Velferð - 01.05.2018, Qupperneq 5

Velferð - 01.05.2018, Qupperneq 5
Hjartaheill og fræðslumyndir Hjartaheill hafa á síðustu tveimur árum staðið að gerð og útgáfu á fræðslumyndum um hjartasjúkdóma, hjartaaðgerðir, endurhæfingu, fræðslu um hvernig beri að hegða sér og hvernig helst megi forðast að fá slíka sjúkdóma. Fræðslumynd „Með hjartað úr takti" - fræðslumynd um gáttatif I þessari nýju íslensku heimildarmynd fjalla læknar um orsakir gáttatifs, einkenni þess og meðferðarúrræði og sjúklingar segja frá áralangri glímu sinni við sjúkdóminn. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson. Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir Hjartaheill. Fræðslumynd um skaðsemi reykinga „Bara að ég hefði aldrei byrjað" í myndinni segja fjórir einstaklingar frá afleiðingum reykinga á líf þeirra. Að myndinni standa Astma- og ofnæmisfélag Islands, Hjartaheill, Hjartavernd, Krabbameinsfélag Reykjavíkur og Samtök lungnasjúklinga. Styrktaraðilar myndarinnar voru ÁTVR, Embætti landlæknis, Nicorette og Pfizer. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Ólafur Sölvi Pálsson. Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir ofangreind félög. Fræðslumynd „Lífæðar hjartans" - fræðslumynd um kransæðasjúkdóm Ný íslensk fræðslumynd um hjarta- og æðasjúkdóma. Þrátt fyrir góðan árangur í forvörnum og meðferð eru hjarta- og æða- sjúkdómar enn helsta dánarorsök Islendinga. Þessir sjúkdómar geta verið af ýmsum toga en algengastur er kransæðasjúk- dómurinn. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson. Framleiðandi: Epos kvikmyndagerð fyrir Hjartaheill. Skoðið myndirnar á vefnum Þessar myndir auk eldra efnis svo sem Hjartans mál, fræðslumynd, Grettir, þroskasaga hjartasjúklings, og Annað líf, mynd um líffæragjafir eru allar aðgengilegar á vef Hjartaheilla: www.hiartaheill.is/fraedsla Þar er einnig að finna ágætt myndband sem Hjartaheill gerði í samstarfi við ÖBÍ til að kynna aðildarfélögin og starfsemi þeirra. Það heitir: Bíllinn fer í skoðun árlega, hvað meðþig? ÚRVAL TÆKJA TIL BJARGAR MANNSLÍFUM LUCAS hjartahnoðtæki Sjálfvirk hjartastuðtæki fyrir almenning Vscan Extend ómtæki LIFEPAK 15 hjartastuðtæki HealthCo Hlíðasmára 1 • 201 Kópavogur Sími: 534-3600 • healthco.is PHYSIO CONTROL Velferð 5

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.