Fréttablaðið - 31.12.2018, Síða 37
1.JAN. sýningartímar//showtimes!
Milosc jest wszystkim(pol. w/eng sub) ..17:30
Kalt stríð // Cold War (eng sub) .... 18:00
Suspiria (ice sub) .................................... 18:00
First Reformed (english-no sub) ... 20:00
Kona fer í stríð/Woman at War(eng sub) 20:00
Roma (spanish w/eng sub) ....................21:00
Anna and the Apocalypse (ice sub) 22:00
First Reformed (english-no sub) ....22:20
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Við sendum
landsmönnum
hlýjar kveðjur
569 6900 09:00–16:00www.ils.is
Með ósk um gleðileg jól
og farsæld á komandi árum
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Mánudagur
hvar@frettabladid.is
31. DESEMBER 2018
Tónlist
Hvað? Páll Óskar – Gamlárskvöld á
Spot
Hvenær? 01-05
Hvar? Spot, Kópavogi
Alvöru Pallaball á gamlárskvöld.
Byrjaðu nýtt ár 2019 með gleði-
sprengju frá stuðkónginum
sjálfum. Palli lætur fólk einfald-
lega bilast á dansgólfinu á Spot og
passar upp á að allir syngi með.
Þegar leikar standa sem hæst tekur
hann öll sín bestu lög ásamt döns-
urum og draumaprinsum. Gerið
ráð fyrir klassískum lögum eins og
Stanslaust Stuð, La Dolce Vita, Allt
fyrir ástina, International, Betra
Líf, TF-Stuð, Líttu upp í ljós, Ég er
eins og ég er, Þú komst við hjartað
í mér, Bundinn fastur, Jafnvel þó
við þekkjumst ekki neitt, Söngur
um lífið, Minn hinsti dans, Ást sem
endist, Vinnum þetta fyrirfram,
Ljúfa líf og Það geta ekki allir verið
gordjöss. Verð: kr. 3.500 kr.
Hvað? Gamlárspartý – Red Roberts-
son
Hvenær? 23.59
Hvar? Gamla Kaupfélaginu, Akranesi
Red Robertsson ætlar að halda gott
partí í Kaupfélaginu á gamlárs-
kvöld.
Hvað? Aftansöngur á gamlárskvöldi
Hvenær? 18.00
Hvar? Óháða söfnuðinum, Háteigs-
vegi
Messa í Óháða söfnuðnum kl.
18.00 á gamlársdag. Sr. Pétur
þjónar fyrir altari og Óháði kórinn
leiðir söng undir stjórn Kristjáns
Hrannars organista. Jón Guð-
mundsson leikur á þverflautu.
Hvað? Áramótadansleikur – Allt í einu
Hvenær? 23.59
Hvar? Hvolnum, Hvolsvelli
Árið 2019 er að fara í gang! Hið
árlega áramótaball í Hvolnum
Hvolsvelli fer að sjálfsögðu fram í
ár eins og vant er. Þið ykkar sem
hafið upplifað stemninguna vitið
að þetta er ómissandi partur af því
að bjóða nýtt ár velkomið! Þið hin,
ekki missa af þessu.
Viðburðir
Hvað? NYE áramótapartí Loftsins
Hvenær? 18.00
Hvar? Jacobsen Loftið, Austurstræti
Pússaðu dansskóna, kláraðu
kampavínið úr glasinu og pantaðu
leigubíl á Jacobsen Loftið þar sem
við ætlum að dansa árið í burtu.
Allt það besta í tónlistinni á árinu
ásamt gömlum klassískum tónum.
Í lok kvölds verður danstónlist
í hávegum höfð þar sem Banda-
ríkjamaðurinn Clint Stewart
kemur frá Berlín. Frábært kvöld
fram undan með tilboðum á kok-
teilum og einnig er hægt að panta
flöskuborð fyrirfram. Húsið er
opnað kl.18.00.
Hvað? Gamlárshlaup ÍR
Hvenær? 12.00
Hvar? Hörpu
Gamlárshlaup ÍR fer fram í 43. sinn
í dag. Það er einn stærsti hlaupa-
viðburður landsins og ríkir ávallt
mikil stemning í hlaupinu þar
sem þátttakendur mæta bæði með
gleðina og metnaðinn í farteskinu.
Hefð er fyrir því að hlauparar mæti
í búningum sem setja skemmti-
legan svip á hlaupið og eru veitt
verðlaun fyrir bestu búningana.
Hvað? Áramótabrenna á Ásvöllum
Hvenær? 20.00
Hvar? Ásvöllum, Hafnarfirði
Áramótabrenna verður sem fyrr
haldin á íþróttasvæði Hauka á
Ásvöllum kl. 20.00 á gamlárskvöld.
Nánar tiltekið í hrauninu fyrir
framan íþróttamiðstöðina en það
eru Knattspyrnufélagið Haukar
og Hafnarfjarðarbær sem standa
saman að brennunni. Gestum og
gangandi er bent á að halda sig
í góðri fjarlægð frá brennunni,
klæða sig eftir veðri, skilja flug-
eldana eftir heima og njóta til fulls
samveru með vinum, ættingjum
og öðrum hressum íbúum og
gestum Hafnarfjarðar. Foreldrar
barna og unglinga í Hafnarfirði eru
hvattir til að gera gamlárskvöld að
fjölskylduvænu og skemmtilegu
kvöldi.
Hvað? Gamlárspartý á Lebowski Bar
Hvenær? 11.00
Hvar? Lebowskibar, Laugavegi
Jæja nú er árið senn að líða og er
því ekki úr vegi að fagna nýju ári
með risa gamlárspartíi og kveðja
2018 með stæl á Lebowski Bar.
Þetta er með öflugustu gamlárs-
partíum í Reykjavík og þótt víðar
væri leitað.
Hvað? Áramótapartý í Hlégarði
Hvenær? 23.59
Hvar? Hlégarði, Mosfellsbæ
Hin árlega áramótaveisla Mosfells-
bæjar verður í dýrari kantinum
í ár og fer því fram í Hlégarði.
Hreimur (Land og synir) og Vignir
Snær (Írafár) fóru á kostum í fyrra
og ætla ekki að vera síðri í ár, til
þess að gera þetta ennþá betra þá
bætist í hópinn Svenni Þór. Þeir
halda öllum á tánum langt fram á
morgun ásamt hljómsveit.
Hvað? Áramótapartý H30
Hvenær? 23.59
Hvar? H30, Keflavík
Þá er komið að því að kveðja
gamla árið og byrja nýja með stæl.
Dönsum af okkur jólasteikina og
fögnum nýju ári.
Hvað? Gamlárspartý
Hvenær? 23.30
Hvar? Veitingahúsinu Ránni, Keflavík
Nú verður heldur betur húllumhæ
á Ránni í kvöld. Dansaðu inn í nýja
árið. Djadamis adammix sér um að
þið dillið ykkur fram á rauðanótt.
Í kvöld er eins og flestir vita
gamlárskvöld. Þá er nóg að gerast og
áramótaskemmtanir um allan bæ.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 29M Á N U D A G U R 3 1 . D E S E M B E R 2 0 1 8
3
1
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
C
-A
2
2
4
2
1
E
C
-A
0
E
8
2
1
E
C
-9
F
A
C
2
1
E
C
-9
E
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K