Fréttablaðið - 11.12.2018, Side 22
Fólk virðist hafa
komist yfir tor-
tryggni gagnvart ljóðum
og höfundar eru að svara
þeim lesendahópi.
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Hvernig geta útsjónarsamir krakkar, með einföldum hætti eða flóknum, komið pabba sínum
á óvart? Pabbar geta nefnilega verið mjög forvitnir um háleynilegar fyrirætlanir.
Þá er eins gott að hafa ríkulegt hugmyndaflug, mikla framkvæmdagleði og auga fyrir því
sem á vegi verður. Víst þarf líka að virkja alla í fjölskyldunni en mikilvægast er þó að kunna
góðar aðferðir til að ekki komist upp um áformin.
Bókaútgáfan Björk – 482 1394 – bokbjork@simnet.is
Hvernig
gleðja á pabba
Bókin
Hvernig gleðja á pabba,
eftir Jean Reagan, er komin út hjá
Bókaútgáfunni Björk á Selfossi.
Hún er kímin og kátleg Hvernig-bók,
þýdd af Björgvin E. Björgvinssyni og
listilega myndskreytt af Lee Wildish.
Flekaskil
eftir
Lárus Jón Guðmundsson
Hvítir miðaldra karlmenn
eru mikið í fréttum þessa
dagana og ekki alltaf af góðu
tilefni. Skemmdu eplin fá
verðskuldaða athygli og
viðeigandi fordæmingu
en fáir velta fyrir sér líðan
og ástandi hinna eplanna í
tunnunni.
Hver er sprettan á andlegum
akri miðaldra karlmanns
sem skynjar eigin dauðleika
handan við hornið? Á hvaða
vegferð er hann? Hvernig
líður honum? Verður
jarðarförin fjölmenn?
3.690 kr
www.hugall.is
Flekaskil
eða
nokkrar hugleiðingar út frá
jarðfræði og kenningum Alfreds
Wegeners sem hvílir frosinn á miðjum
aldri djúpt í Grænlandsjökli
Smá
brot
in lj
óðab
ók!
6 KYNNINGARBLAÐ 1 1 . d e s e m B e R 2 0 1 8 Þ R I ÐJ U DAG U RBóKAjóL
Það sem hangir í hausnum á mér þessa dagana er að ég vildi óska þess að fólk hug
leiði hvað það kaupir og hvers
vegna það kaupir það,“ segir
Bryndís og bætir við: „Þetta kemur
reyndar úr hörðustu átt því ég er
bæði hönnuður, upphafsmaður
og rekstraraðili alls konar hluta
eins og bókmenntaverðlauna og
metsölulista og þess háttar. En nú
er ég aðeins að taka upp hanskann
fyrir lítilmagnann og langar að
biðja fólk að gefa sérstakan gaum
að höfundum sem það þekkir ekki
og lesa kannski aftan á þær bækur
ef það getur. Og líka að kíkja á
þýddar bækur. Af því að þær ósjálf
rátt lenda kannski ekki eins mikið
í sviðsljósinu á þessum tíma eins
og bækur íslenskra höfunda sem
eru aufúsugestir í fjölmiðlum og
víðar. Í þessu samfélagi þar sem
algóritmarnir ákveða næstum fyrir
okkur hvað við eigum að kaupa
er mikilvægt að við töpum ekki
sjálfstæðinu og pössum að hugsa
út fyrir kassann sem búið er að
skammta okkur.“
Hún segir bókajólin vera firna
sterk í ár og á mörgum sviðum.
„Ljóðið hefur tekið fjörkipp og
þetta eru frábær ljóðajól, að
minnsta kosti fimmtán frábærar
ljóðabækur,“ segir hún. „Og allt
svo áhugavert og aðgengilegt. Fólk
virðist hafa komist yfir tortryggni
gagnvart ljóðum og höfundar
eru að svara þeim lesendahópi af
krafti. Ég sé líka á sölulistum að
glæpasögur eru mjög vinsælar sem
er fínt því það er nokkuð tryggt
að maður klárar þær frekar fljótt
yfir jólin og getur þá byrjað strax á
næstu bók og kemst þannig yfir að
lesa meira í jólafríinu.“
Hún nefnir að samband
Íslendinga við bækur sé einstakt.
