Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.12.2018, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 31.12.2018, Qupperneq 16
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Verum þakklát um áramótin. Hættum þrasinu um stund. Ljóst er að kennarar eru í lykilhlut- verki við að efla tungu- málið okkar. OKKAR VINSÆLA ÚTSALA 40% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM ÚTSÖLUVÖRUM Laugavegi 26 HEFST 2. JANÚAR KL.12! Bílslysið hræðilega á Suðurlandi er áminn-ing um að allt er í heiminum hverfult. Fórnarlömbin eru ungar fjölskyldur með allt lífið fram undan. Á einu augnabliki var stoðunum kippt undan tilveru þeirra.Við svona tíðindi verða þrætuepli hvers- dagsins smá. Fyllerísraus þingmanna á öldurhúsi skipta litlu. Það snerist hvorki um líf né limi – aðeins hugar- heim þjóðkjörinna gasprara og orðspor þeirra sjálfra. Sama gildir um mörg önnur úrlausnarefni. Helstu fjölmiðlamálin hafa snúist um flugfélög og kjaravið- ræður. Hvort tveggja eru mikilvæg mál sem botn þarf að fást í, en þau snúast ekki um heill og hamingju. Ísland verður áfram byggt þótt hægist á straumi ferðamanna um stund, og þótt þrasað verði um kjara- mál eitthvað fram á vorið. Stundum þurfum við að muna að vera þakklát fyrir það sem okkur er gefið. Við búum í öruggu landi og njótum stöðugleika í stjórnmálum þótt sitt sýnist hverjum. Hörmungar á borð við styrjaldir, skipulagða kúgun og hungursneyð þekkjum við ekki. Nánast hvergi á byggðu bóli ríkir meiri jöfnuður, hvort sem litið er til eigna eða meðaltekna. Við erum ofarlega á flestum listum sem mæla lífsgæði. Fátækt er hverfandi – þótt vitaskuld þurfi að rétta hlut þeirra sem minnst bera úr býtum. Þar er verk að vinna. Við búum við nokkuð traust heilbrigðiskerfi og skólakerfið er gott á nánast alla mælikvarða. Okkur hefur tekist að búa til gott samfélag þótt ekki sé það gallalaust. Hæfileikafólk finnur sér farveg. Sigrar í listum og íþróttum, sem heimsbyggðin tekur eftir, vitna um það. Við erum í fremstu röð í jafnréttismálum, þótt brýnt sé að halda baráttunni áfram. Hér ríkir tjáningarfrelsi og öflugir fjölmiðlar eru starfræktir. Vandamál okkar eru í flestum samanburði fremur smávægileg – svokölluð fyrsta heims vandamál. Þrátt fyrir þetta má ekki gleymast að hér er fólk sem á um sárt að binda. Góð staða almennt ætti að gera okkur auðveldara að koma til móts við þá sem höllum fæti standa. Við eigum þrátt fyrir allt ekki svo langt í land. Voveiflegir atburðir minna okkur reglulega – því miður alltof oft – á ótrúlegar dáðir björgunarsveitanna. Þrautþjálfaðir sjálfboðaliðar þeirra eiga sér fáar hlið- stæður og vekja aðdáun um lönd og álfur. Sitt sýnist hverjum um blys og flugelda og himinháar fjárhæðir sem fuðra upp um hver áramót. Þar togast á sjónarmið, sem sum eru ný í umræðunni. En hvað sem öðru líður: peningarnir eru ekki „brenndir“ til einskis – þeir eru lítið iðgjald fyrir frábæra þjónustu sem við getum ekki verið án. Verum þakklát um áramótin. Hættum þrasinu um stund. Gleðilegt nýtt ár. Hættum þrasinu Í kvöld tökum við á móti nýju ári og kveðjum við-burðaríkt ár sem hefur einkennst af skemmtilegum og krefjandi áskorunum. Á slíkum tímamótum staldrar fólk gjarnan við og lítur yfir farinn veg. Á árinu sem er að líða hefur íslenskan verið sett í öndvegi í opinberri stefnumótun og einnig hjá atvinnulífinu. Vaxandi áhrif