Velferð - 01.05.1989, Síða 10
10
BORÐUM OF MIKLA FITU,
SYKUR OG SALT
„Þó allt sé matur sem í magann
kemur þá er sú fæða misæskileg til
neyslu. “ Það er ekki nóg fyrir okk-
ur að vera södd, við þurfum einnig
að vera rétt nærð. Mikilvægi þess að
velja fjölbreytta fæðu er það að
engin ein fæðutegund er upp-
spretta fyrir öll þau næringarefni
sem líkamanum eru nauðsynleg.
í neyslukönnun sem gerð var hér
á landi fyrir um 10 árum síðan kom
fjram að við borðum of mikið af
fitu, sykri og salti. En of lítið af
grænmeti, ávöxtum og grófum
kornmat.
Hefur þú nokkuð íhugað hve
mikil neysla þín er af fitu, sykri og
salti?
Hve mikið þú borðar af græn-
meti, ávöxtum og grófum korn-
mat? Telur þú einhverju ábótavant í
þínum neysluvenjum? Eflaust geta
margir svarað því játandi en aðrir
neitandi. En til þess að breyta
neysluvenjum þurfum við öll,
hvert og eitt okkar, að líta fyrst í
eigin barm og íhuga hvernig neyslu
okkar er háttað. Við verðum einnig
að vilja gera þær breytingar á
neysluvenjum sem við vitum að
eru æskilegar. Það er ekki nóg fyrir
okkur að taka við leiðbeiningum
um æskilegar neysluvenjur og
stinga þeim ofan í skúffu og halda
síðan áfram á sömu braut og áður.
í mínum huga er það engin
spurning að við getum flest öll gert
einhverjar breytingar til bóta.
Við vitum öll að mikil fituneysla
er ekki heppileg fyrir neinn. Mikil
fituneysla á sinn þátt í offituvanda-
máli margra og einnig er talið að
mikil neysla á harðri fitu auki frek-
ar líkurnar á kransæðasjúkdómum.
Hvernig getur þú minnkað þína
neyslu? Þú gerir það með því að
velja t.d. frekar magrar kjötafurðir
í staðinn fyrir feitar. Sneiðir hjá
feitum mjólkurafurðum og varast
neyslu á feitu kaffibrauði, t.d. inni-
heldur ein formkökusneið jafn
mikla fitu og er í 2 teskeiðum af
smjörlíki og í 100 ml af rjóma er
álíka mikil fita og er í rúmlega 8 te-
Svipmynd frá 5 ára afmœlisfundi Landssamtaka hjartasjúklinga.