Fréttablaðið - 31.12.2018, Blaðsíða 22
um með svart/hvíta hárkollu og
grunaði þá að hverju stefndi. Ég átti
síðan skemmtilega stund með fjöl-
skyldu minni og Áramóta skaup inu
á gamlárskvöld í fyrra.“
Þegar Berglind er spurð hvort
henni finnist eitthvað virkilega
fúlt sem gerðist á árinu er hún
fljót að svara. „Já, mér fannst þetta
Klausturmál alveg hræðilegt. Það
er líklega minnisstæðast og stendur
upp úr. Aftur á móti man ég ekki
eftir neinu sem mér fannst sér-
staklega ánægjulegt nema þegar
kemur að einkalífinu. Ég keypti
mér íbúð á árinu sem ég er mjög
ánægð með. Það var þriðja íbúðin
mín. Ég hef verið dugleg að flytja
síðustu ár,“ segir Berglind en vill
ekki viðurkenna að einhver kærasti
sé í kortunum. „Ég má ekkert vera
að svoleiðis,“ segir hún.
Berglind ætlar að halda ára-
mótin með fjölskyldu sinni. „Við
borðum kalkún og svo horfum við á
Skaupið. Ef einhver býður mér í gott
partí gæti ég verið til í það. Sonur
minn skiptist á að vera hjá föður
sínum og mér á jólum og áramót-
um. Eftir áramótin mæti ég í nýja
vinnu og ætla að halda áfram að
hafa það gott. Ég vona að allir reyni
að verða betri útgáfa af sjálfum sér á
komandi ári. Svo er betra að vara sig
á upptökutækjum á almannafæri,“
segir Berglind Festival.
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is,
s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 550 5766 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 550 5769 | Starri Freyr Jóns-
son, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Berglind þarf ekkert að hugsa sig lengi um þegar hún er spurð hvort eitthvað sé sér-
staklega minnisstætt frá árinu sem
er að líða. „Árið 2017 ferðaðist
ég óvenju lítið og hét sjálfri mér
að bæta úr því á árinu 2018. Ég
stóð við það og fór nokkrar ferðir,
meðal annars til Lundúna, Berlínar
og Kaupmannahafnar. Ég fór til
dæmis í eina ferð til Köben til að
taka upp fyrir sjónvarpsþáttinn
og það var virkilega skemmtileg
áskorun. Ég var í íslenska þjóð-
búningnum á Strikinu. Eftirminni-
legust er ferð til Japans með vin-
konu minni. Það var stórkostlegt
að koma þangað og ég á örugglega
eftir að fara aftur. Við fórum til
Tókýó, Osaka og Kýótó. Maturinn
var einstakur og það er alltaf hollt
fyrir mann að sjá hve lítill maður
er í stóra samhenginu en í Japan
er allt svakalega stórt og mikil
mannmergð. Við bjuggum á litlum
hylkjahótelum sem var ágætt en
rúmin voru oft ansi hörð. Stundum
færðum við okkur á teppalagt
gólfið sem var mýkra en dýnan
og við sváfum betur þar,“ útskýrir
Berglind.
Búddar og góða skapið
Klósettmenning er sérstök í Japan
þar sem á flestum stöðum eru
fullkomin salerni með mörgum
stillingum. Berglind segist ekki hafa
lært á takkana en henni var góðfús-
lega bent á að fólk færi á inniskóm
inn á baðherbergið. Inniskór eru
í boði fyrir gesti á hótelum. „Þetta
var fyrsta ferðin mín til Asíu og ég
vonast til að komast aftur á nýju
ári. Eitt búddahof á dag kemur
skapinu í lag, sögðum við stund-
um,“ segir hún. „Við vinkonurnar
verðum báðar þrítugar snemma
á næsta ári og vonumst til að fá
ferðapening í afmælisgjöf,“ segir
Berglind en hún er móðir sjö ára
drengs sem heitir Kári Halldórsson.
Faðir hans er Halldór Halldórsson,
Dóri DNA, en Berglind segir að Kári
sé afar sáttur við að sjá báða for-
eldra sína reglulega á skjánum.
Í ballett frá unga aldri
Þótt Berglind virðist hafa ágætis
leikarahæfileika hefur hún aldrei
lært leiklist né starfað sem slík.
Hún er lærður listdansari og æfði
dans frá fjögurra ára aldri. „Móður-
systir mín er María Gísladóttir
ballerína sem var vel þekkt hér
á landi og erlendis á sínum tíma.
