Velferð - 01.05.1989, Síða 17
--------------------
FRAMFARIR MEÐ TILKOMU
NÝRRAR TÆKNI
Með stofnun Landssamtaka hjarta-
sjúklinga var stórt og markvert
spor stigið í baráttunni við hjarta-
sjúkdóma hér á landi. En eins og
menn vita eru þessir sjúkdóm-
ar, einkum kransæðasjúkdómar,
með þeim skæðustu, sem hrjá
landsmenn. Það eru gjarnan menn
í fullu fjöri og á besta aldri sem
verða fyrir barðinu á þessum sjúk-
dómi, svo sem margir stofnendur
Landssamtakanna hafa reynt og
mega gerst vita.
Þegar kransæðasjúkdómar tóku
að ágerast mjög meðal vestrænna
þjóða í kjölfar iðnvæðingar og stór-
breyttra lífskjara hér á landi um og
eftir 1940, þá stóðu menn býsna
berskjaldaðir og ráðþrota í fyrstu
gegn vágesti þessum. Síðan hafa
margir góðir sigrar unnist vegna
framfara í læknisfræði og ýmsum
vísindagreinum sem henni tengj-
ast. Einkum hafa orðið stórstígar
framfarir í greiningu og meðferð
hjarta- og æðasjúkdóma á undan-
förnum áratugum.
En minna hefur áunnist í for-
varnarstarfi á þessu sviði, enn sem
komið er.
Við íslendingar höfum lengst af
barist íbökkum með að nýta okkur
þá möguleika sem vísindalegar
uppgötvanir í hjartasjúkdómum
hafa boðið upp á, en stórþjóðirnar
hafa haft bolmagn til að hagnýta
sér. Helstu aðferðir við greiningu
hjartasjúkdóma voru lengi vel, auk
hjartahlustunar, sem enn er í fullu
gildi, hjartarafrit og venjuleg rönt-
genmynd af hjarta. Greiningarað-
ferðir þessar dugðu oft skammt og
það var ekki fyrr en eftir 1960 að
hjartaþræðingar og sérhæfðar rönt-
genmyndatökur af hjarta voru inn-
leiddar hér á landi, all löngu eftir
að þær voru teknar upp erlendis.
Þessum rannsóknaraðferðum var
Hjartarafsjárbúnaónr í Lanclspítalanum. Tœkin erugjöffrá Landssamtökum
hjartasjúklinga.
beitt sérstaklega við greiningu og
rannsóknir á meðfæddum hjarta-
göllum og við sjúkdóma í hjarta-
lokum og einnig sem undirbúning-
ur fyrir skurðaðgerðir á framan-
greindum hjartasjúkdómum.
Reyndin varð sú að miklar framfar-
ir í skurðlækningum á þessu sviði
sigldu í kjölfarið. Einnig óx þekk-
ing manna á starfsemi hjartans með
hinum nýju rannsóknaraðferðum,
sem sífellt voru endurbættar.
Ekki létu menn hér staðar num-
ið, stórt framfaraspor var stigið