Stjarnan - 01.12.1933, Side 14
STJARNAN
Keisarinn og rúblurnar
Þegar Alexander I. Rússakeisari ferS-
a'ðist um fylkið Jakerterinostav staldraði
hann við á stöð einni og lét búa til te
handa sér. Nýja Testamentið lá þar á
borði í húsinu svo keisarinn spurði stöðv-
arstjórann:
“Les þú oft í þessari bók?”
“Á hverjum degi, herra minn.”
“Það er gott. Hve langt ertu kominn
í henni?”
“Eg er í Matteusar guðspjalli.”
“Jæja, haltu áfram. Sá sem leitar frið-
ar fyrir sál sína finnur oft líka jarðnesk
laun.”
Þegar stöðvarstjórinn snöggvast brá
sér út lagði keisarinn 5 100 rúblu seðla
við siðasta kapítulann á nefndu guðspjalli.
Skömmu síðar hélt hann leiðar sinnar.
Að nokkrum tíma liðnum kom keisar-
inn aftur og staðnæmdist einnig i þetta
skifti hjá stöðvarstjóranum. Nú spurði
hann aftur hve langt hann vari kominn
að lesa í Nýja Testamentinu.
“Að Lúkasar guðspjalli,” svaraði stöðv-
arstjórinn.
“Það skulum við fljót! sjá. Ljáðu mér
bókina.”
Seðlarnir lágu á sama stað og keisarinn
hafði lagt þá.
“Að ljúga er mikil synd,” sagði keisar-
inn við stöðvarstjóra, sem na;r því var
hniginn niður af skömm og hræðslu. “Þú
hefir ekki leitað Guðs ríkis í einiægni. Nú
færðu heldur ekki hin jarðnesku laun.
Láttu þetta þér að kenningu verða.”
Peningunum lét keisarinn svo útbýta
meðal fátæklinga þar á staðnum.
F.
Hvernig byrjar þú
daginn ?
Eg var að heimsækja einn af slcólum
vorum og sjá hvernig alt færi fram. Eg
gekk frá einni deildinni til annarar. Þeg-
ar eg kom til trésmiða verkstæðisins sá
eg nokkuð sem fékk mig til að staðnæm-
ast. Eormaðurinn fyrir þeirri deild hafði
drengina í hálfhring 'fyrir framan sig.
Hann var að segja þeim fyrir verkum.
Eg gekk til hliðar, tók ofan hattinn og
hlustaði. Allir stóðu grafkyrrir og stein-
þegjandi og hlustuðu með athygli á hvert
orð. Það sem kennarinn sagði hefir
einnig verið mér til uppörfunar í starfi
rnínu.
Þegar hann hafði lokið máli sinu sneri
hann sér að einum drengjanna og sagði:
“Bróðir—viltu biðja með okkur áður en
við tökum til starfa?” Allir hneigðu höf-
uð sín meðan pilturinn var að biðja.
Hann bað Guð að gefa þeim öllum heilsu,
krafta og viziku, svo að hver einstakur
meðal þeirra gæti unnið starf sitt þannig
að það væri honum þóknanlegt. Eg gleymi
aldrei þeirri bænastund.
Hvernig er það bróðir minn, systir og
vinur? Biður þú til Guðs áður en þú fer
til vinnu á morgnana? Þakkar þú Guði
fyrir umönnun hans og varðveizlu yfir
þér á umliðinni nóttu? Er þetta það
fyrsta, sem þú gjörir er þú vaknar?
Hversvegna ekki hafa það fyrir sið ? Þér
mun líða betur fyrir það og þú öðlast full-
vissuna um að Jesús er með þér allan
daginn.
F. I. M.
Heilrœði
Gættu þín fyrir þeim vinurn, sem tala
illa um aðra, jafnvel þó þeir séu góðir
við þig, því þeir fylla flokk djöfulsins,
sem er áklagandi bræðra vorra (Opinb.
10:12). Þeir hindra samfélag þitt við