Fréttablaðið - 24.11.2018, Síða 28

Fréttablaðið - 24.11.2018, Síða 28
þessi mál. Ég finn þá að ég er ekki ein í þessum aðstæðum. Það hefur hjálpað. Kannski hefði ég átt að segja frá þessu fyrr,“ segir hún hugsandi. „Það er oft erfitt að horfast í augu við sannleikann. Ég hélt ég þyrfti aldrei að gera það. Ætlaði raunar aldrei að gera það. Ég henti öllu aftur fyrir mig og taldi það best. En svo fann ég bara styrkinn í því að standa með sjálfri mér.“ Fær frið í Afríku Margt sem þú segir frá er í raun stórt áfall. Þetta eru mörg áföll. Hefur þú eitthvað getað unnið þig út úr þessu? „Nei. Það hef ég ekki gert. Um jólin nýt ég þess að vera með Árna syni mínum og fjölskyldu hans. Við búum í sama húsi. Ég fer svo eftir ára- mót til Afríku þar sem dóttir mín býr. Hún hefur búið þar í þrettán ár. Ég mun dvelja þar í þrjá mánuði. Þetta er erfitt tímabil núna þegar ég er að stíga fram. En ég veit ég fæ frið úti. Ég er bara allt önnur þarna úti í Afríku,“ segir Henny og segir Afríkusólina gera sér gott. Ógæfuárin eru sem betur fer aðeins stuttur, en þó of langur, kafli í lífi Henny. Hún kynntist síðar Bald- vini Berndsen sem hún segir hafa verið sér góðan. Hann hafi aldrei hækkað róminn og verið börnunum hennar góður. Þau ferðuðust um landið og heiminn. Bjuggu meira að segja um tíma í Jedda í Sádi-Arabíu. „Ég hef líka verið gæfusöm. Hef líka haft það svo gott. Það er kannski þess vegna sem ég hef ekki talað um þetta erfiða tímabil í lífi mínu. Baddi var mér góður. Við giftum okkur ekki en vorum saman í sautján ár og vorum góðir félagar. Við ferðuðumst mikið saman. Hann dó fyrir þremur árum og ég er að venjast því að vera ein. Að hafa ekki mikið fyrir stafni,“ segir hún og brosir þegar hún áttar sig á því að það hefur lítið breyst. Hún er enn með fangið fullt. „Nú, jæja. En ég ætla mér að verða ný kona þegar ég kem til baka frá Afr- íku,“ segir hún glettin. „Venjulegt fólk þekkti bara heiminn í gegnum svarthvítt sjónvarp.“ „Fimm efstu stelpurnar þurftu að vinna fyrir styrktaraðila keppninnar. Ég var beðin um að fara til Ástralíu.“ Henny átti góð ár með Baldvini Berndsen. Hann var henni góður. Þau ferðuðust um landið og heiminn. „Ég hef líka verið gæfusöm. Hef líka haft það svo gott. Það er kannski þess vegna sem ég hef ekki talað um þetta erfiða tímabil í lífi mínu,“ segir Henny. Brot úr köflum bókarinnar Brot úr kaflanum: Alheimstáningurinn Henny Hermannsdóttir Fyrsti áfangastaður var Kaupmannahöfn þar sem Henny gisti eina nótt og svo var haldið til Parísar. Þar áttu allar evrópsku stelpurnar og stúlkan frá Kongó að hittast, áður en haldið skyldi af stað í þessa ævintýralegu langferð. Henny lenti á Charles de Gaulle-flugvellinum ásamt danska kepp- andanum sem Henny hafði hitt í Kaup- mannahöfn. Þaðan héldu þær á stórt hótel rétt við flugvöllinn. Anddyri hótels- ins var troðfullt af fegurðardrottningum. Svakalega flottum skvísum með „make-up box“ á mörgum hæðum. „Mér brá alveg svaka- lega. Mér brá þegar ég kom á Hótel Loftleiðir, en þetta! Þetta var skelfilegt. Hvert var ég komin? Til að bæta enn á skelfinguna mætti Ungfrú Frakk- land í síðri rúskinnskápu með hatt í stíl. „Það var reim í hattinum og hann hékk um hálsinn á henni, þú veist svona kæruleysislega aftur á bak.