Velferð - 01.05.2018, Síða 4
c---------
Frá formanni
Hamingja
Það má með nokkrum sanni segja, að ævi mannsins sé
sífelld leit að lífshamingju. Það er jafnvíst, að menn eru
misjafnlega fundvísir.
Lykilinn að lífshamingjunni er kannski fólginn í því að
ganga æviveginn með opin augu fyrir öllu því fagra og
góða sem er allt í kringum okkur. Svo einfalt er nú ekki
lífið. Auðvitað spyrja menn, hvað sé hamingja. Getur
nokkur ábyrgur maður verið hamingjusamur í lífi sínu,
meðan hann veit um óhamingju annarra, fátæktina í
Afríku, ógnaröldina í mörgum löndum, ofbeldi og eyði-
leggingu umhverfis? Hver getur verið hamingjusamur
meðan hann veit um óhamingju annarra?
Sem betur fer tekst okkur stundum og oftast að gleyma
þessum viðsjárverða heimi, gleyma því að að við berum
ekki ein ábyrgð á viðsjálli veröld.
Lífið er gjöfult og margbreytilegt. Hamingjuleiðirnar eru
margar og ólíkar. Það þarf að ganga æviveginn með aug-
un opin, hafa vakandi auga til að velja hamingjustíginn
en ekki þá leið sem maður fyrirfram ákveður að allt sé
ómögulegt og leiðir bara til hrösunar.
Besti áttavitinn er vinátta, kærleikur og sannleikur í
hjarta og heilbrigt viðmót til samferðamanna og láta sér
ekki standa á sama um velferð og öryggi þeirra sem okk-
ur treyst fyrir.
Maður er manns gaman. Fjölskylda og vinir eru tækifæri
til gleði og hamingju. John Lennon komst svo að orði:
„Count your age by friends, notyears. Countyour life by
smiles, not tears."
Hjartaheill hefur á sínum vegum fjölda einstaklinga sem
hafa verið burðarásinn í starfsemi samtakanna. Á síðasta
formannafundi sæmdum við fjölda félagsmanna heiðurs-
merki samtakanna úr gulli. Það er nauðsynlegt að strjúka
góðu fólki fyrir vel unnin störf. Maður má aldrei gleyma
því sem vel er gert.
Gæfan bíður með framréttar hendur allt í kringum okk-
ur. Það er bara að sjá hana og sl<ynja, taka í höndina á
henni og ganga hamingjuveginn með vinum og vanda-
mönnum, studdur hugsjónum og háleitum markmiðum.
Það er góð aðferð á margslungnum ævidegi og það ættu
flestir að gera. Heimurinn þarf á því að halda.
SÍBS og Hjartaheill hafa um margra ára skeið gengist fyr-
ir reglulegum mælingum á blóðþrýstingi og blóðgildum
víða um land sem lið í vitundarvakningu um hjarta- og
æðasjúkdóma. Þá hafa Samtök lungnasjúklinga úr ranni
SÍBS bæst við og ennfremur hafa Samtök sykursjúkra
tekið þátt í verlcefninu frá og með haustinu 2017 sem lið í
forvarnarstarfi sínu og þjónustu við landsbyggðina.
Frá og með 2017 fóru mælingarnar á næsta stig með því
að bæta við spurningavagni um lífsstílsþætti, sem líklegir
eru til að hafa áhrif á heilbrigði. Er þá einkum horft til
helstu áhættuþátta glataðra góðra æviára (DALY), skv.
skilgreiningum WHO, en spurningarnar teknar, að svo
miklu leyti sem verða má, úr rannsókninni Heilsa og
líðan Islendinga til að hægt sé að bera svarendur saman
við þýðið úr þeirri rannsókn.
Hjartaheill er þátttakandi í verkefninu Stuðningsnet
sjúklingafélaganna sem býður upp á jafningjastuðning
fyrir fólk sem glímir við erfiða sjúkdóma og aðstandend-
ur þeirra. Þeir sem veita stuðninginn eru einstaklingar
sem greinst hafa með svipaða sjúkdóma eða eru aðstand-
endur. Allir stuðningsfulltrúar hafa lokið stuðnings-
fulltrúanámskeiði hjá umsjónaraðila eða fagaðilum
Stuðningsnetsins.
Félögum í Hjartaheill hefur fjölgað verulega síðustu miss-
eri. í dag telja samtökin á fimmta þúsund félaga.
Hlutverk Hjartaheilla er m.a. að sameina hjartasjúklinga,
aðstandendur þeirra og áhugafólk um heilbrigt hjarta,
að stuðla að betri heilsu og bættum lífsgæðum í íslensku
samfélagi, með áherslu á framfarir í forvörnum, fræðslu
og meðferð hjartasjúkdóma og að standa vörð um hags-
muni og réttindi hjartasjúklinga. Því er mikilvægt að
Hjartaheill séu öflug hagsmunasamtök á sviði heilbrigð-
ismála á íslandi með stóran og virkan hóp félagsmanna
og að samtökin verði leiðandi við að bæta lífsgæði lands-
manna með eflingu forvarna og fræðslu um hjartasjúk-
dóma.
Njótum lífsins, lífið er gott. Til sigurs fyrir lífið sjálft.
Gleðilegt sumar.
Sveinn Guðmundsson.
4 Málgagn Hjartaheilla