Fréttablaðið - 17.11.2018, Page 88
Ég veit hins vegar
að barnabók-
menntir eru ekki virtar
eins og aðrar tegundir
bókmennta.
Í tilefni af 119 ára afmæli Fríkirkjusafnaðarins
sunnudaginn 18. nóvember verður hátíðarmessa
kl. 11 og kaffisamsæti í safnaðarheimili á eftir.
Afmælistónleikar kl. 17
Sönghópurinn við Tjörnina flytur tónverkið Jazz Mass eftir
bassaleikarann og djassskáldið Ike Sturm, sem jafnframt
leikur með í verkinu.
Einsöngvari er Sara Grímsdóttir. Hljómsveitina skipa
Ike Sturm, Ásgeir Ásgeirsson, Haukur Gröndal, Erik Qvick
og Gunnar Gunnarsson.
Strengjakvartett skipa Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir,
Margrét Soffía Einarsdóttir, Eydís Ýr Rosenkjær og
Þórdís Gerður Jónsdóttir.
Hljóðmaður er Hafþór Karlsson.
Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 3.000
Verið öll hjartanlega velkomin
Fríkirkjan í Reykjavík
Hátíðarmessa kl. 11
og afmælistónleikar kl. 17
sunnudaginn 18. nóvember
FRÍKIRKJAN - FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN - LOGO B3
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
Í FULLUM LITUM / TVÍLITT1 LITUR - GRÁTÓNAR 1 LITUR - STIMPLAR - GYLLING
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
FRÍKIRKJAN
Í REYKJAVÍK
S ilfurlykillinn er ný barna-bók eftir Sigrúnu Eldjárn. Sagan segir frá Sumar-liða og Sóldísi sem búa hjá pabba sínum í hús-inu Strætó númer sjö, en
móðirin er horfin. Einn dag birtist
hin dularfulla stelpa Karítas og við
tekur spennandi atburðarás.
Sagan gerist í framtíðinni þar
sem er ekkert rafmagn, engir símar
og fátt um bækur. „Þessi saga lýsir
framhaldi þess sem er byrjað að
gerast í heiminum. Við erum svo-
lítið að eyðileggja allt og þá er
spurning hvað verður ef öll tækni
sem við treystum á í dag hverfur
skyndilega. Hvað ef það væru
engir símar, engar tölvur og ekkert
rafmagn? Það er áhugavert fyrir
krakka að velta fyrir sér hvernig
verður ef það gerist. Í þessum heimi
án allrar tækni er samt ýmislegt
hægt að gera,“ segir Sigrún. Spurð
hvort hún sé svartsýn á framtíð
þar sem heiminum er ógnað vegna
loftslagsbreytinga segir hún: „Auð-
vitað er ég dálítið svartsýn. Ég held
samt að við munum taka okkur á,
það er slík bylgja í gangi.“
Lítið um bækur
Bækur koma við sögu í bókinni, en
þar sem mannkynið hefur ekki gætt
að því að passa upp á þær þá finnast
þær vart. „Þær hafa verið notaðar í
hitt og þetta, eldsneyti, einangrun í
veggi og annað slíkt. Nema í einum
kjallara, þar er fullt af bókum,“ segir
Sigrún.
Um bóklestur og ungt fólk segir
hún: „Ég held að það sé mjög mikil-
vægt að krakkar lesi og þau vilja
lesa og líka að það sé lesið fyrir þau.
Þó að þau hætti að lesa á unglings-
árunum þá byrja þau aftur ef þau
hafa vanist því að lesa sem börn.“
Heimur án tækni
ný barnabók sigrúnar eldjárn er fram-
tíðarsaga. byrjuð að grufla í framhaldi.
mikilvægt hlutverk að skrifa fyrir börn.
„Mér finnst hlutverk mitt vera að skrifa fyrir börn,“ segir Sigrún. FréttabLaðið/Ernir
Karítas og kötturinn branda eru meðal sögupersóna í Silfurlyklinum.
aldrei bók án mynda
Spurð hvort hún hafi hugsað sér
framhald á Silfurlyklinum segir hún:
„Ég byrjaði á henni sem stakri bók.
Ég hef gert þetta áður, skrifað eina
bók og síðan hafa komið tvær fram-
haldsbækur. Þegar maður er búinn
að hafa fyrir því að búa til persónur
og veröld og er tiltölulega ánægður
með sköpunarverkið þá er ágætt að
nýta það í fleiri bækur. Ég er aðeins
byrjuð að grufla í framhaldi.“
Silfurlykillinn er að sjálfsögðu
með myndum eftir Sigrúnu. „Í minni
bókavinnu skipta myndirnar jafn
miklu máli og textinn, líka í texta-
meiri bókum. Ég myndi aldrei gera
bók án mynda, það kæmi ekki til
greina.“
Sigrún gerir myndirnar við barna-
ljóðabók bróður síns, Þórarins Eld-
járns, Ljóðpundara, en þau hafa
margoft áður lagt saman í slíkar
bækur. „Foreldrar og ömmur og afar
tala mikið um þessar ljóðabækur því
það er hægt að lesa þær fyrir börn frá
0 ára, það hafa allir gaman af þeim,
líka þeir fullorðnu,“ segir Sigrún.
„Það eru dæmi um börn sem kunna
vísurnar nánast utan að. Það er
alltaf áskorun að myndskreyta ljóð
Þórarins og mér finnst það óskaplega
gaman.“
Mikilvæg bókmenntagrein
Spurð af hverju hún skrifi eingöngu
fyrir börn segir Sigrún: „Ég er oft
spurð hvort ég ætli ekki að skrifa
fyrir fullorðna. Stundum hef ég
hugsað: Ætti ég að prófa og skrifa
byrjun á einhverju fyrir fullorðna?
Ég hef fengið ágætar hugmyndir,
en mér finnst hlutverk mitt vera
að skrifa fyrir börn. Mér finnst það
afskaplega mikilvægt hlutverk en
ég veit hins vegar að barnabók-
menntir eru ekki virtar eins og
aðrar tegundir bókmennta. Það er
ekki borin jafn mikil virðing fyrir
rithöfundum sem skrifa fyrir börn
og unglinga. Ég held að það sama
eigi við alla sem vinna með börn-
um, til dæmis leikskólakennara
og kennara. Þetta er mjög skrýtið
vegna þess að börn eru tilvonandi
fullorðið fólk. Það á að gera allt til
að þau verði góðir þjóðfélagsþegn-
ar þannig að framtíðin sé í góðum
höndum.“
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r44 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
menning
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
6
A
-6
3
3
4
2
1
6
A
-6
1
F
8
2
1
6
A
-6
0
B
C
2
1
6
A
-5
F
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K