Fréttablaðið - 17.11.2018, Side 84
„Þetta er nú meira vegg-
skriflið,“ sagði Kata, þar
sem þau komu að hlaðinni
steingirðingu. „Hér vantar
nánast annan hvern stein,“
bætti hún við með fyrir-
litningu. „En hann er nú
bara orðinn gamall,“ sagði
Konráð. „Það gerir hann
ekki endilega að vondum
vegg, bara laslegum,“ bætti
Konráð
á ferð og flugi
og félagar 327
Getur þú
hjálpað þeim
að
telja hvað va
ntar
marga steina
í
vegginn?
?
?
?
hann við. „Það vantar til
dæmis ansi marga steina í
þetta gat hérna fyrir
framan okkur,“ sagði Kata
og hélt áfram að úthúða
veggnum. Konráð varð að
viðurkenna að það vantaði
jú ansi marga steina í þetta
gat. „En við verðum að
troða okkur í gegnum það
ef við ætlum að komast
eitthvað áfram,“ sagði Kata.
„Spurning hvort það vanti
það marga steina að við
komumst í gegnum gatið,“
bætti hún við glottandi.
Enda augljóst að auðvelt
væri að komast í gegnum
svona stórt gat án þess að
þurfa að troða sér.
Grímar Gauti Ólafsson á sér mörg
óskastörf. Hann langar til dæmis að
verða kennari en líka skipstjóri og
bílalagari.
Hvað heitir þú fullu nafni og
hversu gamall ertu? Ég heiti Grím-
ar Gauti Ólafsson og ég á afmæli
20. apríl og er sex ára gamall.
Hvað heitir skólinn þinn? Hann
heitir Hólabrekkuskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera þar? Að læra stærðfræði og
smíði.
En hvernig finnst þér mest gaman
að leika þér? Í Playmó, og perla.
Líka gaman að setja saman Legó og
spila draugaspilið.
Hver er uppáhaldsbókin þín og
um hvað er hún? Emil í Kattholti.
Þegar hann var sex ára í skólanum
þá kyssti hann kennarann. Það var
fyndið. En það er bara ein saga. Það
eru margar sögur í Emil í Kattholti.
En eftirlætisefnið í sjónvarp-
inu? Svampur Sveinsson. Hann
er skemmtilegastur í heiminum.
Skemmtilegustu þættirnir eru
þegar Svampur og Pétur fara á mar-
glyttuveiðar og svo þegar Svampur
var að byrja í vinnunni og gerði alls
konar vitleysu. Setti pott í staðinn
fyrir brauð og tómat í staðinn fyrir
salat.
Hvað finnst þér best að borða?
Hakk og spagettí.
Eru einhver sérstök dýr í uppá-
haldi hjá þér? Hundar, já og hvolp-
ar.
Hver er uppáhaldstölvuleikurinn
þinn? Super Mario. Ég er búinn að
ná svo mörgum stjörnum. Ég er orð-
inn mjög góður af því að ég er búinn
að æfa mig svo mikið.
Hvað langar þig að fá í jólagjöf?
Einn Marioleik þar sem maður
safnar mánum, ég er oft að horfa á
hann á YouTube.
Hvað langar þig að verða þegar
þú ert orðinn stór? Mig langar að
vera kennari. Mig langar líka að vera
skipstjóri og bílalagari. Líka löggu-
maður og mig langar að laga löggu-
bíla. Langar líka að keyra sjúkrabíla
og laga þá.
Langar að laga
löggubíla
Grímar Gauta langar í einn Marioleik í jólagjöf, þar sem maður safnar mánum.
Fréttablaðið/Ernir
Skáldsagan
Skóladagur í Einelti Höfundur: Júlía Hilmarsdóttir, 9 ára, Háaleitisskóla við Álftamýri.
Þriðji hluti:
„Jæja krakkar, núna er nesti,“
kallaði Kristín yfir stofuna. Allir
tóku nesti upp úr töskum og byrj-
uðu að borða.
Bjallan hringdi. „Frímó!“ æptu
krakkarnir og fóru út.
Mandý sat ein á bekk. Stefán
kom og sparkaði í hana. „Ái!“
æpti hún. „Til hvers var þetta?“
spurði hún. „Fyrir að klaga,
klöguskjóðan þín!“ svaraði hann.
Hann ýtti henni aftur svo hún
datt beint á jörðina. Svo kom
önnur stelpa og sagði við hann:
„Hvað ertu að hugsa, þarna …
fávitinn þinn?“
Stefán leit hvass á stelpuna.
„Hvað varstu að kalla mig?“ sagði
hann. „Æ, þú ert of heimskur til
að skilja, það eina sem þú þarft
að gera er að snúa þér við og
fara burt,“ sagði hún. „Af hverju
ætti ég að gera það?“ sagði hann.
Stelpan svaraði strax. „Ertu svo
aumur að þú þarft að stríða miklu
minni stelpu en þú? Hví ferðu
ekki að stríða einhverjum sem er
jafn stór og þú?“ sagði hún.
Stefán varð eldrauður í framan
og fór í burtu.
Framhald í næsta blaðiLausn á gátunniÞað vantar áttatíu steina?
Mynd/Guðrún HilMarsdóttir
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r40 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
krakkar
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
A
-8
A
B
4
2
1
6
A
-8
9
7
8
2
1
6
A
-8
8
3
C
2
1
6
A
-8
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K