Fréttablaðið - 11.12.2018, Side 6

Fréttablaðið - 11.12.2018, Side 6
Fáðu blað dagsins í tölvupósti kl. 5.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista Frétta- blaðsins á www.frettabladid.is/ nyskraning. Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Leiðrétting Í frétt á forsíðu Fréttablaðsins í gær var að finna innsláttarvillu þess efnis að borgin greiddi Landsneti 1,73-18,6 krónur fyrir hverja kílóvatnsstund vegna orkuflutninga. Hið rétta er að borgin greiðir 1,73-1,86 krónur vegna þessa. SamféLag Um það bil helmingi færri börn komu til dvalar í Kvenna­ athvarfinu á árinu sem er að líða en í fyrra. Samkvæmt upplýsingum frá Kvennaathvarfinu hafa 57 börn komið til dvalar þar það sem af er ári en þau voru 126 í fyrra. Fjöldi kvenna sem koma til dvalar í athvarfinu er hins vegar svipaður milli ára. Þær voru 149 í fyrra en eru 123 það sem af er þessu ári. Auk þeirra kvenna sem komið hafa til dvalar í Kvennaathvarfinu hafa 216 konur komið í samtals 448 viðtöl á árinu. – aá Færri börn dvelja í Kvennaathvarfinu DómSmáL Ungi hælisleitandinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Litla­Hrauni fyrr á árinu kemur til landsins til að gefa skýrslu við aðal­ meðferð málsins. Honum var vísað úr landi skömmu eftir árásina án vitundar verjanda hans og lögreglu­ mannanna sem fóru með rannsókn málsins. Maðurinn er á vitnalista ákæru­ valdsins, eins og venjan er um brotaþola, og á héraðssaksóknari nú samráð við önnur stjórnvöld, þar á meðal ríkislögreglustjóra, dóms­ málaráðuneytið og fulltrúa Íslands hjá Europol, um mögulegan flutning vitnisins til landsins. Aðalmeðferð í málinu átti að hefjast í Héraðsdómi Suðurlands í gær en var frestað meðal annars vegna þess að annar tveggja ákærðu, Baldur Kolbeins­ son, mætti ekki til aðalmeðferðar. Hann lauk afplánun sinni fyrir nokkru og er frjáls ferða sinna. Ákæra gegn Baldri og Trausta Rafni Henrikssyni tekur til alvarleg­ ustu gerðar líkamsárásar í almenn­ um hegningarlögum; 2. mgr. 218. gr. Meðal gagna í málinu er upptaka af árásinni úr öryggismyndavél en ráðist var að manninum í íþrótta­ sal fangelsisins. Árásin er sögð hafa verið sérlega hrottafengin. Baldur hefur ekki tekið afstöðu til ákær­ unnar en Trausti neitar sök. Baldur var var árið 2014 dæmdur fyrir tvær líkamsárásir á útivistar­ svæðinu á Litla­Hrauni, annars vegar fyrir að hafa veist að samfanga sínum, makað saur í andlit hans og munn og slegið hann svo bæði í höfuð og líkama og hins vegar fyrir að hafa sparkað ítrekað og slegið samfanga sinn í höfuð og líkama með hengilás og hnúajárni. – aá Hælisleitandinn er á vitnalista ákæruvaldsins Ráðist var á manninn í íþróttasalnum á Litla-Hrauni. FRéttabLaðið/anton bRink Sigþrúður Guð- mundsdóttir er framkvæmda- stjóri Samtaka um kvenna- athvarf. UMBOÐSAÐILI JEEP Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ® jeep.is RENEGADE 2.0 DÍSEL, 170 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING, 4 DRIFSTILLINGAR, HÁTT OG LÁGT DRIF. COMPASS 2.0 DÍSEL, 140/170 HÖ. 2.0 BENSÍN, 170 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING, 4 DRIFSTILLINGAR. CHEROKEE 2.2 DÍSEL, 185 HÖ. 9 GÍRA SJÁLFSKIPTING, 4 DRIFSTILLINGAR. GRAND CHEROKEE 3.0 DÍSEL, 250 HÖ, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING, HÁTT OG LÁGT DRIF. JEEP® 7 DAGA VIKUNNAR. ALVÖRU