“ Þetta fór alveg með það! Henny laumaði heklaða pottlokinu sínu ofan í tösku þar sem það fékk að dúsa það sem eftir lifði ferðar. Hvernig hafði henni dottið í hug að hún væri smart og flott? Hún hafði ekkert í þennan samanburð. Henny flaug af stað frá Frakklandi ásamt 22 öðrum keppendum. Fyrsti viðkomustaður var London þar sem þær fóru í myndatökur Henny var strax umhug- að um að segja mömmu sinni og pabba frá því sem fyrir bar og fyrsta bréf ferðarinnar var skrifað um leið og hún náði í bréfsefni og penna. Hún vissi sem var að breskir blaðaljósmyndarar höfðu myndað þær á flugvellinum og það var ekki alveg útilokað að ein- hverjar myndir hefðu borist til Íslands. „Já, vel á minnst, getið þið ekki kíkt í ensk blöð sem fást hjá Eymundsson og séð hvort það eru ekki myndir? Það var tekið fullt af myndum af okkur. Annars líður mér vel. Verð að fara að sofa. Búin að vaka í tvo sólarhringa. Ykkar Henny.“ Eftir stutta dvöl í London var ferðinni haldið áfram. Flogið var yfir norðurpólinn til Anchorage í Alaska og því næst var stefnan tekin á Japan. Henny vissi lítið sem ekkert um Japan þegar hún lenti loks í Tókýó. Hún þekkti heiminn að mestu í gegnum svart- hvítt sjónvarp og þó að hún væri búin að spáss- era um Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn og hefði kynnst mannlífinu á Piccadilly í London, var þetta ekki vitund líkt þeim útlöndum. Móttökunefnd tók á móti stúlkunum þegar þær lentu og því næst var ekið af stað í rútu. Brot úr kaflanum: Allt stefnir í rétta átt Kvöld eitt þegar Henny var að kenna kallaði mamma hennar í hana og bað hana að koma og hjálpa sér aðeins. Hún og Inga voru að ganga frá dansfötum og Unnur bað Henny að máta fyrir sig nýja búninga. Hún mætti til með að sjá hvernig þeir færu. Henny dreif sig í algjöru hugsunarleysi úr fötunum og þá komu þeir í ljós. Þeir leyndu sér ekki, marblettirnir. Unnur og Inga fengu grun sinn staðfestan. „Hún fór úr fötunum og þvílík skelfing. Hún var öll marin og blá með ljótan skurð á annarri mjöðminni eftir nærbuxur sem hann hafði rifið utan af henni.“ – Inga vinkona. Nú varð ekki þagað lengur. Ein af mömmunum sem var að fylgja barninu sínu í danstíma varð vitni að þessu öllu saman og hringdi umsvifalaust í bróður sinn sem var lögfræðingur. Hann sagði að Henny yrði að byrja á því að fá áverkavottorð, það væri fyrsta skrefið. Inga tók málin í sínar hendur og fór með Henny á slysavarðstofuna. Þær gengu inn í fulla biðstofu og að afgreiðsluborðinu. „Ég get ekki sagt nafnið mitt, “ hvíslaði Henny að Ingu, ég get ekki sagt nafnið mitt, því þá vita allir.“ Konan í móttökunni horfði á þær til skiptis. „Nafnið mitt er Inga Magnús- dóttir og ég er hér vegna barsmíða og heimilis- ofbeldis,“ sagði Inga og með það settust þær. Það var svo ekki fyrr en inn var komið að hún sagði hvor þeirra það væri sem þyrfti hjálp. Frá keppni á Íslandi um full- trúa ungu kynslóðarinnar. 2 4 . n ó v e m b e r 2 0 1 8 L A U G A r D A G U r28 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 4 -1 1 -2 0 1 8 0 3 :4 0 F B 1 1 2 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 7 F -F 3 5 4 2 1 7 F -F 2 1 8 2 1 7 F -F 0 D C 2 1 7 F -E F A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 1 2 s _ 2 3 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.