Fréttablaðið - 17.11.2018, Síða 80
Þriðjungur þjóðarinnar er að vinna störf sem þarf að beita röddinni við, algerlega óvar-inn. Þetta tæki, röddin, hefur ekki verið tryggt svo fólk ber
sjálft kostnað og skaða ef röddin klikk-
ar, fyrir utan þá greiðsluþátttöku sem
Sjúkratryggingar Íslands leggja fram.
Fólk hefur bara oft tekið því þegjandi, í
orðsins fyllstu merkingu, ef röddin fer
og veit ekki hvað það á að gera. Þess
vegna tel ég að fræðsla um röddina
þurfi að vera fyrirbyggjandi, númer
eitt, tvö og þrjú. Þetta er forvarnar- og
lýðheilsumál,“ segir Valdís Ingibjörg
Jónsdóttir, talmeina- og raddfræðingur.
Hún er höfundur nýrrar bókar, Taland-
inn – Er hann í lagi?
Valdís segir söngvara líkast til þá einu
sem verulega þjálfun hljóti í beitingu
raddarinnar. En nefnir kennara, stjórn-
málamenn, presta og starfsfólk ljós-
vakamiðla sem dæmi um stéttir sem
einnig byggi afkomu sína á því að rödd
þeirra berist til annarra. Því verði beit-
ing raddar að vera námsgrein í skólum,
sérstaklega kennaraháskólum. „Fólk
getur ekki boðið fram röddina sína ef
hún nær ekki að bera skýrt fram öll
talhljóð, það segir sig sjálft. Til dæmis
í leikskólum þar sem hávaðinn er það
mikill að börn eiga erfitt með að heyra
sér til gagns og eru þó á máltökuskeiði.“
Til að vernda raddir kennara telur
Valdís líka brýnt að skapa þeim boðleg-
ar aðstæður. „Það er vitað að kennarar
geta rústað röddinni í kennslustofu
með alltof mörgum börnum, alltof
miklum erli og alltof lítilli agastjórnun.
Hugsum um Písarannsóknirnar. Hvað
vitum við hvað börnin hafa heyrt sér til
gagns í skólunum? Ef rödd kennarans
er ekki í lagi fer fræðslan ekki eðlilega
fram en hann getur lifað í sjálfsblekk-
ingu því hann heyrir svo vel til sjálfs
sín,“ segir hún og telur alltof lítið um
að magnarakerfi séu notuð. „Það er
ekki einkamál eins eða neins að leigja
út röddina sína. Fólk mundi aldrei vilja
leigja bíl sem væri ekki í lagi.“
Valdís telur möguleika á að ein-
hverjir kunni að hafa dottið út af þingi
af því kjósendur hafi ekki þolað raddir
þeirra. Viðurkennir að ekki sé öllu
fólki gefin óskarödd heldur sitji uppi
með þá sem það fái úthlutað. „En það
talar enginn tímunum saman án þess
að skaða röddina, ef henni er ekkert
sinnt. Þetta er líffræði og ég skrifaði
þessa bók í von um að hún geri gagn.
En þá þarf einhver að lesa hana. Þetta
er enginn krimmi heldur kennslubók.
Það er þetta almenna þekkingarleysi
um röddina sem ég vil berjast gegn, því
efni um hana hefur aldrei verið borið
upp sem fræðigrein hér á landi,“ segir
Valdís. „Fólk fer betur með bílinn sinn
en röddina.“
gun@frettabladid.is
Kennslubók – ekki krimmi
Talandinn – Er hann í lagi? er titill nýrrar bókar eftir dr. Valdísi Jónsdóttur, talmeina-
og raddfræðing. Þar fjallar hún um framburð, framsögn og ekki síst röddina.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna fráfalls
ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Þorkels Skúlasonar
endurskoðanda.
Ólafía Katrín Hansdóttir
Valdís Brynja Þorkelsdóttir
Ingiríður H. Þorkelsdóttir
Elsa Sigurveig Þorkelsdóttir Már Guðmundsson
Indriði Þorkelsson Anna María Soffíudóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Á erfiðum stundum er gott að finna
nærveru, styrk, hlý orð og hugsanir
kærra vina. Við þökkum fyrir
ómetanlegan stuðning við fráfall
elskaðs drengsins okkar,
Egils Daða Ólafssonar
Ólafur Vigfússon María Anna Clausen
Andri Ólafsson Sigurlaug Jónsdóttir
Vigfús Ólafsson
Sif Sigþórsdóttir
Marsibil Tómasdóttir
Vigfús Ólafsson
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Örn Ævarr Markússon
lyfjafræðingur,
lést á Landspítalanum
miðvikudaginn 7. nóvember.
Útförin fer fram frá Langholtskirkju
mánudaginn 19. nóvember kl. 15.
Halla Valdimarsdóttir
Ragnheiður Elfa Arnardóttir Guðjón Ketilsson
Snorri Björn Arnarson Aðalheiður Sveinbjörnsd.
Halla Sigrún Arnardóttir Hannes Birgir Hjálmarsson
og fjölskyldur.
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Jón Rafnar Hjálmarsson
fv. fræðslustjóri,
Dalbraut 14, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 10. nóvember. Útförin fer
fram frá Neskirkju mánudaginn 19. nóvember klukkan 13.
Guðrún Ó. Hjörleifsdóttir
Halldóra, Hjálmar Andrés, Hjörleifur Rafn,
Oddný Sigurrós, Guðrún Helga,
tengdasynir, barnabörn og langafabarn.
„Fólk fer betur með bílinn sinn en röddina,“ segir Valdís sem berst gegn þekkingarleysi fólks um rödina. Mynd/Auðunn níelsson
Línur úr bókinni:
... Talfæri og raddfæri þurfa að vera
liðug til þess að geta gefið frá sér
hljómmikla, blæbrigðaríka rödd og
skýran framburð. Fyrir langt mál
skyldi alltaf byrja á því að hita upp
radd- og talfæri. Að loknu löngu
máli ætti að venja sig á að ná í burtu
þreytu úr tal- og raddfærum með
sömu æfingum og notaðar voru
til upphitunar. Þessu er svipað
farið og hjá íþróttafólki sem reynir á
líkamann í íþróttunum.
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r36 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
A
-A
3
6
4
2
1
6
A
-A
2
2
8
2
1
6
A
-A
0
E
C
2
1
6
A
-9
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K