenningum fyrir
kvikmyndina Hrúta. „Hrútar opn-
uðu ýmsar dyr fyrir mér erlendis. Ég
er kominn með umboðsmann í Los
Angeles og London og er að þreifa
fyrir mér að gera mynd á ensku. Ég
er að vinna með sögu sem ég skrifa
með áströlskum handritshöfundi,
þetta gæti orðið mín næsta mynd
en ég get lítið sagt um það á þessu
stigi. Það verður bara að koma í
ljós,“ segir Grímur.
Þeir voru líka stórtækir í velferðarmálum.
Byggðu skóla, fyrsta Barnaheimilið á lands-
Byggðinni og sjúkrahús sem var í raun alltof
stórt fyrir Þennan litla Bæ. Þetta Þótti alls
ekki sjálfsagt mál á Þessum tíma. Þeir voru á
undan sinni samtíð. fólki leið vel í Bænum.
Jardin del Atlantico Apartments
Hagkvæmur og vinsæll gistivalkostur í sínum stjörnuokki
sem býður ölbreytta þjónustu.
Jardin del Atlantico er vel staðsett íbúðahótel á Ensku
ströndinni en hótelið stendur rétt við Kasbah-torgið og við
hliðina á Broncemar sem margir þekkja. Innifalið:
Flug, Gisting, Án fæðis.
Frá kr. 86.495
Gran Canaria 22. janúar í 7 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
aaa
Globales Tamaimo Tropical
Hér er um að ræða góðan íbúðavalkost í bænum Puerto de
Santiago, sem er í um 40 mínútna akstursarlægð frá Playa
de las Americas.
Globales Tamaimo Tropical er meðal gistivalkostanna okkar
fyrir ölskyldur 4+. Innifalið:
Flug, Gisting, Án fæðis.
Frá kr. 99.995
Tenerife 2. janúar í 12 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
aaa
595 1000 . heimsferdir.isBókaðu þína ferð á
KANARÍEYJARNAR
Tenerife & Gran Canaria í janúar
Frá kr.
86.495
Íslensk fararstjórn,
taska og handfarangur
innifalið.
BÓKAÐU SÓL
ALLUR PAKKINN
Iberostar Grand Hotel Mencey
Eitt af glæsilegustu mm stjörnu lúxushótelum á Tenerife
staðsett í höfuðborg eyjunnar Santa Cruz de Tenerife.
Hér er svo sannarlega hægt að njóta alls þess besta sem
bestu hótel bjóða upp á og hvílast í fallegum herbergjum
með frábærum rúmum og aðstöðu sem allir ættu að njóta. Innifalið:
Flug, Gisting, Morgunverður.
Frá kr. 179.780
Tenerife 4. janúar í 10 nætur
Verð á mann m.v. 2 fullorðna
aaaaa
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 33l A U g A R D A g U R 1 7 . n ó v e m B e R 2 0 1 8
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-8
A
B
4
2
1
6
A
-8
9
7
8
2
1
6
A
-8
8
3
C
2
1
6
A
-8
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K