tölvu- og samskiptatækni á daglegt líf krefjast aðgerða til að tungumál, líkt og okkar, séu gjaldgeng í nútímasamskiptum. Stjórnvöld kynntu heildstæða áætlun til þess að styrkja stöðu íslenskunn- ar og tryggja að hún verði áfram notuð á öllum sviðum þjóðlífsins. Mikilvægt skref var stigið á þeirri vegferð í mánuð- inum þegar Alþingi samþykkti frumvarp um stuðning við útgáfu bóka á íslensku. Það felur í sér 25% endur- greiðslu vegna beins kostnaðar við útgáfu íslenskra bóka en áætluð framlög eru um 400 milljónir kr. á ári. Að auki verður stofnaður sérstakur barna- og unglingabókasjóður. Einn angi þess að efla íslenskuna snýr að fjölmiðlum en þeir gegna mikilvægu hlutverki við miðlun upplýsinga og sem vettvangur skoðanaskipta. Rekstrarumhverfi þeirra er hins vegar erfitt. Við þessu ætlum við bregðast en á vor- þingi mæli ég fyrir frumvarpi um stuðning við einkarekna fjölmiðla sem mun gera þá betur í stakk búna til að miðla vönduðu fréttaefni á íslensku og efla þannig lýðræðislega umræðu. Við viljum gera íslenskuna gjaldgenga í staf- rænum heimi en á árinu var hrint af stað verkáætlun um máltækni. Í því felst að þróa tæknilausnir sem munu gera okkur kleift að eiga samskipti við tækin okkar á íslensku. Áætlunin er að fullu fjármögnuð en áætlaður kostnaður við hana er 2,2 milljarðar kr. Á skólamálaþingi Kennarasambands Íslands í haust var skrifað undir viljayfirlýsingu um að hrinda í framkvæmd vitundarvakningu um mikilvægi íslensks máls. Þetta rímar meðal annars við þingsályktunartillögu í 22 liðum um eflingu íslenskunnar sem ég mælti fyrir nýverið. Ljóst er að kennarar eru í lykilhlutverki við að efla tungumálið okkar og því taka stjórnvöld frumkvæðinu fagnandi. Að því sögðu óska ég landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir viðburðaríkt ár sem er á enda. Sókn íslenskunnar Lilja Alfreðsdóttir menntamála- ráðherra Í afneitun á áramótum Upp er runninn þessi einkennilegi dagur þar sem Íslendingar láta eins og það sé eðlilegt að fjár- magna þurfi almannavarnakerfið með kaupum á mengandi flug- eldum. Á nýársnótt um síðustu áramót leituðu 60 manns á bráða- móttöku vegna flugeldamengunar eða flugeldaslysa, svona eins og að náttúruhamfarir hefðu átt sérstað. Mörgum fannst nóg komið eftir hamfarir síðustu áramóta, nema talsmönnum Landsbjargar sem sögðu það bara alls ekkert víst að flugeldunum væri um að kenna og freistuðu þess að finna aðra orsök en þessi 600 tonn af púðri sem fírað var upp. Lítið bólar á snilldarlausn björgunarsveitanna. Furðu fjölmenn stétt Það vakti töluverða athygli hversu margir íþróttafréttamenn höfðu atkvæðisrétt í kjöri um íþrótta- mann ársins. Formaðurinn, Eiríkur Stefán Ásgeirsson, til- kynnti að 30 íþróttafréttamenn hefðu kosið sem þýðir að nánast hver og einn sem skrifar um íþróttir fær að kjósa. Skiptir þá engu hvort það séu vefsíður eða starfsmenn í hlutastarfi. Kristjana Arnarsdóttir, íþrótta- fréttakona á RÚV, var í einkenni- legri stöðu en kærasti hennar, Haraldur Franklín, var í kjörinu eftir frábært ár í golfinu. Krist- jana opinberaði það á samfélags- miðlum að hún hefði kosið Söru Björk. kjartanh@frettabladid.is 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 3 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E C -C 4 B 4 2 1 E C -C 3 7 8 2 1 E C -C 2 3 C 2 1 E C -C 1 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.