Velferð - 01.05.2018, Side 13

Velferð - 01.05.2018, Side 13
THE LlflDE GROUP studningsnet.is Stuðningsnetið er samstarfsverkefni margra stærstu sjúklingafálaga landsins og byggir á faglegum verkferlum við jafningjastuðning við sjúklinga og aðstandendur þeirra SÍBS viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili Menntamálastofnun hefur samþykkt umsókn SÍBS um að hljóta viðurkenningu sem framhaldsfræðsluaðili í samræmi við lög 27/2010 um Framhaldsfræðslu. í slíkri viðurkenningu felst staðfesting á að starfsemi fræðsluaðilans uppfylli almenn skilyrði lagana. SÍBS bætist þar með í fjölbreyttan hóp framhaldsfræðsluaðila á íslandi og getur tekið enn virkari þátt í þróun á námi fyrir fulh orðina með áherslu á forvarnir og lýðheilsu. SÍBS býður upp á fjölbreytt námskeið tengd heilsu og lífsstíl þar á meðal Reykja- lundarnámskeið SÍBS sem eru aðlöguð útgáfa af námskeiðum sem notuð eru í endurhæfingu á Reykjalundi. SÍBS hefur jafnframt haldið utan um verkefnið „Stuðningsnet sjúklingafélaganna" og í tengslum við það boðið upp á nám- skeið fyrir stuðningsfulltrúa. í undirbúningi eru námsskrár fyrir lífsstílsþjálfun og námskeið fyrir lífsstílsþjálfara, byggð á fyrirmynd frá Smitsjúkdóma- og forvarnarstofnun Bandaríkj- anna í samstarfi við Heilsuborg, SidekickHealth og Ferðafélag íslands með stuðningi frá Lýðheilsusjóði. AGÁ www.linde-healthcare.is ÍSLENSK ERFÐAGREINING íslandsspil inter Medica. Dedicated to People Flow Skipulagsbreytingar á skrifstofu Hjartaheilla Guðrún Bergmann Franzdóttir. Guðrún Bergmann Franzdóttir, sem verið hefur starfsmaður Hjartaheilla frá árinu 2004, lét af störfum frá og með 1. desember s.l. vegna skipulagsbreytinga. Óvíst er um mannaráðningar í hennar stað en leitað verður eftir starfsmanni í almenn skrif- stofustörf með áherslu á fjáraflanir, félagsmál og fjölgun félagsmanna. Guðrún Bergmann hefur starfað frá árinu 2004 hjá samtökunum - fyrst sem formað- ur Neistans og síðan starfsmaður Hjartaheilla og gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir Hjartaheill. Hún mun áfram verða í sjálfboðaliði Hjartaheilla ásamt því að starfa fyrir Neistann. Stjórn og starfsmenn Hjartaheilla héldu Guðrúnu kveðjuhóf, þökkuðu henni hjartan- lega fyrir samstarfið og óskuðu henni velfarnaðar á nýjum vettvangi. Velferð 13

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.