Fréttablaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000 Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Láru G. Sigurðardóttur BAKÞANKAR Eina dimma vetrarnótt sofnuðu tíbeskir munkar á kletta-syllu í -17 gráðum. Einu klæði þeirra voru ullar- eða bómullarsjal. Enginn skalf og allir vöknuðu við sólarupprás og héldu í klaustrið sitt. Atburðurinn var festur á filmu af rannsóknarteymi frá Harvard, sem hefur sýnt fram á að með hug- anum getum við stjórnað ýmissi líkamsstarfsemi. Eins og hugurinn er magnaður getur það verið þrautin þyngri að standa við áramótaheit. Þekkt rannsókn sýndi að 92% fólks standa ekki við áramótaheit sín. Áramót eru samt kjörinn tími til að líta yfir farinn veg og huga að næstu skrefum. Oftast ganga ára- mótaheit út á að bæta heilsu okkar sem er jákvætt í sjálfu sér. Í stað þess að strengja áramótaheit hafa taugavísindamenn ráðlagt að betra væri að tileinka sér nýjan lífsstíl í skrefum. Ef maður ætlar að hætta að borða sykur þá er gæfulegra að minnka sykurinn smám saman. Og ef uppáhaldskonfektmolinn er á veisluborði frænku er lífsstíls- breytingin ekki unnin fyrir gýg þó að maður fái sér einn. Við þurfum ekki að hafa full- komna stjórn á eigin lífi til að njóta þess. Fæst okkar eru fær um það. Kannski snýst það meira um að lifa eftir þeim gildum sem skipta okkur máli. Að vera sátt og þakklát fyrir það sem við höfum en jafnframt stefna að markmiðum okkar, sem geta verið að heimsækja vin, borða hollara eða hreyfa okkur meira. Við komumst líklega aldrei nálægt sjálfstjórn tíbesku munk- anna en hugur okkar er öflugri en við oft teljum. Við breytum ekki heilanum á einni nóttu en með hverri atlögu styrkjast taugabrautir að nýju markmiði – þessi torfæru- slóði verður ekki greiðfær með einni ferð. Ég óska lesendum velfarnaðar og gæfu á nýju ári. Áramótaheit FYRIR SVANGA FERÐALANGA *0,5 l gos í plasti frá Ölgerðinni. Tilbúin vara, ekki hægt að breyta. PANINI OG GOS* COMBO VERÐ: 499KR Takk! Hjartans þakkir fyrir góð og gefandi samskipti á árinu sem er að líða. Hlökkum til að skína skært með ykkur á nýju ári. Þú getur meira með Símanum siminn.is 3 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 E C -A 2 2 4 2 1 E C -A 0 E 8 2 1 E C -9 F A C 2 1 E C -9 E 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.