Fréttablaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 30
Nýjast Þú færð Auði á næsta flugeldamarkaði björgunarsveitanna Auður er ein af þeim flottustu. Rauðar og grænar kúlur skjótast upp og springa í glitrandi blóm. Ýlur sem synda ískrandi upp himininn og gyllt stjörnuglitur sem springur út með braki og brestum. skot 40 SEK 4 5 9 100 kg Sautján marka sigur gegn lærisveinum Arons Kristjánssonar Stefna í rétta átt Íslenska karlalandsliðið vann öruggan sautján marka sigur á liði Barein undir stjórn Arons Kristjánssonar í gær. Þetta var síðasti leikur Íslands hér á landi fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÓTBOLTI Sara Björk Gunnars- dóttir, fyrirliði íslenska kvenna- landsliðsins í knattspyrnu og leik- maður Wolfsburg í Þýskalandi, var um helgina kjörin íþróttamaður ársins 2018. Er hún sjöunda konan sem hlýtur þessa nafnbót og önnur knattspyrnukonan sem hlýtur þessa nafnbót í árlegu kjöri Sam- taka íþróttafréttamanna. Alls fékk Sara Björk 464 stig af sex hundruð mögulegum en í öðru sæti var kraft- lyftingakappinn Júlían J.K. Jóhanns- son með 416 stig og knattspyrnu- maðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í því þriðja með 344 stig. Í kosningunni um þjálfara ársins þótti Kristján Andrés- son, þjálfari sænska l a n d s l i ð s i n s í handbolta, skara fram úr eftir að hafa stýrt liðinu í úrslitaleik Evr- ópumótsins í árs- byrjun og lið Íslands sem v a n n t i l g u l l v e r ð - launa á EM a t v i n n u - k y l f i n g a í golfi var v a l i ð l i ð ársins. A l l s v a r þetta í sjöunda skiptið sem Sara er tilnefnd til þessara verð- launa og segir hún í samtali við Fréttablaðið að það hafi verið kærkomið að heyra nafn sitt kallað þó að hún hafi átt erfitt með að meðtaka það. „Ég varð hálf dofin þegar þetta var tilkynnt en þetta er ótrúlega mikill heiður, þetta er æðsta viðurkenn- ing sem íslenskir íþróttamenn geta fengið.“ Hún tekur undir að þetta sé við- urkenning á því hversu langt hún sé komin sem knattspyrnukona. „Ég er alltaf að reyna að taka framförum og finna þessa stærstu titla og ég er á góðum stað hjá Wolfsburg til að ná mínum mark- miðum. Það er komið langt síðan ég var ung stúlka að æfa á Ásvöllum með drauma um atvinnumennsku en þetta sann- ar að það er hægt að kom- a s t l a n g t , “ segir Sara sem er góð fyrir- mynd fyrir ungar knatt- spyrnukonur. „ Þ a ð e r mikilvægt að sýna ungum s t e l p u m að það er m ö g u - leiki að f a r a í atvinnu- mennsku, að vinna við það sem maður elskar að gera. Fyrirmyndirnar eru ekki bara karlar úr sterkustu deild- um heims, það eru komnar stærri fyrirmyndir í kvennaboltanum og það eru forréttindi að vera ein af þeim. Þegar ég var yngri voru þær sem fóru út yfirleitt að vinna með fótboltanum en kvennafótboltinn er búinn að þróast heilmikið og er á réttri leið.“ Hún var nýlega valin 31. besta knattspyrnukona heims í árlegri kosningu The Guardian. „Það er stór viðurkenning að vera talin meðal bestu leikmanna heims og ég hef lengi stefnt á það. Þegar ég var 18-19 ára stefndi ég á að vera í flokki bestu miðjumanna heimsins. Þetta sýnir að það er allt hægt ef viljinn og sjálfstraustið er til staðar,“ segir Sara sem hefur unnið tvöfalt síðustu tvö ár með Wolfs- burg og lék til úrslita í Meistaradeild Evrópu í vor. „Fyrst og fremst vil ég vinna titla með liðinu mínu. Einstaklingsverð- laun eru auðvitað alltaf kærkomin en ég hugsa fyrst um hagsmuni liðsins,“ segir Sara Björk. kristinnpall@frettabladid.is Vil vera fyrirmynd fyrir ungar stúlkur Knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir var valin íþróttamaður ársins 2018 um helgina. Hún er sjöunda konan sem hlýtur nafnbótina eftir að hafa unnið tvöfalt í Þýskalandi með einu sterkasta félagsliði heims, Wolfsburg. Það er komið langt síðan ég var ung stúlka að æfa á Ásvöllum með drauma um atvinnu- mennsku. Fleiri myndir úr Laugardalshöll er að finna á +Plús- síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta- blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS Ísland - Barein 36-19 Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 8, Sigvaldi Björn Guðjónsson 7, Elvar Örn Jónsson 5, Rúnar Kárason 3, Ómar Ingi Magnússon 3, Arnór Þór Gunnarsson 3, Björgvin Páll Gústavsson 1, Aron Pálmars- son 1, Ýmir Örn Gíslason 1, Arnór Þór Gunn- arsson 1, Gísli Þorgeir Kristjánsson 1, Ólafur Gústafsson 1, Heimir Óli Heimisson 1. Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 9, Aron Rafn Eðvarðsson 4. Æfingarleikur Brighton - Everton 1-0 Fulham - Huddersfield 1-0 Leicester - Cardiff 0-1 Tottenham - Wolves 1-3 Watford - Newcastle 1-2 Liverpool - Arsenal 5-1 Crystal Palace - Chelsea 0-1 Burnley - West Ham 2-0 Southampton - Man. City 1-3 Man. United - Bournem. 4-1 Enska úrvalsdeildin Úrslit 19. umferðar 2018-19 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 3 1 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 E C -D 8 7 4 2 1 E C -D 7 3 8 2 1 E C -D 5 F C 2 1 E C -D 4 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 3 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.