JEPPAR - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF. ÖRFÁIR BÍLAR EFTIR Á GAMLA GENGINU Veiðar Náttúruverndarsamtök Íslands hafa tilkynnt Matvæla­ stofnun um að Hvalur hf. hafi brotið dýraverndarlög við hvalveiðar. Fara samtökin fram á að stofnunin rann­ saki meint brot fyrirtækisins frekar. Náttúruverndarsamtökin telja veiðar Hvals vera ómannúðlegar og skýr brot á dýravelferðarlögum. Ljóst sé að þeirra mati að mörg dýr hafi ekki drepist samstundis við skot og hafi þurft að kveljast óþarflega lengi fyrir síðasta andardráttinn. Samtökin fengu fjölda ljósmynda sem safnað var af Bretlandsdeild samtakanna Sea Shepherd en þau tóku myndir frá svæði rétt utan hval­ stöðvarinnar í Hvalfirði. Samtökin telja myndirnar sanna að fleiri en eitt skot hafi þurft til að drepa fjölda dýra. Skyttur fá jafnan fyrirmæli um að miða á brjóstsvæði hvala til að auka líkur á að dýrin drepist sam­ stundis. Myndirnar sem Sea Shepherd tók sýni jafnframt að skotsár eru á ýmsum stöðum á dýrunum. Af þessi megi ráða „að í mörgum tilfellum er um langvarandi dauðastríð að ræða“, Telja langreyðarveiðar Hvals ekki standast dýravelferðarlög Myndirnar voru teknar í Hvalfirði í sumar og eru sagðar sýna fram á að dýr hafi verið skotin tvisvar og jafnvel oftar. FRéttabLaðið/Sea SHepHeRd Náttúruverndarsamtök Íslands telja sannanir fyrir því að veiðar Hvals hf. á langreyði árið 2018 uppfylli ekki lög um dýravelferð. Fjöldi dýra hafi ekki drepist við fyrsta skot og hafi því dauðastríðið verið óþarflega langt. segir í bréfi Náttúruverndarsamtak­ anna til Matvælastofnunar. Fréttablaðið greindi frá því í sumar að vinnsla á hvalafurðum hefði ekki verið í samræmi við reglugerð frá árinu 2010 þess efnis að hval skuli skera innandyra. Síðar hefði Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra breytt reglugerðinni þess efnis að hún var rýmkuð fyrir fyrirtækið og því aftur leyft að skera matvæli undir berum himni. „Eftirlitið er frekar slakt í þessum efnum. Matvælastofnun á að sjá um eftirlitið með þessu,“ segir Árni Finnsson, formaður Náttúruverndar­ samtaka Íslands. „Svo kemur í ljós að veiðarnar og vinnsla afurðanna var ekki í samræmi við reglugerð, þá er bara gerð undanþága.“ Í dýravelferðarlögum er kveðið skýrt á um að dýr skuli aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti og forðast skuli að valda dýrum óþarfa þjáningum eða hræðslu. Einnig er óheimilt að aflífa dýr með því að drekkja þeim. Telja Náttúruverndarsamtök öll þessi atriði eiga við um veiðar Hvals hf. á langreyði í sumar. „Þegar litið er til allra þeirra sönn­ unargagna sem safnast hafa saman um hvalveiðar Hvals hf. er ljóst að starfsemi fyrirtækisins er frumstæð og uppfyllir ekki skilyrði hinna framangreindu ákvæða. Þar að auki er verkun Hvals hf. á hvalkjöti fram­ kvæmd á óskynsamlegan, bannaðan og óheilnæman máta,“ segir í bréfinu til Matvælastofnunar. „Á það hefur verið bent að það sé partur af fullveldi þjóðarinnar að veiða hval,“ segir Árni. „Við hljótum þá að hafa fullveldi til að hætta þeim.“ sveinn@frettabladid.is 1 1 . D e S e m b e r 2 0 1 8 Þ r i ð J U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 1 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B 2 -9 B A C 2 1 B 2 -9 A 7 0 2 1 B 2 -9 9 3 4 2 1 B 2 -9 7 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.