Fréttablaðið - 11.12.2018, Page 10

Fréttablaðið - 11.12.2018, Page 10
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Að upplifa doða eða upp- gjöf frammi fyrir svo risavöxnu vandamáli eru eðlileg viðbrögð. Það er þjóðfélags- lega mikil- vægt verkefni og eðlilegast að það fyrirtæki sem því sinnir sé í beinni eigu ríkisins. Raforku- kerfið er okkar allra og á að vera í eigu okkar allra. www.hokuspokus.is Verslun og vefverslun Laugavegi 69 S. 551-7955 Galdrasett Kr. 7.490 Bessi Kr. 4.490 Píla Kr. 4.200 Viðarfjós með dýrum Kr. 10.490 Búningar og leikföng eru jólagjafirnar í ár! Landsnet er eitt þeirra mikilvægu fyrirtækja sem sinna því sem okkur stjórnmálamönnum er tamt að kalla innviði; það sem þjóðin öll nýtur í gegnum samneyslu sína. Eignarhaldi á slíku fyrirtæki er því best fyrir komið hjá ríkinu sjálfu. Öllum er ljóst hve mikilvægt er að tryggja að rafmagn flæði um landið allt. Það mikilvægi þarf ekki að reifa frekar, því flestir landsmenn búa við þær aðstæður að þurfa ekki að velta dreifingu rafmagns mikið fyrir sér; það er bara þarna og allt virkar svo við getum kveikt ljós í eldhúsinu. Því miður búa ekki allir við slíkt öryggi. Stefna stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku var samþykkt á Alþingi í júní. Þar er sérstaklega kveðið á um að tryggja skuli afhendingaröryggi á raforku um allt land, en nokkur misbrestur hefur verið á því. Atvinnuveganefnd tiltók við afgreiðslu sína að setja ætti þau svæði í sérstakan forgang þar sem staðan er verst; Vestfirði, Eyjafjarðarsvæðið og Suðurnes. Eignarhald Landsnets er um margt nokkuð sérstakt. Það er í dag hlutafélag í eigu Landsvirkjunar, RARIK, Orkuveitu Reykjavíkur og Orkubús Vestfjarða. Lands- virkjun á langstærsta hlutann, eða tæp 65%. Þetta fyrirkomulag er um margt óheppilegt og hefur m.a. Ríkisendurskoðun gert athugasemdir við það. Mikilvægt er nefnilega að tryggja sjálfstæði Landsnets gagnvart aðilum á raforkumarkaði, en í því ljósi er ekki eðlilegt að fyrirtækið sé í eigu stærstu framleiðenda raforku á landinu. Eins og fram kemur í eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar frá í febrúar, tekur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið undir þessar athugasemdir og hefur til skoðunar tillögur um að fyrirtækið yrði í beinni eigu ríkis og/eða sveitarfélaga, en ekki orkufyrirtækja í þeirra eigu. Landsnet hefur með höndum það verkefni að tryggja það að rafmagn berist til allra landsmanna. Það er þjóðfélagslega mikilvægt verkefni og eðli- legast að það fyrirtæki sem því sinnir sé í beinni eigu ríkisins. Raforkukerfið er okkar allra og á að vera í eigu okkar allra. Landsnet í eigu þjóðar Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna Örtröð í föðurhúsum Björn Ingi Hrafnsson gerði nokkurn usla í fréttanetheimum þegar hann „staðfesti“ á nýjum vef sínum, viljinn.is, að Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi VG, og Gunnlaugur Bragi Björnsson, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, hefðu setið við borð fullu Mið- flokksþingmannanna á Klaustri. Líf og Gunnlaugur vísuðu þessu bæði, harðorð mjög, til „föður- húsanna“ á Facebook. Líf sagði „ekki frétt“ Björns Inga vera „lygaspuna frá óvildarmönnum“, Gunnlaugur greindi einbeittan vilja vina Sigmundar til þess að „bjarga honum frá falli“, eins og þessi „aumkunarverða tilraun“ Björns Inga sannaði. Viljaleysi til lesturs Fréttablaðið.is og visir.is greindu frá viðbrögðum borgarfull- trúanna og kunni þingmaðurinn fyrrverandi Þór Saari síðar- nefnda miðlinum litlar þakkir og hótaði í athugasemd að hætta að lesa hann. „Fjölmiðill sem vill láta taka sig alvarlega vitnar ekki í vefsíðu Björns Inga.