Fréttablaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 36
Ein staðfesting þess að Íslendingar líta enn á sig sem bókaþjóð opin-berast í því að bókin er gríðarlega vinsæl jóla-gjöf. Salan fyrir þessi jól
var góð og ekkert lát er á vinsældum
bóka Arnaldar Indriðasonar og Yrsu
Sigurðardóttur. Arnaldur er fagmaður
sem bregst ekki, enginn glæpasagna-
höfundur hér á landi skrifar jafn vel
og hann og persónusköpun hans er
ætíð traust. Þeir lesendur sem sækja
í vandaðar glæpasögur geta ekki án
bóka hans verið. Í nýjustu bók hans
Stúlkunni hjá brúnni sýnir sig enn
einu sinni hversu rík samúð höf-
undar er með þeim sem þurfa að þola
ofbeldi.
Einn helsti styrkur Yrsu Sigurðar-
dóttur er hversu vel henni tekst að
koma lesendum sínum á óvart. Þegar
lesandinn telur að atburðarásin liggi
ljós fyrir kemur Yrsa með óvæntan
snúning og það gerði hún einmitt
laglega í Brúðunni. Ragnar Jónasson
virðist vera að stækka lesendahóp
sinn, en Þorpið lenti ofarlega á met-
sölulistum fyrir þessi jól. Enn betri
var þó Krýsuvík Stefáns Mána, bæði
vel skrifuð og spennandi, og þar
skapaði höfundurinn bestu persónu í
íslenskri glæpasögu þetta árið, sem er
unglingsstúlkan Kinga. Glæpasagna-
höfundurinn Lilja Sigurðardóttir
leiddi síðan fram á svið einkar góðar
og áhugaverðar kvenpersónur í Svik-
um og viss léttleiki í frásögninni gerir
bókina einkar skemmtilega aflestrar.
Klassísk Ungfrú Ísland
Glæpa- og spennusögur njóta gríð-
arlegra vinsælda meðal lesenda og
erfitt er fyrir höfunda svonefndra
fagurbókmennta að keppa við þá.
Auði Övu Ólafsdóttur tókst þó
svo sannarlega að stimpla sig inn í
hjörtu íslenskra lesenda með hinni
frábæru bók sinni Ungfrú Ísland
sem er skáldsaga ársins og líkleg
til að verða klassík. Erfitt verður í
framtíðinni að ræða um kvenna-
bókmenntir án þess að taka mið af
þessari skáldsögu um skáldkonur og
hlutskipti þeirra í samfélagi þar sem
ekki var gert ráð fyrir að þær hefðu
rödd.
Gagnrýnendur voru sammála
um að hinn orðsnjalli Hallgrímur
Helgason væri upp á sitt besta í
Sextíu kíló af sólskini og Bergsveinn
Birgisson sendi frá sér Lifandilífs-
læk, sem er sennilega besta skáld-
saga hans til þessa, allavega er þar
að finna besta lokakafla íslenskrar
skáldsögu þetta árið. Gyrðir Elías-
son sendi frá sér eitt af meistara-
verkum sínum, hinn tregafulla
Sorgarmars. Einar Kárason var
í fantaformi í Stormfuglum sem
hefðu átt skilið að fá meiri athygli
í jólabókaflóðinu, en bókin kom út
fyrr á árinu. Guðrún Eva Mínervu-
dóttir gladdi svo aðdáendur sína
með smásagnasafninu Ástin Texas
og Ófeigur Sigurðsson sannaði hug-
myndaríki sitt eina ferðina enn í
nýrri skáldsögu, Heklugjá.
Fríða Ísberg er ein af stjörnum
þessa jólabókaflóðs, en í smásagna-
safni sínu Kláða er hún einkar næm
á samtíma sinn og kryfur hann á
snjallan hátt í sögum sem fjalla
einkum um ungt fólk og tilfinningar
Gjöfult bókaár
Kolbrún Bergþórsdóttir gerir upp bóka-
árið 2018 sem var verulega gott. Mikil
fjölbreytni var ríkjandi.
Skáldsaga ársins er Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fríða Ísberg
hlýtur að teljast
ein af stjörnum
ársins en smá-
sagnasafn
hennar Kláði
fékk afar góða
dóma.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
þess, en allt er þar svo vel gert að
þeir eldri hljóta að tengja við sögu-
efnin.
Ljóðskáld og ævisögur
Ljóðaunnendur mega vel við una
því hver góð ljóðabókin rak aðra.
Gerður Kristný hefur margsýnt
hversu gott ljóðskáld hún er og nýj-
asta ljóðabók hennar Sálumessa er
áhrifamikill bálkur um skelfilegar
afleiðingar kynferðisofbeldis. Bubbi
Morthens var á svipuðum slóðum
í góðri ljóðabók, Rof. Linda Vil-
hjálms-
dóttir sendi frá sér hið
kraftmikla Smáa letur, Steinunn Sig-
urðardóttir Að ljóði munt þú verða
og Þórarinn Eldjárn Vammfirringu
þar sem mikil fjölbreytni ræður
ríkjum. Það eru ætíð tíðindi þegar
Hannes Pétursson sendir frá sér
ljóðabók og ný bók hans Haustauga
geymir vönduð og minnisstæð ljóð,
ekki síst um látna samferðamenn.
