Stjarnan - 01.07.1930, Blaðsíða 1
STJARNAN
r
-g~^c
Lampi líkamans.
“Augað er lampi líkamans; ef því auga þitt er heilt,
þá mun allur líkami þinn vera í birtu; en sé auga þvtt
sjúkt, þá mun allur líkami þinn vera í myrkri; ef því
Ijósið í þér er myrkur, hve mikið verður þá myrkrið!”
Matt. 6:22, 23.
1 hinum andlega heimi ræSur samskonar lögmál og í
náttúrunni. Sá, sem stöðugt dvelur í myrkrinu, mun að
lokum missa sjónarhæfileikann. Hann sveipast myrkri,
sem.er svartara en náttmyrkriS,, og jafnvel hin skær-
asta hádegissól getur ekki fært honum neina birtu.
“Hann gengur í myrkrinu og lifir í myrkrinu, og veit
ekki hvert hann fer, því aS myrkrið hefir blindað augu
hans.” 1. Jóh. 2:11. MeS þverúðarfullri fastheldni
viS hið vonda og með því aS daufheyrast af ásettu ráði
viS kærleiksröddu GuSs, missir syndarinn elskuna til
hins góSa, missir þrána eftir GuSi, já, missir jafnvel
hæfileikann til aS meðtaka himneska birtu. Náðin stend-
ur enn til boða, kærleiksröddin kallar enn og segir:
Komdu heim! HjósiS skín enn jafn skært og þegar þaS
rann sálunni fyrst upp, en röddin hljómar fyrir daufum
eyrum, og ljósið skín á blind augu.
—E. G. W.
JÚLÍ 1930 WINNIPEG, MAN. VerS: 15C