Velferð - 01.05.2018, Blaðsíða 6

Velferð - 01.05.2018, Blaðsíða 6
Skyndidauc i hjá ungu fólki Davíð O. Arnar# yfirlæknir hjartalækninga Landspítala Skyndilegt ófyrirséð andlát hjá ungum einstaklingum vekur alltaf mikinn óhug enda oftast um að ræða fólk sem hefur borið með sér að vera hraust og í blóma lífsins. Auk þeirrar sorgar sem aðstandendur þurfa að takast á við, glíma þeir gjarnan við ótta um að þeirra kunni mögulega að bíða sömu örlög. Það er því mikið í húfi við að reyna að greina hvaða vandamál leiddi til skyndidauða, vegna þess að það getur í ákveðnum tilvikum leitt til markvissra fyrirbyggjandi að- gerða hjá ættingjum. Skyndidauði er nokkuð algengur á Vesturlöndum og hér- lendis er áætlað að allt að 200 einstaklingar látist með þess- um hætti á ári hverju. Skyndidauði er gjarnan skilgreindur sem óvænt andlát sem á sér stað innan klukkustundar frá upphafi einkenna. Langoftast verður skyndidauði vegna hjartastopps í kjölfar hraðtakts frá sleglum eða neðri hólfum hjartans. Þó flest tilfelli skyndidauða verði hjá einstaklingum yfir fimmtugt, eru hjartastopp hjá þeim sem yngri eru alls ekki sjaldgæf. Um fimmtungur þeirra sem látast á aldrinum 1-13 ára deyja skyndilega og um þriðjungur þeirra sem láta lífið á aldrinum 14-21 árs. Ef vitni verða að hjartastoppi leiðir það yfirleitt til endur- lífgunartilraunar. Af þeim sem fara í hjartastopp utan sjúkrahúss á Reykjavíkursvæðinu nær um það bil fjórðungur að útskrifast eftir árangursríka endurlífgun. Við hjartastopp skipta fyrstu viðbrögð vitna að atburðinum höfuðmáli. Líkur einstaklings á að lifa af hjartastopp minnka um 10% með hverri mínútu sem frá líður. Fyrstu viðbrögðin eiga að vera sú að hringja í Neyðarlínuna (112) og fá faglega aðstoð á staðinn sem fyrst. Meðan beðið er eftir sjúkrabíl skal fram- kvæma kröftugt hjartahnoð á mitt brjóstholið með hraðan- um 100 hnoð á mínútu. Hjartahnoðið eykur líkur á að hægt sé að bjarga einstaklingnum með rafstuðsgjöf á brjósthol þegar sjúkrabíll kemur á staðinn og sömuleiðis getur það dregið úr líkum á varanlegum heilskemmdum, lifi einstak- lingurinn af. Endurlífgunarráð íslands var með herferð um viðbrögð almennings við hjartastoppi fyrir nokkrum árum undir kjörorðunum „Hringja - hnoða" sem er auðveld leið til að muna þessi afar mikilvægu skilaboð. Undanfarin ár hafa víða hérlendis verið tekin í notkun sjálf- virk hjartarafstuðtæki. Þessum tækjum hefur verið komið fyrir meðal annars á flugvöllum, líkamsræktarstöðum, sundstöðum og víðar þar sem margir koma gjarnan saman. Þau eru einföld í notkun og handhæg, jafnvel þeim sem ekki hafa hlotið neina sérstaka þjálfun í að beita þeim. Það skiptir höfuðmáli að gefa rafstuð á brjóstkassa sem allra fyrst eftir hjartastopp og því mikilvægt við svoleiðis kringumstæður að beita sjálfvirku hjartarafstuðtæki sé það til staðar. Hjá eldri einstaklingum tengist hjartastopp yfirleitt kransæðasjúkdómi, ýmist bráðri kransæðastíflu eða af- leiðingum hennar, en það eru oftast aðrar orsakir en kransæðasjúkdómur sem leiða til skyndidauða hjá yngra fólki. Grunnorsökum hjartastopps hjá ungu fólki má gróft séð skipta í tvo meginhópa, hjartavöðvasjúkdóma og svo það sem kallast frumkomnar raflífeðlisfræðilegar raskanir. Þetta er flókið samheiti yfir nokkra sjúkdóma sem valda göllum í rafkerfi hjartans og geta leitt til hjartsláttartruflana í slegl- um og skyndidauða. í báðum tilvikum hafa þessi vandamál sterka tilhneigingu til ættlægni og það eru allmargar þekktar stökkbreytingar í erfðamenginu sem valda þeim. Það er rétt að taka fram að í tæplega þriðjungi tilvika hjartastopps hjá yngri einstaklingum getur ástæðan verið óútskýrð þrátt fyrir ítarlega skoðun, þar á meðal krufningu. Ofþykktarhjartavöðvakvilli (þykknun á vinstri slegli án viðhlítandi skýringa) er algengasti hjartavöðvasjúkdómur- inn hjá ungu fólki og er tíðni hans á Vesturlöndum einn af hverjum 500. Helstu einkenni hans geta verið mæði og hjart- sláttaróþægindi. Ef alvarlegar takttruflanir frá sleglum sjást geta þær leitt til yfirliðs eða jafnvel hjartastopps. Merki um hjartavöðvaþykknun sjást stundum á hefðbundnu hjarta- línuriti en það þarf þó ómskoðun af hjarta til staðfestingar á greiningunni. Eftir því sem hjartavöðvinn er þykkari þeim 6 Málgagn Hjartaheilla

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.