Hún hafði mikil áhrif á mig eins og
aðrar ungar stúlkur,“ segir Berglind
sem hóf ballettnám aðeins fjögurra
ára.
María bjó lengi í Berlín þar sem
hún var dansari við Deutsche
Oper-Berlín. Hún starfaði fyrir
nokkur fleiri óperuhús í Þýska-
landi en einnig í New York og Los
Angeles. Í dag kennir hún ballett
hér á landi.
Berglind lærði samtímadans í
Listaháskóla Íslands og útskrifaðist
þaðan 2011. „Ég vann sem dansari
í tæp tvö ár en fór þá í auglýs-
ingabransann. Hef unnið sem
hugmyndasmiður og textagerðar-
maður. Ég byrja reyndar í nýrri
vinnu hjá markaðsdeild Símans
eftir áramótin og hlakka mikið til.
Þótt örlögin hafi hagað því þannig
að ég hætti að dansa hef ég alltaf
verið viðloðandi bransann. Ég sat
í stjórn Reykjavík Dans Festival og
einnig í Grímunefnd fyrir hönd
íslenskra listdansara. Allar mínar
bestu vinkonur eru dansarar og ég
held góðu sambandi við þær. Líf
mitt hefur að stóru leyti snúist um
dansinn en sem barn ætlaði ég mér
frekar að verða læknir, leikari eða
lögfræðingur,“ segir hún.
Með Gísla Marteini
„Ég vann upphaflega við undirbún-
ing á þætti Gísla Marteins, meðal
annars við að fá skemmtilegt fólk í
þáttinn en hlutverk mitt óx talsvert
á síðasta ári þegar innskot mín
urðu stærri,“ segir Berglind en þetta
er fjórða árið sem hún vinnur með
Gísla Marteini. „Þetta hefur verið
lærdómsríkt, krefjandi og ekki síst
skemmtilegt starf. Mér líður aldrei
eins og ég sé í vinnunni. Þættirnir
verða áfram í vetur og hefjast í
febrúar. Í upphafi hafði Gísli sam-
band við mig og spurði hvort ég
vissi um einhvern sem gæti verið
með honum í ritstjórn þáttarins. Ég
var í annarri vinnu og benti honum
á nokkra. Á endanum var það ég
sem tók starfið að mér og var í
fyrstu bara á bakvið tjöldin. Svo fór
þetta að vaxa í höndunum á mér,“
segir Berglind sem er í rauninni
komin með eigin þátt inni í þáttum
Gísla. „Við erum lítið teymi bak við
þáttinn sem þarf að vera með putt-
ann á púlsinum og finna áhuga-
vert fólk. Sjálf reyni ég að komast í
Spaugstofugírinn þegar kveikt er á
myndavélinni þótt ég sé ekki alltaf
í djókinu. Vissulega þarf maður
þó að vera á léttu nótunum,“
segir Berglind sem hefur sett upp
nokkrar danssýningar í gegnum
árin, meðal annars í Tjarnarbíói og
Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
Tekin fyrir í Skaupinu
Berglind hefur ekki leikið í Ára-
móta skaupi Sjónvarpsins en í fyrra
var hún tekin fyrir sem flippuð og
fyndin. Það var Anna Svava Knúts-
dóttir sem brá sér í gervi hennar
með góðum árangri. „Mér fannst
það mikill heiður,“ segir Berglind
en á ekki von á að verða tekin fyrir
aftur. „Ég sá Rögnu Fossberg læðast
Berglind ferðaðist mikið á árinu sem er að líða og langar til að gera meira af því á nýju ári. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Berglind ferðaðist til Japans með
vinkonu sinni á árinu og upplifði
skemmtilega tíma. Þangað langar
hana aftur.
Berglind heimsótti Kýótó, Osaka og
Tókýó í ferðalagi sínu til Japans.
Í japanskri verslun en þær eru sumar
óvenjulegar.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
“Doktor.is er ætlað að auðvelda aðgengi
almennings að upplýsingum og ráðgjöf
um heilsu, lífsstíl og forvarnir.,,
Teitur Guðmundsson, læknir og ritstjóri doktor.is
Ráðgjöf Fræðsla Forvarnir
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
3
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
C
-B
F
C
4
2
1
E
C
-B
E
8
8
2
1
E
C
-B
D
4
C
2
1
E
C
-B
C
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K