Velferð - 01.05.1989, Qupperneq 11
Anna Edda Ásgeirsdóttir
höfundur þessarar greinar er
nœringarfrœðingur og starfar á
Borgarspítalanum.
skeiðum af smjöri. Sneiddu einnig
hjá neyslu á tólg, mörfloti, hnoð-
mör og annarri harðri fitu, hver
matskeið sem þú lætur út á fiskinn
inniheldur um 15 g af fitu sem gef-
ur þér jafn mikla orku og 2 meðal
epli.
Sykurneysla okkar er of mikil.
Neysla á sykri og sykurauðugum
fæðutegundum gefur okkur litla
sem enga saðningu og auðvelt er að
bæta þeim ofan á saddan maga. Ef
þú borðar um 100 hitaeiningar á
dag umfram orkuþörf líkamans þá
bætir þú á þig um 5 kflóum í þyngd-
araukningu á einu ári. Það samsvar-
ar því að þú drekkir um 1 glas af
ávaxtasafa eða sætum gosdrykk
eða notir um 5 sléttfullar teskeiðar
af sykri íkaffi á dag. Sælgætisneysla
okkar íslendinga er um 11 tonn á
dag eða um 1 'h kfló á mann á mán-
uði. Hefur þú nokkuð íhugað hve
mikil þín neysla er?
Saltneysla okkar er of mikil. En
mikil saltneysla er álitin geta haft
áhrif á háþrýsting. Þú getur minnk-
að saltneysluna með því að borða
minna af söltum og reyktum mat.
Einnig með því að nota minna salt
við matreiðslu. Niðursoðið græn-
meti er yfirleitt soðið niður með
salti, því er æskilegra að borða frek-
ar ferskt eða fryst grænmeti.
Við ættum flest öll að auka
neyslu okkar á trefjaefnum. Trefja-
efnin hafa þann eiginleika að geta
bundið margfalda þyngd sína af
vatni, í ristlinum verða þau því að
burðarefni hægða. Trefjaefnin eru
því mikilvægur þáttur til að koma í
veg fyrir hægðatregðu. Einnig
mettar trefjaefnarík fæða okkur
betur heldur en trefjaefnasnauð
fæða gerir. Þú getur aukið trefja-
efnaneysluna með því að velja frek-
ar brauð og annan kornmat sem
bakaður er úr grófu korni, í staðinn
fyrir þann sem bakaður er úr hvítu
hveiti, t.d. velja klíðisbrauð og
önnur gróf brauð í staðinn fyrir
hveitibrauð. Einnig með því að
borða gróft morgunverðarkorn,
s.s. All-Bran, Weetabix, hafragraut
eða krúsku í staðinn fyrir Coco
Puffs eða annað sykurhjúpað
morgunverðarkorn. Einnig með
því að auka neyslu á ferskum ávöxt-
um og grænmeti.
Við þurfum oft að beita okkur
vissum aga til að breyta því neyslu-
munstri sem við höfum tamið okk-
ur og við gerum það ekki á einum
degi. En við þurfum að vera jákvæð
og vilja gera þær breytingar sem við
vitum að eru æskilegar.
Hafðu einnig í huga að það er
mun betra fyrir líkamann að borða
fleiri og smærri máltíðir í staðinn
fyrir að borða fáar og stórar. Ef við
sleppum úr máltíðum hættir okkur
til að borða meira í næstu máltíð og
á þann hátt innbyrðum við oft
meiri orku.
Ég hef aðeins stiklað á stóru í
sambandi við æskilegar neyslu-
venjur. En ef þú hefur einhverjar
spurningar fram að færa er þér vel-
komið að senda mér línu á skrif-
stofu Landssamtaka hjartasjúklinga
og ég mun leitast við að svara þeim
eftir bestu getu.
A.E.Á.
MINNINGARKORT
Landssamtaka hjartasjúklinga
25744
Innheimt meö gíróseðli
Listi yfir alla afgreiðslustaði
minningarkortanna er í blaðinu