Velferð - 01.05.2018, Blaðsíða 10
skimunum. Verkefnið hefur auk þess alla burði til að verða
eitt mikilvægasta tæki okkar í dag í forvörnum gegn hættu-
legasta sjúkdómi 21. aldarinnar - hjarta- og æðasjúkdómum
- það sýna tölurnar yfir þátttakendur sem mæta á hverjum
stað.
Einnig var gott samstarf við Ólöfu Guðnýju Geirsdóttur,
doktor í næringarfræði við LHS um sérstakt mælinga- og
rannsóknarverkefni innan Oddfellowreglunnar, þar sem
Hjartaheill sá um mælingaþáttinn.
Gerð er grein fyrir þessu mælingaverkefni á öðrum stað í
blaðinu.
Golfmót Hjartaheilla 2017
Golfmót Hjartaheilla fór fram á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal.
Alls voru 28 keppendur skráðir í mótið og var þeim skipt upp
í 7 fjögurra manna lið og spilað Texas scramble. Sagt var frá
mótinu í desemberblaði Velferðar.
Stuðningsnet
sjúklingasamtakanna
Allmörg sjúklingafélög tóku sig saman í ársbyrjun 2017 um
að mynda stuðningsnet um jafningjastuðning fyrir sjúklinga
og aðstandendur þeirra. Félögin ákváðu í kjölfarið að vinna
saman að því verkefni. Samtals standa 16 félög með um
15.000 félagsmenn á bak við stuðningsnetið.
Námskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa voru haldin dag-
ana 15. og 22. ágúst og 11. og 18. september í SÍBS húsinu að
Síðumúla 6. Námskeiðin eru án kostnaðar fyrir stuðningsfull-
trúa en sjúklingafélag viðkomandi fulltrúa greiðir kostnaðinn.
StarfsmennHjartaheilla tóku þátt í þessum námskeiðum.
Sýningin Fit og Run
var haldin í Laugardalshöllinni dagana 17. og 18. ágúst í til-
efni af Reykjavíkurmaraþoni íslandsbanka og tók Hjartaheill
þátt í sýningunni. Sameiginlegur bás Neistans og Hjartaheilla
var að vanda vel skipulagður og útbýttu Hjartaheill bolum
sem Margt smátt gaf samtökunum.
Reykjavíkurmaraþon
íslandsbanka
Yfir 14 þúsund hlauparar tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoni
íslandsbanka sem hlaupið var laugardaginn 20. ágúst 2017.
Hjartaheill hefur ávallt verið eitt af góðgerðarfélögunum
sem hægt hefur verið að heita á. Mikil stemning var meðal
hlaupara og áhorfenda á meðan hlaupið fór fram og söfnuð-
ust kr. 363.571,- til Hjartaheilla.
„Who Wants To Live Forever"
- Hvernig vilt þú eldast?
I Háskólabíó þann 8. september s.l. var haldin ráðstefna „Who
Wants To Live Forever" með þekktum alþjóðlegum fyrirlesur-
um þar sem þetta mál var tekið fyrir. Að hversu miklu leyti
Fáðu góðar vörur á góðu verði
og láttu gott af þér Leiða - þá virina alLir!
Kíktu á heimasíðu múlalundar - www.mulalundur.is
Þú pantar og vió sendum til þin hvert á land sem er
Múlalundur I Vinnustofa SIBS
Reykjalundur I 270 Mosfetlsbær
Sími 562 8500
www.mutalundur.is
MULALUNDUR
Handavinna
Við getum pakkað, brotið,
merkt og ýmistegt annað
Allt fyrir skrifstofuna
Ritföng, pappír og aðrar
skrifstofuvörur
10 Málgagn Hjartaheilla