„Hann er svo fallegur þessi íslenski
siður að gefa og þiggja bók í jóla
gjöf og jafnframt að fara með bók
upp í rúm á jólanótt og lesa, í
þessari dúnmjúku þögn sem leggst
yfir borg og bæi þegar er snjór,“
segir hún og dregur upp mynd
sem flestum er kunn. „Að skríða
undir hreina sæng með súkkulaði
og góða bók er engu líkt. Það er
svo gott umhverfi til lestrar. Og
þetta er auðvitað siður sem hefur
þær jákvæðu aukaverkanir að
bóka útgáfa í landinu hefur haldist
svona blómleg og fjölbreytt.“
Bryndís segir ýmsar áherslur
vera að breytast í bókaútgáfu frá
því sem áður var. „Ævisagan hefur
verið á undanhaldi og minna
áberandi undanfarin ár en samt
eru ævisögur á topp tíu lista hverja
vikuna á fætur annarri,“ segir hún
en bætir við að ævisögurnar hafi
breyst. „Það er ekki endilega verið
að skrifa á efri árum til að líta yfir
farinn veg heldur er fólk meira að
taka fyrir tímabil í lífi sínu. Svo
hafa skáldævisögur aðeins rutt sér
til rúms, skemmtilegt form sem
brýtur veggina á milli skáldverka
og ævisagna. Þannig að það er
ákveðin þróun í gangi sem við
sjáum betur þegar við lítum til
baka eftir tíu til tuttugu ár. Og
kannski erum við að skrifa ævi
söguna okkar á hverjum degi fyrir
allra augum á Facebook og fróðlegt
að sjá hvernig sú kynslóð sem
hefur átt sín fullorðinsár þannig
tekst á við ævisagnahefðina.“
Hún segir augljóslega kraftmeiri
útgáfu í ungmennabókum en
hefur verið. „Við sjáum það bæði
í handbókum og skáldverkum
svo það ætti að vera auðvelt að
finna bók í jólagjöf sem höfðar til
barna og ungmenna á öllum aldri.
Barnabókaútgáfan hefur eflst á
undanförnum árum sem er mikið
fagnaðarefni.“
Stundum vill brenna við að
tískusveiflur ráði því hvaða bækur
verða söluhæstar, enda mikilvægt
að vera viðræðuhæf um söluhæstu
eða umtöluðustu bækurnar í jóla
boðunum. Bryndís segir að þetta
sé vissulega rétt en við höfum þó
fjölbreyttari bókmenntasmekk en
margar aðrar þjóðir. „Íslendingar
lesa fjölbreytt bókmenntaform og
það er kannski styrkur okkar sem
bókaþjóðar. Það má samt kannski
segja að fólk velur stundum höf
undana frekar en bækurnar, við
erum höfundaholl eins og þeir
séu íþróttalið sem við höldum
með ævina á enda. Ég upplifði það
þegar ég vann í bókabúðinni að
fólk kom til að kaupa Guðrúnu
Evu eða Arnald, sagðist eiga allar
bækurnar hans eða hennar en vissi
svo kannski ekki einu sinni hvað
nýja bókin hét. Við erum bæði fast
heldin og safnarar í okkur en svo
erum við svo miklir ættfræðingar,
kannski var höfundurinn með
okkur í skóla eða úr sömu sveit eða
fjarskyld frænka.“
Bryndísi finnst líklegt að sömu
nöfnin muni toppa metsölulistana
og undanfarin ár. „Það eru margar
áhugaverðar og sterkar skáldsögur
í boði fyrir þessi jól og fyrirséð að
grónir höfundar berjist um topp
sæti sölulistanna en líka fullt af
nýjum og spennandi höfundum að
spretta fram sem ég vil ekki að fólk
missi af.“
Firnasterk
bókajól í ár
Ganga má út frá því að flestir Íslend-
ingar fái að minnsta kosti eina bók í
jólagjöf. Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi
íslenskra bókaútgefenda segir bóka-
jólin firnasterk í ár og hvetur fólk til að
kynna sér nýja höfunda og höfunda
sem það hefur ekki lesið eftir áður. Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda segir bókajólin firnasterk í ár. mYNd/eRNIR
1
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
2
-9
1
C
C
2
1
B
2
-9
0
9
0
2
1
B
2
-8
F
5
4
2
1
B
2
-8
E
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
1
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K