Stjarnan - 01.12.1933, Síða 2

Stjarnan - 01.12.1933, Síða 2
i78 STJARNAN Gleðileg jól FagnaÖarboðskapurinn um, að oss er Frelsari fæddur, ætti aÖ vera oss jafndýr- mætur nú eins og hann var GuÖs sönnu börnum þegar englarnir fyrst fluttu hann til hirðanna á Betlehemsvöllum. Af því Guð elskaði oss svo mikið að hann gaf oss sinn eingetinn son, til að fæðast í voru holdi, til að lifa, líða og deyja til að frelsa oss frá syndinni og hinum skelfilegu afleiðingum hennar, ei- lífum dauða; þá getum vér, já vér, sem lifum í dag, fagnað ytir Guðs náð er Krists vegna hefir fyrirgefið syndir vor- ar, gefiö oss barnarétt hjá sér, og alt sem hann felur í sér bæði fyrir tíma of eilífð. Alt sem útheimtast af vorri hálfu er að vér trúum á soninn. Sá, sem trúir á son- inn, hefir eilíft líf. Sá sem trúir á soninn sýnir það með stöðugri viðleitni til að lifa eins og hann lifði, hann fetar í Jesú fótspor, í hlýðni við Guð og elsku til meðbræðra sinna. Sá, sem í sannleika trúir á Jesúm, hann elskar hann svo innilega að hann vill alt gjöra til að þóknast honum, já, þótt þaö skyldi kosta hann eignir, vini, frelsi og jafnvel lífið sjálft, því hann minnist þess að Jesús þvoði oss af vorum syndum með sínu blóði, svo mikið kostaði það hann að kaupa oss rétt til þess að öðlast hlut- deild í arfleifð heilagra í ljósinu, og er þá nokkurt erfiði, nokkur sjálfsafneitun, nokkur sjálfsfórn frá vorri hálfu, of stór til þess að þóknast honum, sem úthelti blóði sínu fyrir oss? Fyrir Jesúm Krist geta Guðs börn glaðst yfir allri þeirri andlegri og tíman- legri blessun, sem þau njóta í dag, róleg og kvíðalaus treyst Guðs föðurumhyggju fyrir oss á ókomna timanum og sífelt hlakkað til að bráðum kemur Jesús til að fullkomna endurlausnarverkið og gefa oss ríkið með sér. Rifjum upp fyrir oss hvað Jesús hefir gjört fyrir oss, hvað hann er fús til að gjöra fyrir oss á yfirstandandi tíma og hvað hann mun innan skamms veita öllum ástvinum sínum, með sér í sínu dýröar- riki. Trúir þú á Jesúm? Elskar þú hann? Fylgir þú honum? Ef þú gjörir það, þá mun fögnuður og friður Ffeilags Anda fylla sálu þína. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól í Jesú nafni. S. Jolmson. Fyrirheit Guðs eru fjársjóður barna hans Hefir þú lært að varpa allri þinni á- hyggju upp á Guð, og leggja fram fyrir hann alt, sem þér liggur á hjarta, hvort sem það er sorg, vonbrigði, fátækt, heilsu- leysi, atvinnuleysi eða eitthvað annað ? Jesús segir: “Komið til min allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, eg vil gefa yður hvíld.” Matt. 11129. “Ákalla mig í neyðinni, eg mun frelsa þig, og þú átt að vegsama mig.” Sálm. 5°;15- “Verið ekki hugsjúkir um nokkurn hlut, heldur látið í öllum hlutum yðar óskir koma fyrir Guð í bænaákalli með þakkar- gjörð. Fil. 4:6. “Það, sem fyrir mönnum er ómögulegt er mögulegt fyrir Guði.” Sæll er sá, sem þjónar Guði og treystir honum af öllu hjarta, því hann er glaður og ókvíðinn, hann veit að þeim, sem Guð elska verður alt til góðs. Hann setur alla von sína til Guðs náðar í Jesú Kristi og sú von bregst ekki af því hún er bygð á Guðs órjúfan- legu fyrirheitum. Á. /.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.