Fréttablaðið - 17.11.2018, Page 91
GDRN og Auður taka lagið í Stúdentakjallaranum í kvöld, svona til að létta aðeins á stressuðum stúdentum. FRéttAblAðið/SteFáN
loji Höskuldsson og fleiri naívistar
sýna verk sín í höfuðstöðvum Arion
banka í borgartúni. FRéttAblAðið/GVA
reglurnar sjálfir þó þær geti oft verið
æði kúnstugar og jafnvel óræðar. Þó
efnistök og bakgrunnur listamann
anna sé ólíkur má sjá heilmikinn
skyldleika í verkum þeirra.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettabladid.is
18. nóvember 2018
Tónlist
Hvað? Söngtónleikar og frásagnir milli
laga
Hvenær? 16.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis
Íslands bjóðum við upp á kaffisopa
og pönnukökur á söngtónleikum
í Hannesarholti. Auður Gunnars
dóttir syngur íslensk sönglög frá
þessum 100 árum sem liðin eru frá
stofnun fullveldisins. Við flygilinn
verður Eva Þyri Hilmarsdóttir og
til fróðleiks og gamans mun Bjarki
Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur
vera með frásagnir af sögu íslenska
sönglagsins á milli laga.
Hvað? Kammermúsíkklúbburinn
Hvenær? 16.00
Hvar? Harpa
Þriðju tónleikar Kammermúsík
klúbbsins í vetur verða með
óvenjulegu sniði, þar sem söng
röddin verður áberandi á þessum
gamalgróna vettvangi hljóðfæra
tónlistar. Sópransöngkonan Hall
veig Rúnarsdóttir flytur fjölbreytta
efnisskrá ásamt þremur hljóð
færaleikurum, þeim Guðnýju Guð
mundsdóttur fiðluleikara, Ragnari
Jónssyni sellóleikara og píanó
leikaranum Richard Simm. Tón
leikarnir verða að venju haldnir í
Norðurljósasal Hörpu sunnudag
inn 14. október og hefjast kl. 16.
Viðburðir
Hvað? „Góðir menn og góðar konur,
komið sem allra, allra fyrst“ – málþing
um spænsku veikina
Hvenær? 14.00
Hvar? Iðnó
Liðin eru 100 ár frá því að spænska
veikin barst til Íslands en í nóvem
ber 1918 var fyrsta dauðsfall vegna
veikinnar skráð í Reykjavík og
fjölgaði dauðsföllum gífurlega á
afar skömmum tíma. Samkvæmt
opinberum tölum létust 484
Íslendingar úr veikinni sem kom
þyngst niður á Reykvíkingum,
en hægt var að stöðva útbreiðslu
hennar með ströngum sóttvörnum
og einangrun manna milli lands
hluta. Framsögufólk á málþinginu
kemur úr röðum sagnfræði og
læknavísinda og eru það Bragi Þor
grímur Ólafsson sagnfræðingur,
Magnús Gottfreðsson, prófessor
og sérfræðingur í smitsjúkdómum,
og Erla Dóris Halldórsdóttir, gjör
gæsluhjúkrunarfræðingur og dokt
or í sagnfræði, sem taka til máls.
Hvað? Listamannaspjall með Önnu
Hallin og Guðjóni Ketilssyni
Hvenær? 14.00
Hvar? Listasafn Árnesinga
Sunnudaginn 18. nóvember kl.
14.00 munu listamennirnir Anna
Hallin og Guðjón Ketilsson spjalla
við gesti um listaverk sín á sýn
ingunni Halldór Einarsson í ljósi
samtímans. Verk listamannanna á
sýningunni eru ólík innbyrðis þó
handverkið sameini þau og á mis
munandi hátt kallast verk yngri
listamanna á við verk Halldórs.
Anna og Guðjón eru tveir af fjór
um núlifandi listamönnum sem
boðin var þátttaka í sýningunni
vegna mismunandi tenginga við
myndlist og feril Halldórs Einars
sonar, sem fæddur var 1893.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 47L A U g A R D A g U R 1 7 . n ó V e m B e R 2 0 1 8
1
7
-1
1
-2
0
1
8
0
3
:4
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
6
A
-6
D
1
4
2
1
6
A
-6
B
D
8
2
1
6
A
-6
A
9
C
2
1
6
A
-6
9
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K