Matthías Johannessen sendi frá sér
ágæta ljóðabók, Enn logar jökull.
Meðal ljóðasafna ársins má nefna
stórskemmtilegt ljóðasafn Dags
Sigurðarsonar og ljóðasafn Ólafs
Jóhanns Sigurðssonar og bók sem
geymir úrval ljóða Sigurðar Páls-
sonar. Söfn sem sannir ljóðaunn-
endur geta varla verið án vilji þeir
standa undir nafni.
Ólafur Gunnarsson sendi frá sér
hina bráðskemmtilegu bók Lista-
mannalaun, með harmrænum
undirtón, þar sem hann sagði frá
kynnum sínum af gallagripunum
Alfreð Flóka, Degi Sigurðarsyni og
Steinari Sigurjónssyni. Ragnar Helgi
Ólafsson fjallaði um föður sinn og
bækur í áhugaverðu verki, Bókasafn
föður míns. Ásdís Halla Bragadóttir
hélt áfram að segja sögu fjölskyldu
sinnar í Hornauga og þar var að
finna óvæntar uppljóstranir sem
vöktu greinilega áhuga lesenda því
bókin seldist vel.
Barnabækur heilla
Barna- og unglingabókahöfundar
landsins draga hvergi af sér við að
halda yngri kynslóðum að bókum.
Einn sá eljusamasti er Ævar Þór
Benediktsson sem sigraði ungdóm-
inn með bók sinni Þitt eigið tíma-
ferðalag sem varð ein af söluhæstu
bókum ársins. Systkinin Þórarinn
og Sigrún Eldjárn lögðu saman
í Ljóðpundara sem eins og fyrri
barnaljóðabækur þeirra er merki-
legt og þarft innlegg í barnabóka-
flóruna. Sigrún sendi einnig frá sér
eina af sínum bestu barnabókum,
Silfurlykilinn, um framtíð þar sem
svo margt sem nú er talið sjálfsagt er
ekki lengur til. Gunnar Helgason og
Kristín Helga Gunnarsdóttir héldu
áfram að gleðja fjölmarga lesendur
sína. Meðal spennandi ungmenna-
bóka ber að nefna Ljónið eftir Hildi
Knútsdóttur, Rotturnar eftir Ragn-
heiði Eyjólfsdóttur og Stormsker
eftir Birki Blæ.
Bestu barna- og ungmenna-
bækurnar eru ekki bara fyrir yngri
kynslóðir heldur alla aldurshópa.
Múmínálfabækur Tove Jansson
eru dæmi um það en þrjár þeirra
komu út í íslenskri þýðingu í stór-
bók. Múmínálfarnir hafa haft áhrif á
kynslóðir bókaunnenda og hver ný
kynslóð umfaðmar þá með gleði.
Einnig verður að geta bókar Phi-
lips Pullman, Villimærin fagra, sem
markaðssett er fyrir ungmenni en
mun gleðja alla aldurshópa, gríðar-
lega spennandi og full af eftirminni-
legum persónum, bæði góðmenn-
um og illmennum.
Dickens á íslensku
Loks kom svo að því að eitt af
stórvirkjum Dickens var þýtt
á íslensku, Saga tveggja borga.
Enginn skáldsagnahöfundur
hefur skapað jafn margar eftir-
minnilegar persónur og Dickens.
Hann er einstaklega kraftmikill
höfundur og það er sönn unun að
lesa verk hans. Fréttir bárust svo
nýlega af því að von væri á öðru
meistaraverki hans á íslensku, en
þar er um að ræða Glæstar vonir.
Verk annars stórkostlegs rithöf-
undar, Fjodors Dostojevskí, kom út,
Hinir smánuðu og svívirtu. Ekki má
svo gleyma Evgeníu Grandet eftir
Balzac. Allt sundrast eftir Chinua
Achebe er enn eitt meistaraverkið
sem kom út í íslenskri þýðingu á
árinu. Hin sígilda Kapítóla í endur-
skoðaðri þýðingu var endurútgefin
við hrifningu íslenskra lesenda.
Fjölmargar erlendar glæpasögur
komu út og sú besta er Hinn grunaði
hr. X eftir Japanann Keigo Hiashino,
sannarlega öðruvísi glæpasaga.
Grein hins eina sanna Benedikts
Gröndal um Reykjavík um aldamót-
in 1900 kom út í fallegri og afar eigu-
legri bók, stórskemmtilegur texti
þar á ferð. Ekki er svo hægt að ljúka
yfirferð um bókaárið 2018 án þess
að geta stórvirkisins Flóra Íslands,
sem er í alla staði stórglæsilegt verk.
3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R28 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
3
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
E
C
-A
C
0
4
2
1
E
C
-A
A
C
8
2
1
E
C
-A
9
8
C
2
1
E
C
-A
8
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K