Velferð - 01.05.1989, Qupperneq 13
því móti einu megi vænta þess að
viðunandi árangur náist í þessum
erfiðu tilfellum (1). Meðal flestra
vestrænna þjóða eru nú svipaðar
áherslur og svipuð kennslugögn
notuð.
Starfsemi neyðarbilsins og
árangri af hinni sérhæfðu neyðar-
þjónustu x Reykjavík á árunum
1982-1986 hefur nýlega verið lýst í
mjög fróðlegri grein (2). Þar kemur
fram að á þessum árum var endur-
lífgun reynd í 138 tilvikum. Af
þessum sjúklingum náðu aðeins
17% að útskrifast af spítalanum.
Vitni voru að hjartastoppi í 98 til-
fellum. Nærstaddir hófu endurlífg-
un í 36 tilvikum, sem bætti horfur
þeirra sjúklinga verulega þannig að
19 (33%) þeirra útskrifuðust af
sjúkrahúsi. Aðeins 5 sjúklingar af
hinum 62 sem fengu enga öndun-
arhjálp eða hjartahnoð fyrr en
neyðarbíllinn kom á staðinn kom-
ust til það góðrar heilsu að geta út-
skrifast af spítala. Af þessu má
draga þá ályktun að allt of fáir
kunni grundvallaratriði endurlífg-
unar og þörf sé verulegs átaks í
þeim efnum.
Meðal viðbragðstími neyðarbíls-
ins var 5 mínútur, þ.e. 5 mínútur
liðu þar til unnt var að veita sér-
hæfða læknisþjónustu svo sem raf-
stuð, sem er þó 7 mínútum fyrr en
tíðkaðist fyrir 1982. í greininni
kemur fram að miklu skipti, að við-
bragðstíminn sé sem stystur og
horfur sjúklinga bötnuðu eftir því
sem viðbragðstíminn styttist.
Helstu niðurstöður og ábendingar
verða þá þessar.
1. Miklu skiptir að sjúklingur
með kransæðastíflu komist
sem allra fyrst á spítala til
sérhæfðrar meðferðar.
2. Allir ættu að þekkja neyð-
arsíma síns svæðis, í Reykja-
vík 1-11-00.
3. Allir ættu að kunna grund-
vallaratriði endurlífgunar.
4. Horfur sjúklings sem fer í
hjartastopp hatna að mun,
ef nærstaddir hefja endur-
lífgun.
Hcimildir:
1. Standards and guidelines for Cardiopul-
monary resuscitation and emergency car-
diac care. JAMA 1986;255:2905-2984.
2. O. Einarsson, F. Jakobsson, G. Sigurðs-
son. Advanced cardiac life support in the
prehospital setting: The Reykjavík experi-
ence. Journal of Internal Medicine 1989;
225: 129-135.
MINNINGARKORT
Landssamtaka hjartasjúklinga tást á eft-
irtöldum stöðum:
Reykjavík: Skrifstofa Landssamtaka
hjartasjúklinga, Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu, sími 25744
Bókaverslun ísafoldar, Austurstræti og
Bókabúð Vesturbæjar, Víðimel.
Seltjarnarnes: Margrét Sigurðardóttir,
Mýrarhúsaskóli eldri.
Kópavogur: Veda bókaverslanir, Hamra-
borg 5 og Engihjalla 4
Hafnarfjörður: Bókabúðir Böðvars,
Strandgötu 3 og Reykjavíkurv. 64
Selfoss: Apótek Selfoss, Austurvegi 44
Grundarfjörður: Halldór Finnsson,
Hrannarstíg 5
Ólafsvík: Ingibjörg Pétursdóttir, Hjarðar-
túni 3
ísafjörður: Urður Ólafsdóttir, Brautar-
holti 3
Árneshreppur: Helga Eiríksdóttir, Finn-
bogastöðum
Blönduós: Helga A. Ólafsdóttir, Holta-
braut 12
Sauðárkrókur: Margrét Sigurðardóttir,
Birkihlíð 2
Akureyri: Gísli J. Eyland, Viðimýri 8 og
Bókabúðirnar á Akureyri
Húsavík: Bókaverzlun Þórarins Stefáns-
sonar, Garðarsbraut 9
Egilsstaðir: Steinþór Erlendsson, Lauf-
ási 5
Höfn, Hornafirði: ErlaÁsgeirsdóttir, Mið-
túni 3
Vestmannaeyjar: Axel Ó. Lárusson skó-
verzlun, Vestmannabraut 23
Sandgerði: Póstafgreiðslan, Suðurgötu
2-4
Keflavík: Bókabúð Keflavíkur, Sólvalla-
götu 2
Frá afhendingu ,,Björgunar Önnu“ (Resusci Ann); aðstandendur L.H.S. og
Borgarspítalans.