Velferð - 01.05.1989, Page 3

Velferð - 01.05.1989, Page 3
 VELFERÐ 1. árg. 1. tbl. Málgagn og fréttabréf Landssamtaka hjartasjúklinga Ritstjóri: Alfreð Georg Alfreðsson, ábm. Ritnefnd: Anna Edda Ásgeirsdóttir, næringarfræðingur Hallur Hermannsson, skrif- stofustjóri Tryggvi Sveinbjörnsson, bók- bindari Framkvæmdastiórn: Stjórn Landssamtaka hjarta- sjúklinga Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, Rvík, sími 25744 Auglýsingar: Fjáröflunarnefnd L.H.S. Rúrik Kristjánsson form. Útlitshönnun: Haukur Már Haraldsson Setning & Prentun Filmur og Prent Ármúla 38, Reykjavík Efnisyfirlit bís. Ritstjórarabb .............. 3 Saga félagsins, Ingólfur Viktorsson........... 4 Stofugangur................. 9 Mataræði, eftir Önnu Eddu Ásgeirsd......... 10 Bráðaþjónusta: Gestur Þorgeirsson, læknir..................... 12 Endurhæfing: Haraldur Steinþórss........ 14 Framfarir, eftir Prófessor Snorra Pál Snorrason.................. 17 Ýmislegt............ 8, 11, 18 J^ J^\y NÝR TENGILIÐUR í FÉLAGSSTARFINU Ágcetu lesendur. Samkvæmt ákvörðun stjórnar Landssamtaka hjartasjúkl- inga, kemur þetta blað, .VELFERÐ, nú fyrir sjónir ykkar í fyrsta skipti. Til- gangur blaðsins er að vera málgagn og fréttabréf landssamtakanna, þ.e. að koma á framfæri fræðslu um hjarta- og æðasjúkdóma og helstu nýjungum í meðferð á þeim, miðla hvers konar upplýsingum um starfsemi samtak- anna og að vera tengiliður stjórnarinnar við hina almennu félagsmenn víðs vegar um landið. Til þess að ná fram þessum markmiðum munum við í ritstjórninni í fyrsta lagi leitast við að hafa samráð og samvinnu við alla þá aðila í heil- brigðisgeiranum, sem helga krafta sína baráttunni við þessa sjúkdóma. í öðru lagi munum við falast eftir aðstoð ykkar, félagsmenn góðir og les- endur allir, aðstoð, sem þarf að vera fólgin í því að þið látið í ykkur heyra og leggið blaðinu lið með fyrirspurnum, athugasemdum, hugmyndum, tillögum og svo síðast en ekki síst með greinum í blaðið. Miðstöð sam- bands ykkar við blaðið verður að sjálfsögðu skrifstofa landssamtakanna, Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu í Reykjavík, sími 25744, auk þess sem hægt er að hafa samband beint við ritstjóra og ritnefndarmenn. Áætlað er að blaðið komi út 2svar—3svar á ári og mun það verða sent ókeypis til allra félagsmanna og velunnara samtakanna, auk þess sem það mun gefið öllum sjúkrahúsum landsins, heilsugæslustöðvum, iæknastof- um, apótekum og fleiri stofnunum og aðilum, sem kunna að óska eftir því að það liggi frammi til lesturs. Fjármögnun blaðsins er fyrirhuguð með auglýsingum og sölu styrktar- lína, og er þetta fyrsta tölublað þannig fjármagnað. Landssamtök hjarta- sjúklinga eru nefnilega það lánsöm að eiga fjölda velunnara í röðum versl- unar og viðskipta, iðnaðar, sjávarútvegs og landbúnaðar, og reyndar í öllum greinum þjóðfélagsins, sem vilja styðja við bakið á samtökunum. Þess vegna berum við ekki kvíðboga fyrir fjárhagshlið útgáfunnar, heldur viljum við þakka fyrir þennan mikla stuðning, bæði þeim, sem við höfum enn ekki leitað til og svo sérstaklega þeim, sem styrktu útgáfu þessa fyrsta tölublaðs. Hjartans þakkir. Undirbúningsnefnd að stofnun Landssamtaka hjartasjúklinga. Talið frá vinstri: Ingólfur Viktorsson, Karl Friðrik Kristjánsson, Reynir Eyjólfsson, Sig- urveig Halldórsdóttir, EmilBjömsson, Björn Bjarman, Trausti Sigurlaugsson, Jóhannes Proppé og Alfreð G. Alfreðsson.

x

Velferð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.