“ Þór er ekki einn í siðgöngunni en þegar Þórður Snær Júlíusson svaraði dómi Brynjars Níelssonar um Kaupþingsbók hans á Viljanum sagðist hann ekki vilja „hlekkja inn á þann vef vegna þess að ég hef efasemdir um að þar sé rekin starfsemi sem grundvallast af heilindum og vilja til þess að upp- lýsa almenning“. Mikill er máttur viljans. thorarinn@frettabladid.is Eftir atburði síðustu daga á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Póllandi liggur fyrir að ríkisstjórn Donalds Trump hefur ekki í hyggju að fylgjast með af hliðarlínunni meðan heimsbyggðin tekur höndum saman um aðgerðir til að stemma stigu við loftslagsbreyt- ingum og losun gróðurhúsalofttegunda. Þvert á móti virðist staðreyndin vera sú að Trump og erindrekar Bandaríkjastjórnar ætla að beita sér markvisst gegn því að samstaða náist um þessi mikilvægu markmið og aðgerðir. Bandaríkin hafa stillt sér upp við hlið Rússlands, Sádi-Arabíu og Kúveit og freista þess nú að koma í veg fyrir að nýleg skýrsla milliríkjanefndar Sam- einuðu þjóðanna um loftslagsmál, sem varpaði ljósi á brýna þörf á að draga úr losun ef halda ætti hnatt- rænni hlýnun innan við 1,5 gráður, verði innleidd af krafti í þá samningagerð sem nú stendur yfir í Póllandi. Löndin fjögur eru öll annaðhvort, eða hvort tveggja, stórnotendur eða stórframleiðendur á jarð- efnaeldsneyti. Við finnum nú þegar fyrir áhrifum loftslags- breytinga, og þau áhrif munu magnast á hverju ári í fyrirsjáanlegri framtíð. Þessi staðreynd er engum dulin, ekki einu sinni Bandaríkjaforseta eða kollega hans í Moskvu. Fulltrúar Rússlands og Bandaríkjanna hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að virða velferð og framtíð þegna sinna að vettugi með því að hampa frekar hinu óbreytta ástandi. Þeir vita auðvitað að þeir verða ekki til staðar þegar til kastanna kemur; þegar áskoranir og erfiðleikar umbreytast í óvið- ráðanlegar hörmungar. Við fengum nasasjón af einni birtingarmynd þessara hörmunga í Póllandi í gær þegar hópur fjár- festa, sem saman sýsla með fjármuni sem nema 32 trilljónum Bandaríkjadala, varaði við því að án mark- vissra aðgerða til að draga úr kolabruna og losun gróðurhúsalofttegunda muni efnahagskreppa að líkindum skella á heimsbyggðinni sem verður marg- falt dýpri en sú sem reið yfir árið 2008. Þessi kreppa verður þó ekki aðeins af efnahags- legum toga. Kreppa þessi mun raungerast í loftslags- breytingum sem ógna bæði velferð allra jarðarbúa og þeim lífkerfum sem síðustu árþúsundir hafa staðið í viðkvæmu en nægilega stöðugu jafnvægi til að gefa okkur tækifæri til að blómstra sem tegund. Loftslagsmálin eru flókið og oft yfirþyrmandi umfjöllunarefni. Að upplifa doða eða uppgjöf frammi fyrir svo risavöxnu vandamáli eru eðlileg viðbrögð. Í aldanna rás hefur maðurinn tileinkað sér það skynsamlega viðhorf að læra af reynslunni, því miður er það svo að í tilfelli loftslagsbreytinga höfum við hvorki efni á né tíma til að taka mið af fortíðinni. Hins vegar vill svo heppilega til að á krefjandi tímum sem þessum höfum við nú, í krafti vísinda, samstöðu og mannúðar, tækifæri til að bregðast við og taka af skarið áður en það verður of seint. Þetta reddast alls ekki 1 1 . d e s e m b e r 2 0 1 8 Þ r I Ð J U d A G U r8 s k o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð SKOÐUN 1 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 B 2 -8 2 F C 2 1 B 2 -8 1 C 0 2 1 B 2 -8 0 8 4 2 1 B 2 -7 F 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 1 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.